SKÝRSLAN: Valur fór létt með Stjörnuna
Hvað réði úrslitum?
Valur náðu að opna Stjörnumenn vel, það gæti hafað spilað inn í að Stjarnan er að spila nýtt leikkerfi 3-4-3 og ekki búnir að venjast því nægilega vel.
Bestu leikmenn
1. Birkir Már Sævarsson
Skoraði og lagði upp í dag, getur varla beðið um meira frá hægri bakverði.
2. Aron Jóhannson
Aron skoraði og sýndi hvað hann býr yfir miklum gæðum í þessum leik, opnaði vörn Stjörnunnar ótal sinnum.
Atvikið
Fyrsta mark leiksins var af huggulegri gerðinni Aron Jó tók frábært þríhyrningsspil við Ágúst Hlyns í teig Stjörnunnar, Aron var í þröngu færi en neglir boltanum í þaknetið.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Valur kemst yfir Stjörnuna og er í 5. sæti deildarinnar en Stjarnan í því 6.
Vondur dagur
Haraldur Björnsson hefði mátt gera betur í öðru marki Vals en þar fór boltinn undir hann og í netið.
Dómarinn - 6
Guðgeir Einarsson var að dæma sinn fyrsta leik í efstu deild karla og stóð sig þokkalega. Þetta var erfiður leikur til að dæma, bæði lið spiluðu fast og setti Guðgeir ágæta línu í leiknum.




