Fotbolti.net
Besta deildin
Sverrir Örn Einarsson
Besta-deild karla
Framvöllur
Fram
Fram
1 - 4
KR
KR
0 - 110' Stefán Árni Geirsson 0 - 214' Finnur Tómas Pálmason0 - 327' Stefan Alexander LjubicicMár Ægisson 62'1 - 31 - 486' Sigurður Bjartur HallssonAlbert Hafsteinsson (misnotað víti) 93'
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Fyrri hálfleikur varð Fram að falli

Hvað réði úrslitum?

Taugaspenna? Leikmenn Fram virtust ekki alveg ná andanum á kafla í fyrri hálfleik og gáfu gestunum úr Vesturbæ ódýr mörk. Tökum þó ekkert af KR sem þurfti að nýta sín færi en það boðar aldrei gott að bjóða liði eins og KR forgjöf

Bestu leikmenn

1. Atli Sigurjónsson

Tvær stoðendingar hjá Atla í dag sem lét vinstri bakvörð Fram líta illa út oft á tíðum í fyrri hálfleik.

2. Beitir Ólafsson

Markmaður í liði sem vinnur 4-1 er kannski ekki augljóst val en Beitir átti nokkrar stórgóðar vörslur sem komu í veg fyrir að Fram minnkaði munin í 3-2 þegar skammt lifði leiks. Kórónaði svo leik sinn með vítavörslu í lokin.

Atvikið

Tvöföld varsla Beitis þegar 10 mínútur lifðu leiks, fyrst skot frá vítateig frá Indriða og strax í kjölfarið frá Jannik Pohl af mjög stuttu færi er sá danski hirti frákastið.

Hvað þýða úrslitin?

KR sest með Blikum á topp deildarinnar með 3 stig og 3 mörk í plús en Fram með Keflavík á botninum með 0 stig og 3 mörk í mínus.

Vondur dagur

Aðdáendur Fram fylktu liði á völlinn með von í brjósti um gott kvöld og sigur á KR. Brúnin var orðin heldur þung eftir 30 mínútna leik og heyrði ég menn tala um að taka bara strætó heim í hálfleik.

Dómarinn - 6,5

Smá vorbragur á Pétri í kvöld og ekkert alltaf sem ég var endilega sammála honum. Staðreyndin er nú samt sú að hann er dómari í efstu deild en ekki ég.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.