Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
banner
   mán 30. mars 2026 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fer frá Man City í sumar - Liverpool vill Luis Suarez
Powerade
Liverpool hefur áhuga á Luis Suarez
Liverpool hefur áhuga á Luis Suarez
Mynd: EPA
Bernardo Silva á förum frá City í sumar
Bernardo Silva á förum frá City í sumar
Mynd: EPA
Bayern Munchen er meðvitað um áhuga frá Sádi-Arabíu á Harry Kane, Bernardo Silva er líklegur til að yfirgefa Man City í sumar og Inter Miami hefur viðræður við Casemiro. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins. Það er BBC sem tekur saman og samantektin er í boði Powerade.



Uli Höness hjá Bayern Munchen er meðvitaður um áhuga frá Sádi-Arabíu á Harry Kane (32). Bayern er að reyna framlengja við enska framherjann sem verður samningslaus sumarið 2027. (Kicker)

Bernardo Silva (31) hefur sagt Manchester City að hann muni yfirgefa félagið í sumar þegar samningurinn rennur út. (Caught Offside)

Aston Villa, Bayern, Chelsea og Liverpool fyljgast öll með Maxence Lacroix (25) miðverði Crystal Palace. (Teamtalk)

Liverpool og Newcastle hafa áhuga á Luis Suarez (28) framherja Sporting. (Correio da Manha)

Scott McTominay (29) er ekki í viðræðum við félög í Sádi-Arabíu og er einbeiting miðjumannsins áfram á Napoli. (Fabrizio Romano)

Barcelona mun bjóða Robert Lewandowski (37) nýjan eins árs samning. Hann mun lækka talsvert í launum en verður með frammistöðubónusum. (Sport)

Juventus hefur áhuga á Lewandowski og Randal Kolo Muani (27) sem er á láni hjá Tottenham frá PSG. (Gazzettan)

Malo Gusto (22) leikmaður Chelsea segir að stjórinn Liam Rosenior sé í hæsta gæðaflokki þrátt fyrir erfitt gengi að undanförnu. (ESPN)

Inter Miami hefur hafið viðræður við Casemiro (34) en hann mun yfigefa Manchester United í sumar þegar samningur hans rennur út. Önnur félög í MLS hafa áhuga og einnig félög í Sádi-Arabíu. (Fabrizio Romano)
Slapp
Athugasemdir
banner