Fotbolti.net
Besta deildin
Arnar Laufdal Arnarsson
Arnar Laufdal Arnarsson
Besta-deild karla - Neðri hluti
Framvöllur - Úlfarsárdal
Fram
Fram
3 - 0
FH
FH
Jannik Holmsgaard 11'1 - 0Jannik Holmsgaard 45'2 - 0Guðmundur Magnússon 52'3 - 0
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Danskir dagar í Úlfarsárdal

Hvað réði úrslitum?

Eins ömurlega klisjulegt og það hljómar en Fram nýttu bara sín færi meðan að FH gerðu það ekki, FH fengu helling af færum en boginn illa stilltur í dag meðan að Framarar voru með miðið rétt stillt í dag. Verður áhugavert að skoða xG tölurnar úr þessum leik

Bestu leikmenn

1. Jannik Pohl

Danski sóknarmaðurinn með tvö mörk í dag sem gerði mikið fyrir Framara og mjög góð mörk líka eftir frábæran undirbúning.

2. Ólafur Íshólm Ólafsson

Óli geggjaður í dag, alveg hreint ótrúlegt að FH skoruðu ekki í þessum leik og Óli átti stóran þátt í því.

Atvikið

Annað mark Jannik Pohl bara með síðustu spyrnu fyrri hálfleiks gerði bara út um vonir FH og eftir það slökknaði bara á þeim hvítklæddu

Hvað þýða úrslitin?

Framarar komast í 8.sæti deildarinnar með 31 stig meðan að FH-ingar eru enn í 10.sæti með sín 25 stig.

Vondur dagur

Kristinn Freyr var ekki góður í dag að mínu mati, ég þarf bara að fá meira frá Kidda í svona leikjum sem og öðrum, svo sem margir sem koma til greina en Kiddi fær þetta í dag.

Dómarinn - 6,5

Svona La La frammistaða hjá Pétri í dag, fannst línan vera smá undarleg en ekkert til að vera kvarta mikið yfir
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.