SKÝRSLAN: Vonin lifir á Skaganum!
Hvað réði úrslitum?
Skagamenn byrjuðu leikinn betur og eftir að Fylkir missti mann af velli þá voru heimamenn bara töluvert betri í leiknum og enduðu á að klára þetta með stæl.
Bestu leikmenn
1. Ísan Snær Þorvaldsson(ÍA)
Ísak var frábær í þessum leik í dag á miðjunni. Mikið í boltanum og barðist fyrir liðið. Átti líka nokkra góða spretti fram á við.
2. Gísli Laxdal Unnarsson(ÍA)
Gísli var mjög flottur í þessum leik. Sótti mikið upp hægri kantinn og með hraða sínum fór hann nokkrum sinnum illa með Fylkismenn.
Atvikið
Rauða spjaldið á 13. mínútu. Að fá á sig víti og rautt í svona leik er alveg skelfilegt og það reyndist Fylkismönnum mjög erfitt.
Hvað þýða úrslitin?
Skagamenn lyfta sér upp úr fallsæti amk tímabundið. Og eru í góðum sjens að bjarga sér sem er í raun lygilegt! Fylkismenn eru hins vegar á botninum í virkilega vondum málum. Ef HK vinnur Stjörnuna á morgun þá er Fylkir fallið.
Vondur dagur
Þetta fer á Fylkis liðið í heild! Það voru alltof margir leikmenn í Fylkisliðinu sem virtust bara ekki gera sér grein fyrir því hvernig staðan var fyrir þennan leik og mikilvægi leiksins.
Dómarinn - 8
Mjög vel dæmdur leikur!



