SKÝRSLAN: KR heppnir að tapa ekki gegn Leikni R. á Meistaravöllum
Hvað réði úrslitum?
KR virkilega slakir í síðari hálfleik sem gerði það að verkum að Leiknir fengu sín tækifæri sem þeir hreinlega fóru bara illa með þau og náðu ekki að sækja öll þrjú stigin. KR-ingar heppnir í dag að fá 1 stig úr leiknum.
Bestu leikmenn
1. Mikkel Dahl
Mikkel var ótrúlega sprækur í dag og var alltaf hættulegur, var að skapa fyrir liðsfélaga sína og sjálfan sig svo skoraði hann alvöru framherjamark.
2. Viktor Freyr Sigurðsson
Virkilega öflugur í dag, öruggur í öllum sínum aðgerðum og varði virkilega vel 1v1 gegn Kjartani Henrý í stöðunni 1-1. Viktor verið virkilega góður í byrjun móts.
Atvikið
Þegar að Aron Kristófer Lárusson bjargaði marki á 80. mínútu, Róbert Hauksson fékk sendingu fyrir opnu marki en upp úr þurru kemur AKL og tæklar fyrir skotið!
Hvað þýða úrslitin?
KR-ingar sitja í 5 sæti með 11 stig af 21 mögulegu meðan að Leiknismenn eru ennþá á botni deildarinnar með 3 stig en vissulega einu stigi frá öruggu sæti.
Vondur dagur
Ekki vanur að henda í þennan en sóknarleikur KR-inga í heild virkilega slakur, bitlausir fram á við sérstaklega í seinni.
Dómarinn - 7
Solid 7 bara meira var það ekki. Ekkert risastórar ákvarðanir sem Ívar þurfti að díla við bara fínasta frammistaða hjá honum.




