Fotbolti.net
Besta deildin
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Fram
Fram
Besta-deild karla
Framvöllur - Úlfarsárdal
Spánýr völlur, logn og 11 gráðu hiti
3 - 3
ÍBV
ÍBV
0 - 12' Andri Rúnar Bjarnason (víti)Guðmundur Magnússon 3'1 - 11 - 222' Andri Rúnar BjarnasonGuðmundur Magnússon (víti) 39'2 - 2Guðmundur Magnússon 50'3 - 23 - 361' Alex Freyr Hilmarsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Allir svekktir eftir opnunarpartíið

Hvað réði úrslitum?

Opnunarleikur nýja Framvallarins í Úlfarsárdal var galopinn í allar áttir. Nóg af mistökum og möguleikum, umdeildum atvikum og alls konar dóti. Afskaplega skemmtilegur leikur en við lokaflautið voru bæði lið súr og svekkt.

Bestu leikmenn

1. Guðmundur Magnússon - Fram

Hann hættir ekki. Rosalegt skrið á manninum. Þrenna í fyrsta leik á nýja vellinum.

2. Andri Rúnar Bjarnason - ÍBV

Stöngin kom í veg fyrir að Andri næði að herma eftir Gumma Magg og skora þrennu.

Atvikið

Það var gríðarlegt magn af áhugaverðum atvikum í þessum leik. Ég vel hinsvegar vítið sem ÍBV fékk strax á fyrstu mínútu. Alvöru tuska í andlitið á Frömurum sem voru mættir með blöðrur og andlitsmálningu í nýju stúkuna.

Hvað þýða úrslitin?

Framarar halda áfram að hleypa inn of mörgum mörkum og gengur oft erfiðlega að sigla sigrunum í hús. Eyjamenn eru enn án sigurs í botnsætinu.

Vondur dagur

Þó skemmtanagildið hafi verið mikið þá fengu aðdáendur af öguðum varnarleik ekki mikið fyrir sinn snúð. Varnarleikur beggja liða var alls ekki sérstakur og mistökin voru mörg. Markverðir beggja liða og varnir þeirra fá falleinkunn.

Dómarinn - 4,5

Teymið í heild fær þessa einkunn. Klaufaleg atburðarás í aðdragandanum að öðru marki ÍBV. Stóru vítaákvarðanirnar voru allar réttar held ég en nokkrir aðrir dómarar orkuðu tvímælis.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.