Fotbolti.net
Besta deildin
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Besta-deild karla
Dalvíkurvöllur
KA
KA
0 - 2
Stjarnan
Stjarnan
0 - 122' Ísak Andri Sigurgeirsson0 - 270' Emil AtlasonSteingrímur Örn Eiðsson 71'
Dómari: Elías Ingi Árnason
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Vesen ef KA lendir undir

Hvað réði úrslitum?

Stjarnan komst yfir og gat í rauninni tekið KA á þetta á móti KA. Liðið lá til baka og gaf svo gott sem engin færi á sér á meðan KA reyndi að svara. Uppspil KA var ekki nægilega gott, ekki tilbúnir að taka sénsa, veðja á tæpari sendingar til að opna svæði og leituðu heimamenn of mikið til baka og hliðar. Ofan á það misstu þeir reglulega boltann út af undir lítilli pressu. Góður útisigur hjá Stjörnunni sem var með mun betur útfærðar sóknir í leiknum.

Bestu leikmenn

1. Daníel Laxdal

Frábær fyrir framan vörnina og var tilbúinn í að taka hlaup upp völlinn til að styðja við sóknina líka. Frábær í dag og stöðvaði ófáar sóknartilraunir hjá KA.

2. Björn Berg Bryde

Ef KA reyndi fyrirgjafir þá var BBB mættur að skalla í burtu og var ekki í neinum vandræðum með fremstu menn KA.

Atvikið

Fyrsta markið hafði mikil áhrif á leikinn. Glæsilegt mark hjá Ísaki.

Hvað þýða úrslitin?

Fyrsta tap KA á tímabilinu staðreynd og Stjarnan er nú komið á smá skrið. KA þarf að finna lausnir ef liðið þarf virkilega á marki að halda.

Vondur dagur

Uppspil og sóknarleikur KA var ekki til útflutnings. Brebels gat akkúrat ekki neitt og þá var Grímsi ekki sjáanlegur sem er vont þegar KA þarf virkilega á gæðum að halda.

Dómarinn - 6

Í fyrri hálfleik, sérstaklega, var Elli (eins og allir á vellinum kölluðu hann) að flauta á of mikið af atvikum sem maður hefur séð dómara líta framhjá í upphafi móts.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.