SKÝRSLAN: Afturelding setti fjögur í seinni
Hvað réði úrslitum?
Vestri náði ekki að loka svæðum og yfirvegað uppspil Aftureldingar fann leiðir trekk í trekk og þeir sköpuðu afar mörg færi. Brenton markvörður Vestra var í ham í fyrri hálfleik en Afturelding nýttu sénsana betur í þeim síðari.
Bestu leikmenn
1. Georg Bjarnason
Ákaflega vel spilandi og óeigingjarn leikmaður. Átti auðvelt að finna pláss hægra megin og nýtti það vel, 3 stoðsendingar.
2. Ásgeir Frank Ásgeirsson
Margir koma til greina, en Ásgeir Frank fannst mér afar sterkur á miðsvæðinu. Vel tímasettar tæklingar, dreifði spili vel og hjálpaði Aftureldingu að vinna miðvallarbaráttuna í dag.
Atvikið
Elmar Atli fékk rautt spjald og þar með fór leikurinn endanlega. Tvö spjöld sem er ekkert hægt að deila um sýndist mér.
Hvað þýða úrslitin?
Liðin eru nú jöfn að stigum og virðast ætla að sigla lignan sjó í sumar.
Vondur dagur
Varnarlína Vestra. Þeir skiptu úr fjögurra í fimm manna varnarlínu eftir skellinn gegn Fylki en þeir virka ennþá ansi ráðalausir. Færslur og dekkning virðast ekki á hreinu og nánast allar atrennur andstæðinga verða að dauðafæri.
Dómarinn - 7
Þónokkuð af vafaatriðum, vítaspyrnuköll og Elmar Atli sá rautt. Stundum skrítnir dómar inn á milli en ekkert sem hægt er að fullyrða að hann hafi gert rangt í stóru atvikunum.


