SKÝRSLAN: Vonin lifir í Laugardalnum
Hvað réði úrslitum?
Yfirburðir Þróttara seinasta hálftímann, skora 4 mörk síðasta hálftímann og litu bara fáranlega vel út á vellinum og áttu þennan sigur skilið
Bestu leikmenn
1. Sam Ford
Var gjörsamlega frábær í liði Þróttar, mark og stoðsending og var bara allt í öllu hjá þeim hvítu og rauðu
2. Eiríkur Blöndal
Var valinn maður leiksins af vallarþuli, var frábær í vinstri bakverðinum þar sem hann er ekki vanur að spila þar sem Eirikur er hægri bakvörður, vinnsla upp á 10 og var að skapa fyrir liðsfélaga og allt þar á milli
Atvikið
Vítið sem Þróttarar fá á 60. mínútu í stöðunni 2-1 fyrir VÓ, Sam Hewson skorar úr því og þá gjörsamlega breytist leikurinn og Þróttarar ganga á lagið
Hvað þýða úrslitin?
Vonin lifir ennþá í Laugardalnum og Þróttarar eru ekki tölfræðilega séð ekki fallnir en þeir þurfa að vinna ÍBV (Ú) í næsta leik og þá yrði líklega algjör úrslitaleikur við Þórsara í síðustu umferð á heimavelli
Vondur dagur
Framherjinn Anel Crnac var ekki að finna sig í sóknarleik Ólsara í dag, var mjög vinnusamur en komst aldrei almennilega inn í leikinn og var lítið í færum
Dómarinn - 8,5
Egill og hans teymi bara nokkuð solid, Egill neglir vítaspyrnuna og rauða spjaldið, flæði leiksins var gott og bara overall solid frammistaða



