Fotbolti.net
Besta deildin
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta-deild karla
Dalvíkurvöllur
KA
KA
1 - 0
Leiknir R.
Leiknir R.
Elfar Árni Aðalsteinsson 54'1 - 0
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: KA fer með þrjú stig í pokanum frá Dalvík

Hvað réði úrslitum?

Þessi leikur var ekki mikið fyrir augað! Leiknismenn fóru afar illa að ráði sínu fyrir framan markið en KA menn nýttu sér það og skoruðu eina mark leiksins.

Bestu leikmenn

1. Ásgeir Sigurgeirsson

Var hættulegur, átti mjög fín færi en Viktor var flottur í markinu, Hann leggur svo upp sigurmarkið með hnitmiðarði fyrirgjöf.

2. Elfar Árni Aðalsteinsson

Réttur maður á réttum stað og tryggði KA stigin þrjú!

Atvikið

Óttar Bjarni þurfti að fara af velli eftir að hafa fengið fast skot beint í höfuðið, vonandi að þetta muni ekki hafa mikil áhrif á hann.

Hvað þýða úrslitin?

Sterkur sigur fyrir KA, gott að byrja mótið á sigri en aftur á móti þurfa Leiknismenn að sýna meira gegn Stjörnunni í næstu umferð.

Vondur dagur

Leiknismenn fóru illa að ráði sínu í fyrri hálfleik, sofandaháttur í vörn KA oft á tíðum sem Leiknis menn náðu ekki að nýta sér.

Dómarinn - 8

Bara fínn leikur hjá honum. Menn voru orðnir svolítið pirraðir undir lok leiksins, innan sem utan vallar, Jóhann hélt ró sinni og missti þetta ekkert í vitleysu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.