SKÝRSLAN: Afmælisbarnið með sýningu á Kópavogsvelli
Hvað réði úrslitum?
Pressa og áræðni Blika skipti sköpum í dag.
Voru betri en FH á öllum sviðum leiksins í dag og þá sérstaklega í síðari hálfleik þar sem Blikar höfðu öll völd.
Voru betri en FH á öllum sviðum leiksins í dag og þá sérstaklega í síðari hálfleik þar sem Blikar höfðu öll völd.
Bestu leikmenn
1. Ísak Snær Þorvaldsson
Skoraði 2 mörk og nánast með stoðsendingu fyrir Kidda Steindórs. Óheppinn að fullkomna ekki þrennuna.
2. Davíð Ingvarsson
Var frábær í liði Blika í dag. Á stóran þátt í öllum mörkum Blika og varnarlína FH átti í stökustu vandræðum með að klukka hann.
Atvikið
Fyrsta mark leiksins. Ísak skorar úr nánast engu og kýlir þar FH má segja í magann á leið inn í hálfleikinn. Hefði mögulega verið allt annar leikur ef FH hefðu náð að halda í jafnteflið.
Einnig atvikið sem ég nefni í vondum degi, það gerir sterkt tilkall.
Einnig atvikið sem ég nefni í vondum degi, það gerir sterkt tilkall.
Hvað þýða úrslitin?
Blikar sitja á toppi deildarinnar ásamt Valsmönnum með fullt hús stiga.
FH eru með þrjú stig eftir jafn margar umferðir.
FH eru með þrjú stig eftir jafn margar umferðir.
Vondur dagur
Sóknarmenn FH sáust lítið en Gunnar Nielsen verður að taka á sig skúrkinn í dag fyrir skelfileg mistök í öðru markinu sem virtist rota svolítið FH því þeir skoruðu svo aftur strax í næstu sókn.
Dómarinn - 7
Solid sjöa og jafnvel daðrar við áttu hjá Ella í kvöld. Kannski einhverjir smávægilegir hlutir sem hægt væri að nefna en missti aldrei tökin og ekkert sem hafði áhrif á leikinn.




