SKÝRSLAN: Víkingar með sigur í Kaplakrika
Hvað réði úrslitum?
Bæði lið voru góð í fyrri hálfleik og var þetta mjög jafnurleikur. Svo þegar Víkingar skora þá virðist FH-ingar missa mikið sjálfstraust og virðast aldrei eiga neinn sjens í að skora mark gegn Víkingum.
Bestu leikmenn
1. Ingvar Jónsson
Flottur í markinu hjá Víkingum. Varði flott færi, sem komu flest frá Björn Daníeli. Hélt hreinu og átti flottan leik.
2. Logi Tómasson
Skoraði fyrsta mark leiksins og átti mjög fínan leik. Var rétti maður á réttum stað í markinu.
Atvikið
Atvik leiksins var þegar Lennon nær að vippa boltanum yfir Ingvar og snedir boltann á Vuk Oskar. Oskar reynir að sparka boltanum inn í markið, en það virðist vera eins og að Karl Friðleifur tæklar niður Vuk Oskar þegar hann reynir að sparka í boltann.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur kemst nær Breiðablik og heldur 2. sætinu í deildinni með 28 stig í 13 leikjum. Á meðan eru FH dottnir niður í 10. sæti vegna markatölu með aðeins 10 stig í 13 leikjum.
Vondur dagur
FH liðið voru í miklu barsli gegn Víking. Vörn FH-inga, þá aðalega Eggert Gunnþór, áttu erfitt með þessa Víkings menn. Lennon og Matti Vill frammi sáust líka lítið sem ekkert í þessum leik í dag.
Dómarinn - 7
Helgi Mikael og teymið hanns áttu flottan leik í dag. Leyfði leikinn að fljóta og var ekki mikið að dæma á smá brot sem hélt leiknum gangandi. Smá óvissa með færið sem Vuk Oskar fékk, umdeilt hvort þetta hefði átt að vera rautt og víti fyrir FH.




