Fotbolti.net
Besta deildin
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Besta-deild karla
Hásteinsvöllur
Sól og blíða með smá golu, gerist varla betra!
ÍBV
ÍBV
1 - 1
Leiknir R.
Leiknir R.
Andri Rúnar Bjarnason 26'1 - 01 - 129' Eiður Aron Sigurbjörnsson (sjm)
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Áhorfendur: 518
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: ÍBV og Leiknir komin á blað

Hvað réði úrslitum?

Jöfn lið. Það er vel hægt að færa rök fyrir því að niðurstaðan hafi verið nokkuð sanngjörn. Bæði liðin fengu ágætis tækifæri til að taka stigin þrjú, nokkuð jöfn lið sem mættust á Hásteinsvelli í dag.

Bestu leikmenn

1. Andri Rúnar Bjarnason

Kom boltanum tvívegis yfir marklínuna í fyrri hálfleik en aðeins annað taldi. Gott fyrir hann að vera kominn á blað.

2. Árni Elvar Árnason

Góður á miðsvæðinu hjá Leikni.

Atvikið

Kannski ekkert stórt atvik sem hægt er að benda á hér. Eyjamenn voru búnir að vera með ágætis tök á leiknum og skilaði það sér með marki. Leiknismenn leyfðu Eyjamönnum hins vegar ekki að nýta meðbyrinn og jöfnuðu svo gott sem strax.

Hvað þýða úrslitin?

Bæði liðin eru komin á blað í Bestu deildinni eftir að hafa farið stigalaus í gegnum fyrstu tvær umferðirnar.

Vondur dagur

Bæði lið voru stigalaus fyrir þennan leik og sáu örugglega gullið tækifæri til að sparka tímabilinu almennilega af stað með því að fá þrjú stig í hús. Það tókst hins vegar ekki.

Dómarinn - 8

Dómari leiksins, Egill Arnar, hafði fín tök á leiknum. Skrítið atvik þó þegar hann benti á vítapunktinn en það var allt saman leiðrétt að lokum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.