Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
Þróttur R.
0
3
Kórdrengir
0-1 Hreinn Ingi Örnólfsson '3 , sjálfsmark
0-2 Leonard Sigurðsson '79
0-3 Magnús Andri Ólafsson '92
06.08.2021  -  19:15
Eimskipsvöllurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Logn, léttskýjað og 13 gráður
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Maður leiksins: Davíð Þór Ásbjörnsson - Kórdrengir
Byrjunarlið:
1. Sveinn Óli Guðnason (m) ('14)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
4. Hreinn Ingi Örnólfsson (f) ('80)
5. Atli Geir Gunnarsson
8. Baldur Hannes Stefánsson (f)
9. Hinrik Harðarson
11. Kairo Edwards-John ('72)
15. Gunnlaugur Hlynur Birgisson ('72)
20. Andi Hoti ('80)
21. Róbert Hauksson
23. Guðmundur Friðriksson
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
1. Franko Lalic (m) ('14)
3. Teitur Magnússon ('80)
6. Sam Hewson ('72)
7. Daði Bergsson
16. Egill Helgason ('80)
26. Viktor Elmar Gautason
28. Ólafur Fjalar Freysson ('72)
28. Aron Ingi Kristinsson

Liðsstjórn:
Guðlaugur Baldursson (Þ)
Jens Elvar Sævarsson
Baldvin Már Baldvinsson
Jamie Paul Brassington
Páll Steinar Sigurbjörnsson
Henry Albert Szmydt

Gul spjöld:
Kairo Edwards-John ('43)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Virkilega verðskuldaður sigur Kórdrengja gegn bitlausum Þrótturum.

Kórdrengir eru nú fjórum stigum frá ÍBV sem er í öðru sæti, Kórdrengir eiga leik til góða.

Þróttarar eru í ellefta sæti, fallsæti, tveimur stigum fyrir neðan Selfyssinga.
92. mín MARK!
Magnús Andri Ólafsson (Kórdrengir)
Stoðsending: Leonard Sigurðsson
NÝKOMINN INN SEM VARAMAÐUR!

Lalic varði skot sem Leonard tók en Magnús Andri, nýkominn af bekknum, hirðir frákastið og skorar af öryggi.
90. mín
Inn:Magnús Andri Ólafsson (Kórdrengir) Út:Hákon Ingi Einarsson (Kórdrengir)
90. mín
Inn:Egill Darri Makan Þorvaldsson (Kórdrengir) Út:Þórir Rafn Þórisson (Kórdrengir)
88. mín
Baldur Hannes Stefánsson skallar vel yfir. Farið að fækka Þróttaramegin í stúkunni.
84. mín
Það er þétt spilað hjá Kórdrengjum sem eiga leik gegn Aftureldingu á þriðjudaginn. Næsti leikur Þróttara er heimaleikur gegn Gróttu eftir viku.
83. mín
Inn:Daníel Gylfason (Kórdrengir) Út:Alex Freyr Hilmarsson (Kórdrengir)
80. mín
Inn:Egill Helgason (Þróttur R.) Út:Andi Hoti (Þróttur R.)
80. mín
Inn:Teitur Magnússon (Þróttur R.) Út:Hreinn Ingi Örnólfsson (Þróttur R.)
79. mín MARK!
Leonard Sigurðsson (Kórdrengir)
Stoðsending: Alex Freyr Hilmarsson
ÞETTA MARK GERIR VÆNTANLEGA ÚT UM ÞETTA!

Leonard Sigurðarson klárar með þéttingsföstu skoti í fjærhornið eftir að Alex Freyr gerði vel og lagði boltann á hann.
78. mín
Þórir Rafn reynir bakfallsspyrnu. Skemmtileg tilraun en nær ekki að hitta boltann nægilega vel.
75. mín
Þórir Rafn Þórisson með frábær tilþrif og kemur boltanum í netið. Boltinn fór í hendina á honum í aðdragandanum og dómarinn var búinn að flauta.
72. mín
Inn:Ólafur Fjalar Freysson (Þróttur R.) Út:Kairo Edwards-John (Þróttur R.)
72. mín
Inn:Sam Hewson (Þróttur R.) Út:Gunnlaugur Hlynur Birgisson (Þróttur R.)
Hewson mættur aftur eftir að hafa verið frá í nokkurn tíma vegna meiðsla.
72. mín
Leikurinn stopp. Hreinn Ingi þarf aðhlynningu.
67. mín
Guðmundur í hættulegu hlaupi. Hákon Ingi setur boltann í hornspyrnu en útfærslan á henni misheppnast hrapallega. En þetta er í áttina hjá Þrótturum. Þeir eru líklegri núna.
66. mín
STÓRHÆTTULEG SÓKN ÞRÓTTARA!

Kairo með hættulegan sprett, fer framhjá Ondo og sendir fyrir. Gunnlaugur Hlynur fær boltann fyrir opnu marki en hitti ekki rammann. Getur hreinlega þakkað fyrir að flaggið var farið á loft. Rangstaða. Hefði ekki talið.
62. mín
Róbert Hauksson kemur sér í álitlega stöðu en Ásgeir Frank Ásgeirsson með frábæra vörn. Hirðir boltann af honum.
60. mín
Inn:Leonard Sigurðsson (Kórdrengir) Út:Axel Freyr Harðarson (Kórdrengir)
Fyrsta skipting Kórdrengja.
59. mín
Heimamenn ekki alveg sáttir við dómgæsluna núna. Hafa ýmislegt til síns máls. Arnar Ingi aðeins í smá brasi núna en getur vonandi komið sér aftur á beinu brautina.
57. mín
"Þetta er álitlegra núna. Það er meiri kraftur í Þrótturum," segir lýsandi leiksins á Lengjudeildin.is. Hann er hérna með okkur í fréttamannastúkunni.
55. mín
Þróttarar ósáttir við að fá ekki óbeina aukaspyrnu. Gunnlaugur Fannar virtist gefa boltann til baka á Pedersen sem tók boltann upp með höndum. Arnar Ingi dæmir ekkert við litla hrifningu Þróttara.
52. mín
Kórdrengir eru ólseigir og ekkert grín að finna glufur á þeim. Eru mjög þéttir til baka og Þrótturum gengur bölvanlega að skapa sér færi.
50. mín
Róbert Hauksson átti ágætis sprett áðan en Pedersen hirti lága fyrirgjöf hans. Hinumegin átti Alex Freyr Hilmarsson skottilraun en Lalic varði.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn á fleygiferð
45. mín
Hálfleikur
Kórdrengir haft talsverða yfirburði, skapað sér fleiri færi og eru með versðskuldaða forystu í hálfleiknum.
45. mín
Fatai með hörkuskot en Lalic ver. Nokkurnveginn beint á Lalic.
45. mín
Róbert Hauksson lendir í árekstri við Pedersen markvörð í baráttunni um boltann. Norski markvörðurinn var á undan í boltann en þarna var hætta á ferðum.
45. mín
Það verða einhverjar mínúturnar í uppbótartíma eftir meiðsli Sveins Óla.
43. mín Gult spjald: Kairo Edwards-John (Þróttur R.)
41. mín
Kórdrengir svoooo nálægt því að tvöfalda forystuna.

Fyrst átti Axel Freyr Harðarson stangarskot og svo átti Alex Freyr Hilmarsson tilraun fyrir utan teig en boltinn sveif rétt framhjá samskeytunum!
35. mín
Davíð Þór með skalla framhjá! Lalic fór í skógarhlaup en hafði heppnina með sér.
34. mín
Arnleifur sólar Eirík Blöndal og vinnur svo enn eina hornspyrnu Kórdrengja.
33. mín
MARKTILRAUN HJÁ ÞRÓTTURUM!

Róbert Hauksson með fyrirgjöf frá hægri, flottur bolti, Hinrik Harðarson með skalla en máttlaus og Pedersen ver af miklu öryggi. Fyrsta marktilraun heimamanna.
31. mín
Sjúkrabíll mætti á svæðið og náði í Svein Óla eftir höfuðhöggið áðan. Sendum markverðinum unga batakveðjur. Líklega fengið heilahristing.
28. mín
Kórdrengir fengið slatta af hornspyrnum í þessum fyrri hálfleik. Lalic gerir vel og grípur eina slíka.
27. mín
Arnleifur Kórdrengur með skot sem er máttlítið og Lalic nær að verja auðveldlega.
25. mín
Þróttarar hafa reynt nokkra fallhlífarbolta inn í teig Kórdrengja sem Pedersen í markinu á ekki í nokkrum vandræðum með. Léttir æfingaboltar.
24. mín
Davíð Þór að sleppa í gegn en er réttilega flaggaður rangstæður. Óli Njáll Ingólfsson á línunni með allt í teskeið að vanda.
22. mín
Þróttarar eru aðeins að fikrast í betri átt. Eru allavega farnir að koma sér á vallarhelming Kórdrengja þó þeir hafi enn ekki náð að skapa sér marktækifæri.
16. mín
Leikurinn er aftur farinn í gang.

Þess má geta að sjúkraþjálfari Þróttara er Páll Steinar Sigurbjörnsson, bróðir íþróttafréttamannsins Þorkels Gunnars Sigurbjörnssonar sem er staddur í Tókýó að fylgjast með Ólympíuleikunum.
14. mín
Inn:Franko Lalic (Þróttur R.) Út:Sveinn Óli Guðnason (Þróttur R.)
Sveinn Óli fékk þungt höfuðhögg og þarf að fara af velli. Markvarðaskipti hjá Þrótturum.

Sveinn röltir mjög rólega í átt að búningsklefum.
12. mín
Leikurinn stopp því Sveinn Óli skall á stönginni þegar hann varði skotið frá Fatai áðan. Sveinn er að fá aðhlynningu frá sjúkraþjálfara Þróttar.
11. mín
HÖRKUSKOT!!! Fatai Gbadamosi með skot sem Sveinn Óli, ungur markvörður Þróttar, ver virkilega vel.

Algjör einstefna Kórdrengja hér í upphafi. Þeir eru þegar farnir að hóta öðru marki.
9. mín
Kórdrengir með marktilraun. Gunnlaugur Fannar með skalla eftir aukaspyrnu sem Alex Freyr tók en Sveinn Óli í marki Þróttar náði að verja.
8. mín
Hreinn Ingi í vandræðum með Davíð Þór fyrirliða Kórdrengja og gestirnir fá aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika frá vinstri.
3. mín SJÁLFSMARK!
Hreinn Ingi Örnólfsson (Þróttur R.)
KÓRDRENGIR KOMAST YFIR!!!

Fyrirgjöf frá hægri og mér sýndist boltinn hafa farið af Hreini Inga, varnarmanni Þróttar, og í markið.

Þórir Rafn Þórisson var að reyna að ná til boltans í markteignum en boltinn af Hreini og inn.

Svakaleg byrjun hjá Kórdrengjum.
2. mín
Kórdrengir í sókn. Arnleifur með fyrirgjöf sem Hreinn Ingi hreinsar í hornspyrnu. Arnleifur tekur spyrnuna og Gunnlaugur Hlynur kemur boltanum í annað horn.
1. mín
Partíið er farið af stað! Þróttarar hefja leik og sækja í átt að pizzatjaldinu í fyrri hálfleik.
Fyrir leik
Áhorfendur að koma sér fyrir. Reynir Bergmann, eigandi Vefjunnar, er mættur í Kórdrengjatreyju sem hann keypti sér í Jóa Útherja í dag.

Þróttaramegin má sjá Þorvald Ingimundarson, kónginn og meistarann hjá KSÍ, Björn Hlyn Haraldsson sem leikur vonda kallinn í Leynilöggu og auðvitað Hörð Magnússon.

Þorparinn í græjunum. Fjórar mínútur í leik.
Fyrir leik


Í byrjunarliði Þróttar er sóknarmaðurinn kornungi Hinrik Harðarson sem þegar er kominn með tvö mörk í deildinni hingað til. Hinrik varð sautján ára í sumar en hann á ekki langt að sækja markanefið, faðir hans er Hörður Magnússon.
Fyrir leik
Liðin eru í upphitun. Þjálfarateymi Kórdrengja stendur úti á velli og spjallar. Davíð Smári ræðir við aðstoðarmenn sína; Heiðar Helguson og Andra Stein Birgisson. Heiðar uppalinn Þróttari og þekkir hérna hvern einasta krók og kima.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn

Þróttarar tefla fram sama byrjunarliði og í 3-0 útisigrinum gegn Selfossi. Guðlaugur Baldursson þjálfari snýr aftur við stjórnvölinn eftir að hafa verið í einangrun vegna Covid smits í síðasta leik.



Norski markvörðurinn Alexander Pedersen spilar sinn fyrsta leik fyrir Kórdrengi en hann kemur inn í byrjunarliðið. Einnig byrjar Alex Freyr Hilmarsson, sem kom á láni frá KR, sinn fyrsta leik.

Davíð Smári gerir alls fjórar breytingar frá síðasta leik, sem fór fram 15. júlí (1-0 útisigur gegn Selfossi). Kórdrengir hafa ekki spilað leiki sína í síðustu tveimur umferðum þar sem þeir voru sendir í sóttkví.

Auk Pedersen og Alex koma Þórir Rafn Þórisson og Arnleifur Hjörleifsson inn í byrjunarliðið.
Fyrir leik
Fylgist með
Róbert Hauksson, ungur og öflugur leikmaður Þróttar, var valinn leikmaður umferðarinnar í síðustu umferð. Hann skoraði eitt og lagði upp tvö í sigrinum gegn Selfossi.

Sjá nánar hérna

Fyrir leik
Þegar liðin mættust í Breiðholtinu
Liðin mættust í lok maí á Domusnovavellinum í hinu undurfagra Efra-Breiðholti. Daði Bergsson kom Þrótti yfir en Nathan Dale jafnaði fyrir hálfleik.

Sóknarmaðurinn hávaxni Connor Simpson skoraði sigurmarkið en hann er ekki með í leiknum í kvöld vegna meiðsla. Hann verður víst frá í einhvern tíma. Fræðumst betur um það þegar rætt verður við Davíð Smára þjálfara eftir leikinn.

Fyrir leik
Sjö stigum frá öðru sæti... EN...
Kórdrengir eru sjö stigum frá ÍBV frá öðru sæti en eiga tvo leiki til góða á Eyjamenn. Tveimur síðustu leikjum Kórdrengja var frestað eftir að Covid-19 smit greindist í leikmannahópnum.

Fyrir leik
Vonin lifir hjá Lifi!
Ná Þróttarar að fylgja eftir afskaplega góðum sigri í sex stiga fallbaráttuslag í síðustu umferð? Þróttarar fóru á Selfoss og unnu 3-0 útisigur. Þeir eru þó enn í fallsæti.

Fyrir leik
MJÖG mikilvægur leikur fyrir bæði lið
Nú er gleði, nú er gaman. Lengjudeildarkvöld í Laugardalnum þar sem Þróttur og Kórdrengir mætast í 15. umferð. Þróttarar berjast við falldrauginn en Kórdrengir eru með í baráttunni um annað sætið.

Arnar Ingi Ingvarsson er dómari kvöldsins. Hann fær góða aðstoð því Óli Njáll Ingólfsson og Elvar Smári Arnarsson eru aðstoðardómarar.

Byrjunarlið:
1. Alexander Pedersen (m)
4. Ásgeir Frank Ásgeirsson
4. Fatai Gbadamosi
5. Loic Mbang Ondo (f)
6. Hákon Ingi Einarsson ('90)
8. Davíð Þór Ásbjörnsson
10. Þórir Rafn Þórisson ('90)
15. Arnleifur Hjörleifsson
16. Alex Freyr Hilmarsson ('83)
17. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
18. Axel Freyr Harðarson ('60)

Varamenn:
24. Elías Fannar Stefnisson (m)
2. Endrit Ibishi
3. Egill Darri Makan Þorvaldsson ('90)
9. Daníel Gylfason ('83)
22. Nathan Dale
33. Magnús Andri Ólafsson ('90)

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
Logi Már Hermannsson
Andri Steinn Birgisson
Albert Brynjar Ingason
Leonard Sigurðsson
Davíð Örn Aðalsteinsson
Heiðar Helguson
Árni Jóhannes Hallgrímsson
Jóhann Ólafur Schröder

Gul spjöld:

Rauð spjöld: