Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Keflavík
Keflavík
Besta-deild karla - Neðri hluti
HS Orku völlurinn
4 - 0
Fram
Fram
Dagur Ingi Valsson 35'1 - 0Patrik Johannesen 48'2 - 0Dani Hatakka 62'3 - 0Patrik Johannesen 81'4 - 0
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Leik lokið!
Keflavík tekur forsetabikarinn! Viðtöl og skýrsla væntanleg.
93. mín
Tíminn er að fara frá Guðmundi Magnússyni til að tryggja sér gullskóinn.
91. mín
Við fáum +3 í uppbót.
Fram
90. mín
InnAlex Freyr Elísson
ÚtTiago Manuel Da Silva Fernandes
89. mín
Adam Ægir með skot beint á Stefán Þór.
82. mín
Rúnar Gissurar með frábæra vörslu frá Delphin Tshiembe eftir horn!
Keflavík
81. mín
MAAAARK!

Patrik Johannesen (stoðsending: Adam Ægir Pálsson)

ER GULLBOLTINN Á LEIÐ TIL KEFLAVÍKUR!? Adam Ægir Pálsson vann boltann og bíður eftir hlaupinu hjá Patrik og læðir boltanum svo á hann og núna bregst Patrik honum ekki!
80. mín
Ásgeir Páll með flotta fyrirgjöf fyrir markið sem er hæluð rétt framhjá markinu.
Fram
78. mín
InnSigfús Árni Guðmundsson
ÚtTryggvi Snær Geirsson
Fram
78. mín
InnBreki Baldursson
ÚtÓskar Jónsson
77. mín
Frammarar vilja víti en Jóhann Ingi ekki á sama máli. Var lykt af þessu verður að viðurkennast en Keflvíkingar fóru í bakið á Gumma Magg sýndist mér.
76. mín
Frammarar við það að stinga Gumma Magg í gegn en flaggið á loft.
Fram
74. mín
Gult spjald

Orri Gunnarsson

Keflavík
73. mín
InnValur Þór Hákonarson
ÚtDagur Ingi Valsson
69. mín
Það er fátt sem bendir til þess að Guðmundur Magnússon nái gullskónum.
68. mín
Þórir Guðjónsson með skot hátt yfir markið.
Keflavík
67. mín
InnÁsgeir Páll Magnússon
ÚtRúnar Þór Sigurgeirsson
Keflavík
67. mín
InnSindri Þór Guðmundsson
ÚtMagnús Þór Magnússon (f)
Keflavík
67. mín
InnAdam Árni Róbertsson
ÚtJosep Arthur Gibbs
Keflavík
62. mín
MAAAARK!

Dani Hatakka (stoðsending: Rúnar Þór Sigurgeirsson )

KEFLAVÍK AÐ GANGA FRÁ ÞESSU! Frábær aukaspyrna frá Rúnari Þór beint á kollinn á Dani Hatakka.
Fram
60. mín
InnÞórir Guðjónsson
ÚtMagnús Þórðarson
54. mín
Rúnar Þór sparkar í Gumma Magg og stúkan tekur aðeins við sér.
Keflavík
48. mín
MAAAARK!

Patrik Johannesen

KEFLAVÍK TVÖFALDAR! Fred með mistök og sendir á Patrik Johannesen þakkar fyrir sig með góðu marki.
46. mín
Joey Gibbs sparkar okkur inn í síðustu 45 á tímabilinu.
Keflavík
46. mín
InnErnir Bjarnason
ÚtSindri Snær Magnússon
Fram
46. mín
InnOrri Gunnarsson
ÚtIndriði Áki Þorláksson
45. mín
+1 Keflavík leiðir sanngjarnt í hálfleik. Spurning hvort að Adam Ægir fái þessa stoðsendingu skráða en þá er hann jafn Tiago í baráttunni um Gullboltann.
45. mín
Við fáum +1 í uppbót.
43. mín
PATRIK JOHANNESEN!?!? Adam Ægir fær frábæra sendingu fyrir markið sem hann sker út á Patrik Johannesen sem lætur Stefán Þór verja frá sér en fær boltann aftur og lætur hann AFTUR! verja frá sér í yfirburðarstöðu!
Keflavík
35. mín
MAAAARK!

Dagur Ingi Valsson (stoðsending: Adam Ægir Pálsson)

KEFLAVÍK ER KOMIÐ YFIR!! Adam Ægir með boltann út í teig sem fer af Frammara, gott ef það er ekki varið út í teig af Stefán Þór og til Dags sem hefur nánast opið mark fyrir framan sig og leggur hann í netið.
32. mín
Gummi Magg með þrumuskot í slánna! Hann ætlar sér gullskóinn.
32. mín
Már Ægisson með flottan bolta fyrir markið sem Gummi Magg kemur á ferðinni á fjærstöng og skotið í hliðarnetið en það plataði þó nokkra í stúkunni sem fögnuðu.
30. mín
Tiago með fallegan bolta fyrir markið sem Gummi Magg skutlar sér á en Rúnar GIssurar er örlítið fljótari út á undan.
29. mín
Keflavík eru að koma sér í færin en vantar svolítið upp á að klára þau.
25. mín
Keflavík með hornspyrnu sem sendar utan teigs hjá Sindra Snær sem sendir hann út á Adam Ægir sem lyfitr boltanum skemmtilega fyrir markið á Joey Gibbs sem skallar boltann afturfyrir sig á markið sem mér sýndist Stefán Þór verja í slánna en í slánna fór allavega boltinn.
20. mín
Nacho með fyrirgjöf fyrir markið sem Rúnar Þór skallar en rétt yfir markið.
16. mín
Adam Ægir með aukaspyrnu sem er of innarlega á fjærstöng fyrir Nacho Heras sem nær ekki að stýra skallanum í átt að marki.
14. mín
Skemmtilegt spil milli Nacho Heras og Vals Inga en skotið hjá Nacho er hátt yfir.
12. mín
Keflvíkingar verið hættulegri en Frammarar eru að verjast þeim vel.
6. mín
Þættinum barst bréf. Almarr Ormarsson leikrmaður Fram sem er í leikbanni í dag hefur lagt skónna á hilluna frægu.
4. mín
Keflvíkingar með flotta sókn sem endar með föstu skoti frá Rúnari Þór Sigurgeirs sem Frammarar ná að henda sér fyrir.
3. mín
Adam Ægir með fast skot en Stefán Þór ver það vel.
2. mín
Fred með fyrirgjöf ætlaða Gumma Magg en Rúnar Gissurar grípur vel inn í.
1. mín
Það eru Frammarar sem sparka okkur af stað.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár Keflavík gerir tvær breytingar á sínu liði frá síðasta leik en inn koma Rúnar Gissurarson í markið fyrir Sindra Kristinn Ólafsson og Valur Ingi Valsson fyrir Frans Elvarsson sem tekur út leikbann. Frammarar gera þá þrjár breytingar á sínu liði en inn koma einnig í markmannsskipti Stefán Þór Hannesson fyrir Ólaf Íshólm Ólafsson, Indriði Áki Þorláksson og Magnús Þórðarson fyrir Almarr Ormarsson sem tekur út leikbann og Jannik Pohl.
Fyrir leik
Dómari ársins á flautunni Jóhann Ingi Jónsson heldur utan um flautuna í kvöld en hann var valinn dómari ársins 2022 af Fótbolta.net. Annað árið í röð hlýtur hann þessa viðurkenningu. Honum til aðstoðar í dag verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Birkir Sigurðarson. Elías Ingi Árnason verður á skiltinu og til taks ef eitthvað kemur upp. Einar Örn Daníelsson er svo eftirlitsdómarinn hér í dag.
Fyrir leik
Boð og bönn Frans Elvarsson leikmaður Keflavíkur og Almarr Ormarsson taka út leikbönn í dag og eru því ekki með.
Fyrir leik
Staðan fyrir lokaumferðina í neðri hluta 1.Keflavík 34 stig (+4) 2.Fram 31 stig (-6) 3.ÍBV 29 stig (-8) 4.FH 25 stig (-9) ------------------ 5.ÍA 22 stig (-28) 6.Leiknir 21 stig (-37)
Fyrir leik
Það er því ljóst að tvenn af þrem einstaklingsverðlaunum verða mögulega veitt hérna en ansi líklegt verður að teljast að Gullbolti Nike fer til annaðhvort Tiago eða Adams Ægirs og þá eru möguleikar á því að Gullskór Nike endi hjá Guðmundi Magnússyni en Guðmundur skoraði í báðum hinum leikjunum gegn Keflavík fyrr á tímabilinu en Fram tapaði reyndar þeim báðum, 3-1 og 4-8.
Fyrir leik
Tiago og Adam Ægir Pálsson eru svo í baráttu um stoðsendingarkónginn en Tiago er búin að jafna metið fyrir flestar stoðsendingar á einu tímabili (13 talsins) en Adam Ægir Pálsson er einni stoðsendingu á eftir eða með 12.
Fyrir leik
Mestu spennuna ef svo má að orði komast má eflaust finna í þessum leik. Þegar allt annað er orðið klárt er enn barátta um einstaklingsverðlaunin og sú barátta fær hátt undir höfuð hér í dag. Guðmundur Magnússon er jafn Nökkva Þeyr Þórissyni í baráttunni um gullskóinn en þeir eru jafnir með 17 mörk. Guðmundur var valinn í lið ársins í deildinni af Fótbolta.net en það var opinberað fyrir viku síðan.
Fyrir leik
Það skýrist í þessum leik hver mun standa uppi með "forsetabikarinn" en tölfræðilega þá getur Fram komist upp fyrir Keflvíkinga með stórsigri.
Fyrir leik
Heil og sæl lesendur góður og verið hjartanlega velkominn í þessa þráðbeinu textalýsingu frá HS Orku vellinum þar sem Keflavík og Fram mætast í lokaumferð Íslandsmótsins.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.