SKÝRSLAN: Valur setti þrjú og eru komnar aftur á sigurbraut
Hvað réði úrslitum?
Valsstúlkur voru með mikla yfirburði allan leikinn. Voru betri í fyrri hálfleiknum án þess að skapa sér nein færi en Kelfvíkingar vörðust vel en í síðari hálfleik kveiknaði á sóknarleik Vasl og settu þær þrjú góð mörk á Keflvíkinga.
Bestu leikmenn
1. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Valur)
Var besti maður vallarins. Var besti leikmaður Vals í fyrri hálfleik og hélt sömu spilamennsku áfram í síðari hálfleik auk þess að leggja upp tvö mörk. og var mikið í boltanum allan leikinn og skapaði hættur.
2. Elín Metta Jessen (Valur)
Byrjaði sem varamaður en kom inn á eftir rúman tuttugu mínútna leik og kom inn með kraft. Elín Metta skoraði og var mikið í boltanum sérstaklega í síðari hálfleik.
Atvikið
Fyrsta mark Vals sem kveikti á þessu öllu þegar Elísa Viðarsdóttir átti gott samspil við Þórdísi hrönn sem endaði með skoti/fyrirgjöf frá Elísu og boltinn fór yfir Samantha og í markið.
Hvað þýða úrslitin?
Valur er komið aftur á sigurbraut og eru komnar upp í þriðja sæti deildarinnar með sex stig. Keflavík situr í því fjórða einnig með sex stig.
Vondur dagur
Mariana Sofía Speckmaier - Spilaði sinn fyrsta leik fyrir Val í kvöld og þurfti að fara útaf meidd af velli eftir rétt tæpar tuttugu mínútna leik.
Dómarinn - 9
Jóhann Atli og hans menn þurftu ekki að hafa mikið fyrir leiknum í kvöld en gerðu vel það sem þurfti að gera.




