Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Besta-deild kvenna
HS Orku völlurinn
Keflavík
Keflavík
1 - 2
Afturelding
Afturelding
Anita Lind Daníelsdóttir (víti) 14'1 - 01 - 136' Sólveig Jóhannesdóttir Larsen1 - 243' Christina Clara Settles
Dómari: Kristinn Friðrik Hrafnsson

SKÝRSLAN: Ekki fallegt en árangursríkt í fyrsta sigri Aftureldingar

Hvað réði úrslitum?

Vilji og barátta, gestirnir voru komnir til Keflavíkur með það að markmiði að berjast með kjafti og klóm fyrir stigunum þremur. Í 75 mínútur voru þær ofan á í öllum návígjum úti á velli og unnu flesta seinni bolta líka. Voru svo grimmar í teignum á réttum augnablikum og uppskáru sanngjarnan sigur.

Bestu leikmenn

1. Christina Clara Settles

Gríðarlega öflug í vörninni í leiknum og skoraði gott mark eftir horn. Tók mig reyndar talsvert langan tíma að finna út hver hún var í leiknum en hún lék ekki í sama númeri og hún var skráð með á skýrslu.

2. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving

Lykilvörslur í upphafi leiks þegar Keflavík sótti á gestina. Þess utan var hún örugg í öllum sínum aðgerðum og steig upp þegar á þurfti að halda.

Atvikið

Jöfnunarmark Aftureldingar er ákveðin vendipunktur í leiknum. Veitti mikilli aukaorku inn í lið Aftureldingar og gaf þeim þetta extra sem þurfti til þess að sækja annað mark og klára leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Afturelding er enn í 9.sæti deildarinnar en nú með þrjú stig í stað núll. Keflavík situr í því fjórða með sex stig.

Vondur dagur

Ana Paula Santos Silva var ekki alveg að finna sig í dag, sýndi okkur glefsur af hæfileikum sínum hér og þar í leiknum en náði aldrei almennilegum takti. Mikið til þó vegna þess að varnar og miðjumenn Aftureldingar höfðu á henni góðar gætur.

Dómarinn - 8

Stóru atriðin rétt, vel dæmdur leikur heilt yfir og ekkert hægt að kvarta yfir frammistöðu Kristins í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.