Fotbolti.net
@MistRunarsdottiMist Rúnarsdóttir
Mist Rúnarsdóttir
Lengjudeild kvenna
Kaplakrikavöllur
FH
FH
0 - 0
HK
HK
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Markverðirnir héldu toppslagnum markalausum

Hvað réði úrslitum?

Bæði lið byrjuðu leikinn kjarkað og ætluðu að ná í úrslit. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og markverðir beggja liða komu í veg fyrir mörk með frábærum tilþrifum. FH-ingar hertu tök sín á leiknum og réðu ferðinni að mestu í síðari hálfleiknum en aftasta lína HK var öflug með frábæra Audrey Baldwin í aðalhlutverki.

Bestu leikmenn

1. Audrey Baldwin

Rosaleg frammistaða hjá Audrey í markinu frá fyrstu mínútu og fram í uppbótartíma. Hún átti nokkrar geggjaðar vörslur, greip vel inn í fjölmargar hornspyrnur FH og kom oft langt út úr markinu til að vinna löngu boltana sem FH reyndi stundum fram völlinn.

2. Aldís Guðlaugsdóttir

Aldís er kornung en spilaði af miklum þroska. Átti tvær gríðarlega mikilvægar vörslur í fyrri hálfleiknum sem voru vendipunktar í leiknum. Það var minna að gera hjá henni í seinni hálfleiknum en hún greip vel inn í þegar á þurfti að halda og hélt ró og yfirvegun undir pressu í mikilvægum leik.

Atvikið

Báðir markverðir áttu mikilvægar vörslur sem væri hæglega hægt að nefna. Í uppbótartíma töpuðu HK-ingar hinsvegar boltanum klaufalega og eldfljótir FH-ingar keyrðu á þær. Elísa Lana var að finna skotið í teignum þegar Kristín Anítudóttir McMillan átti geggjaða tæklingu og stöðvaði þannig þessa síðustu alvöru sókn leiksins.

Hvað þýða úrslitin?

FH er áfram með 4 stiga forskot á HK og liðin sitja áfram í 1. og 2. sæti deildarinnar. Þessi úrslit gefa Tindastól hinsvegar færi á að lyfta sér upp í 2. sætið en Stólarnir eiga leik til góða og eru aðeins stigi á eftir HK. Þær eiga útileik gegn Fjarðabyggð/Hetti/Leikni á laugardag. Lokaspretturinn og baráttan um sæti í Bestu-deildinni að ári verður ROSALEG!

Vondur dagur

Það var hrikalega svekkjandi fyrir lykilmenn beggja liða, þær Sunnevu Hrönn hjá FH og Isabellu Evu hjá HK, að þurfa að fara útaf í svona mikilvægum leik vegna meiðsla. Batakveðjur á þær. Liðin þeirra þurfa svo sannarlega á þeim að halda á lokasprettinum.

Dómarinn - 7

Fínn leikur hjá tríóinu heilt yfir. Nokkur vafaatriði hér og þar eins og gengur og gerist. Þá líklega helst hvort Telma Hjaltalín hafi verið rangstæð þegar hún slapp í gegn í seinni hálfleiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.