Fotbolti.net
Besta deildin
Baldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Besta-deild karla - Neðri hluti
Norðurálsvöllurinn
ÍA
ÍA
3 - 2
Fram
Fram
Eyþór Aron Wöhler 15'1 - 01 - 124' Albert Hafsteinsson1 - 237' Guðmundur Magnússon Ingi Þór Sigurðsson 56'2 - 2Eyþór Aron Wöhler 77'3 - 2
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

SKÝRSLAN: Skagamenn eru bestir með bakið uppvið vegg!

Bestu leikmenn

1. Eyþór Aron Wöhler - ÍA

Eyþór var duglegur að venju, lét mikið hafa fyrir sér, skoraði mjög gott mark eftir korter þar sem hann fór illa með Hlyn Atla og Orra Gunn á miðjum vellinum og svo skoraði hann sigurmarkið af harðfylgi.

2. Albert Hafsteinsson - Fram

Kom sprækur inn Framliðið eftir mikla bekkjarsetu undanfarið, skoraði jöfnunarmarkið og tók Eiðs Smára Guðjohnsen fagnið, sýna ESG stuðning eftir erfiðar fréttir síðustu daga.

Atvikið

Markið þar sem Fram kemst yfir, Gummi Magg fékk mark á silfurfati eftir ævintýralélega tilburði Árna Marinós, lætur boltann einhvernveginn skrúfast framhjá sér og það var eins og Árni hafi verið með lóð í skónum, átti að kasta sér á boltann og hirða hann löngu áður en Gummi setur hann yfir línuna.

Hvað þýða úrslitin?

Skagamenn eru á lífi! - koma sér nær pakkanum í baráttunni en Framarar sigla sinn lygna sjó í 8. sæti.

Vondur dagur

Hlynur Atli var ekki að gera gott mót í hafsentinum, lætur Eyþór pakka sér saman í fyrsta markinu, kom Eyþóri í annað gott færi í seinni hálfleik með ævintýralegum mistökum og Óli Íshólm þurfti að taka á honum stóra sínum til að bjarga Hlyn þar.

Dómarinn - 9,5

Frábærlega dæmdur leikur hjá Villa, eina spurningamerkið er hugsanleg rangstæða á Inga í jöfnunarmarki Skagans en það er ómögulegt að sjá það, erum búnir að rýna í það í fjölmiðlastúkunni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.