SKÝRSLAN: Ljubicic skaut KR í fjórða sætið með flautumarki
Hvað réði úrslitum?
Valsarar voru heilt yfir betri í þessum leik fannst mér en tókst ekki að skora nógu mikið af mörkum til að uppskera sigur. Veit ekki hvort ég eigi að rífa í frasann að 'KR hafi einfaldlega viljað sigurinn meira í lokin' en það allavega var lykt af því.
Bestu leikmenn
1. Aron Snær Friðriksson
Fékk tækifærið og greip það, sterk frammistaða.
2. Birkir Heimisson
Birkir var góður á miðjunni hjá Val og tók klókar ákvarðanir þegar hann bjó til færi fyrir samherja sína í seinni hálfleik.
Atvikið
Sigurmarkið. Ljubicicinn eins og Aron Snær kallar hann skoraði með skoti eftir fyrirgjöf eftir að uppgefinn uppbótartími var liðinn.
Hvað þýða úrslitin?
KR er komið upp fyrir Val í baráttunni um þetta ,,eftirsótta" 4. sæti. Valur vann einn leik, KR vann einn leik og eitt jafntefli varð í leikjum liðanna í sumar.
Vondur dagur
Ekkert undir og enginn eitthvað áberandi slakari en aðrir. Valsarar fengu góð færi til að skora úr og færanýting þeirra fær vondan dag.
Dómarinn - 8
Engin rosaleg atvik í þessum leik og góð stjórnun á þessum leik. Dæmdi ekkert þegar Birkir Heimisson tók eina alvöru tæklingu og Aron Þórður hoppaði upp úr henni - það vakti svona mesta athygli.




