Fotbolti.net
@antonfreeyrAnton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Lengjudeild karla
Extra völlurinn
Fjölnir
Fjölnir
3 - 1
HK
HK
Bruno Gabriel Soares (sjm) 15'1 - 0Lúkas Logi Heimisson 31'2 - 0Lúkas Logi Heimisson 45'3 - 03 - 182' Örvar Eggertsson
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: Fjölnismenn höfðu betur gegn HK

Hvað réði úrslitum?

Fyrri hálfleikurinn réði þessu. Fjölnismenn settu þrjú á HK í fyrri hálfleik og þá var þetta orðið brekka fyrir HK. Seinni hálfleikurinn spilaðist þannig að HK voru betri og sóttu meira en Fjölnismenn gerðu vel varnarlega og vörðu markið sitt frábærlega.

Bestu leikmenn

1. Guðmundur Þór Júlíusson (Fjölnir)

Gummi Júl spilaði eins og kóngur í dag. Frábær aftast hjá Fjölni og skallaði marga bolta úr teignum og sýndi gæða varnarleik oft á tíðum í leiknum í kvöld.

2. Lúkas Logi Heimisson (Fjölnir)

Lúkas Logi setti tvö í kvöld. Var öflugur í fyrri hálfleiknum og hefði geta skorað fleiri, týndist svo aðeins í síðari hálfleiknum.

Atvikið

Þriðja markið sem gerði þetta enþá erfiðara fyrir HK þegar Lúkas Logi skoraði eftir hornspyrnu alveg í lok fyrri hálfleiks.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnir lyftir sér upp í pakkann og eru komnir með 14.stig í fjórða sæti deildarinnar. HK dettur niður í þriðja sæti deildarinnar en liðið er með 15.stig.

Vondur dagur

Bruno Soares skoraði sjálfsmark í kvöld þegar Fjölnismenn komust yfir í leiknum og færa hann því þennan glugga.

Dómarinn - 6.5

Rosalega erfiður leikur að dæma en mér fannst Arnar Ingi og hans menn bara dæma þennan leik vel miðavið aðstæður.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.