Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Lengjudeild karla
Malbikstöðin að Varmá
Vindur og skýjað, 13 gráður úti.
Afturelding
Afturelding
4 - 1
KV
KV
Marciano Aziz 36'1 - 0Marciano Aziz (víti) 60'2 - 0Javier Ontiveros Robles 66'3 - 03 - 180' Askur JóhannssonMarciano Aziz 92'4 - 1
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Stórsigur heimamanna og Aziz með þrennu

Hvað réði úrslitum?

Fyrsti hálfleikur leiksins var mjög jafnur og kom fyrsta skota Aftureldings á 23 mínútu leiksins. En Afturelding sýndi allt annan karakter í seinni hálfleik og áttu KV menn enga séns í spilamennskuna sem Afturelding var að spila.

Bestu leikmenn

1. Marciano Aziz

Aziz á þetta skuldlaust skilið. Hann hefur haft mikla áhrif í góðgengis Afturelding seinni hluta tímabilsins og fékk loksins þessa langþráðu þrennu sýna. Aziz verður alveg örugglega valinn leikmaður umferðarinnnar.

2. Javier Ontiveros Robles

Það var hægt að velja nokkra úr þessu Aftureldingar liðið fyrir annað sæti. En Javier skoraði mark og lagði eitt upp. Hann átti mörg færi í leiknum sem hann gæti hafa gert betur úr, en flottur leikur hjá kappanum.

Atvikið

Að sjáflsögðu var atvik leiksins þegar Aziz fékk sýna vel skuldaða þrennu í lok leiksins. Gaman var líka að einmitt þegar flautað var til leiks, þá kom mikil rigning og fóru fólk að kaupa regnhlífar sem Afturelding voru að selja.

Hvað þýða úrslitin?

Afturelding fara upp í 5. sæti deildarinnar með 25 stig eftir 17 leiki. KV liggja ennþá í næst seinasta sæti með 11 stig eftir 17 leiki.

Vondur dagur

KV menn áttu engan séns í Afturelding í seinni hálfleik leiksins. Þeir áttu samt nokkur færi sem fyrri hálfleik sem þeir áttu að nýta betur, en þeim var vel refsað fyrir þeim mistök. Ég var samt sem áður sáttur með frammistöðuna hjá Ómari markverði og Grím Inga í þessum leik hjá KV.

Dómarinn - 8

Flottur dæmdur leikur hjá Gunnari Freyr og hanns teymi. Man aðeins eftir smá spurningjamerki þegar Hallur skorar fyrir Afturelding frá hornspyrnu, en markið er dæmt af vegna rangstöðu, ekki alveg viss um hvort það var réttur dómur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.