SKÝRSLAN: Árbæingar fengu áminningu en sluppu með stig
Hvað réði úrslitum?
Kórdrengir voru töluvert betra liðið í fyrri hálfleik og Fylkir skapaði sér lítið sem ekkert. Mun meira líf var í gestunum í seinni hálfleik og tvöföld skipting Rúnars Páls í hálfleiknum hafði góð áhrif.
Bestu leikmenn
1. Iosu Villar - Kórdrengir
Spánverjinn sýndi gæði sín í leiknum og stoðsendingin hans var upp á 10. Var svo nálægt því að skora sigurmarkið fimm mínútum fyrir leikslok.
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson - Fylkir
Allt annað að sjá til Fylkis í seinni hálfleiknum og þar munaði mikið um kraftinn sem Ásgeir Börkur mætti með af bekknum.
Atvikið
Fimm mínútum fyrir leikslok átti Iosu Villar frábæran skalla að marki Fylkis en markvarsla Ólafs Kristófers Helgasonar var enn betri. Ólafur kom í veg fyrir að Kórdrengir tækju öll stigin.
Hvað þýða úrslitin?
Allir spá Fylki sigri í deildinni en liðið var minnt á að það þarf að hafa fyrir hlutunum. Kórdrengir náðu í sitt fyrsta stig en höfðu svo sannarlega tækifæri til að taka öll þrjú, sérstaklega með frábærum fyrri hálfleik.
Vondur dagur
Daði Freyr í marki Kórdrengja gerði dýrkeypt mistök í jöfnunarmarkinu. Daði var fínn í leiknum en þessi mistök hans hinsvegar dýr.
Dómarinn - 5
Aukaspyrna eða ekki aukaspyrna, var talsvert oft ósammála ákvörðunum hans. Svo var ansi sterk vítalykt í teig Kórdrengja í seinni hálfleik.



