Fotbolti.net
Besta deildin
@gummi_aaGuðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
KR
KR
Besta-deild karla - Efri hluti
Meistaravellir
Mjög fínar miðað við tíma árs
0 - 2
Stjarnan
Stjarnan
0 - 150' Eggert Aron Guðmundsson0 - 257' Óskar Örn Hauksson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Leik lokið!
KR endar í fjórða sæti, Stjarnan í fimmta sæti og Valur í því sjötta. Lokaumferðin að baki! Takk fyrir samfylgdina í dag og í allt sumar kæru lesendur.
90. mín
Þetta er bara að fjara út. Stjarnan vinnur þennan leik, það er hægt að bóka það.
90. mín
Fimm mínútum bætt við.
89. mín
Sigurður Bjartur enn og aftur í fínu færi en er of lengi. Henrik Máni gerir vel í því að henda sér fyrir.
Stjarnan
88. mín
InnHafþór Andri Benediktsson
ÚtÞórarinn Ingi Valdimarsson
Stjarnan
88. mín
InnÖrvar Logi Örvarsson
ÚtÓskar Örn Hauksson
86. mín
ÞVÍLÍKUR SPRETTUR! Daníel Finns með þvílíkt flottan sprett, tekur einn klobba en á svo skot sem svífur yfir markið. Þetta var frábærlega gert, fram að skotinu.
85. mín
Fimm mínútur eftir af venjulegum leiktíma!
83. mín
Þetta voru síðustu breytingar KR í leiknum.
KR
83. mín
InnPontus Lindgren
ÚtÞorsteinn Már Ragnarsson
KR
83. mín
InnArnór Sveinn Aðalsteinsson
ÚtGrétar Snær Gunnarsson
82. mín
Atli með skot með hægri fyrir utan teig sem endar í glugga á vallarhúsinu.
80. mín
Óskar Örn í hættulegri stöðu en Grétar Snær á enn eina ferðina góða tæklingu. Grétar búinn að vera besti leikmaður KR í þessum leik.
79. mín
KR er áfram að taka fjórða sætið þar sem Valur er að tapa fyrir norðan. Stjarnan er að enda í fjórða sæti.
78. mín
Atli með skot af 25 metrunum sem Haraldur ver þægilega. Atli hefur mikið reynt en ekki alveg fundið fjölina.
Stjarnan
76. mín
InnHelgi Fróði Ingason
ÚtEggert Aron Guðmundsson
Stjarnan
76. mín
InnAdolf Daði Birgisson
ÚtJóhann Árni Gunnarsson
73. mín
Þorsteini Má er enginn greiði gerður með því að leika á móti Ísaki Andra í síðasta leik sínum á ferlinum. Ísak búinn að eiga stórleik!
73. mín
KR-ingar í stúkunni eru orðnir pirraðir á sínum mönnum, hversu illa þeir eru að fara með góðar stöður.
72. mín
Ísak Andri með skot að marki sem endar inni, en hann hafði viðkomu í öðrum leikmanni og rangstaða dæmd. Ég held að það sé verið að dæma rangstöðu á Eggert Aron.
KR
70. mín
InnGunnar Magnús Gunnarsson
ÚtFinnur Tómas Pálmason
70. mín
Atli Sigurjóns með tvær skottilraunir sem fara báðar í varnarmann.
69. mín
Kiddi Jóns gerir vel að koma sér í fínt færi inn á teignum en skot hans fer í varnarmann áður en Haraldur handsamar boltann þægilega.
67. mín
Halli er staðinn upp og þá getur leikurinn haldið áfram.
65. mín
Halli liggur enn eftir og það er verið að huga að honum.
64. mín
Sigurður Bjartur sleppur í gegn en Haraldur gerir gríðarlega vel og kemst í boltann. Þeir lenda í samstuði og Halli liggur eftir. Bóas er með rauða spjaldið á lofti í stúkunni en það væri gríðarlega strangur dómur. Ekkert víti á þetta, Halli gerði mjög vel.
61. mín
KR er búið að fara afar illa með góð færi og góðar stöður í þessum leik. Þeim hefur verið refsað fyrir það.
60. mín
Ísak Andri er að enda tímabilið með látum. Búinn að leggja upp tvö mörk.
Stjarnan
60. mín
InnDaníel Finns Matthíasson
ÚtRóbert Frosti Þorkelsson
58. mín
Óskar Örn Hauksson.
58. mín
Áður en markið kom þá átti Kiddi Jóns býsna huggulega sendingu fyrir markið en Sigurður Bjartur missti af boltanum. Svo fer Stjarnan upp í skyndisókn og skorar.
Stjarnan
57. mín
MAAAARK!

Óskar Örn Hauksson (stoðsending: Ísak Andri Sigurgeirsson)

Aftur skorar Stjarnan aftur skyndisókn! Og það er Óskar Örn!!! Hann skorar á gamla heimavellinum og fagnar auðvitað ekki af virðingu við KR. Ísak Andri, sem fékk verðlaun fyrir leik fyrir að vera efnilegasti leikmaður deildarinnar, á þetta mark nánast skuldlaust. Ótrúleg, ótrúleg sending sem hann á yfir á Óskar!
55. mín
Atli Sigurjóns reynir skot utarlega í teignum, rétt yfir markið. Þessar fyrstu tíu mínútur í seinni hálfleik hafa verið líflegri en allur fyrri hálfleikurinn.
55. mín
Beitir í gamla góða skógarhlaupinu en nær að bjarga sér fyrir horn.
53. mín
Kennie með skot sem fer í varnarmann og svo koma Stjörnumenn boltanum í burtu.
53. mín
KR fær aðra hornspyrnu.
KR
52. mín
InnKennie Knak Chopart
ÚtKristján Flóki Finnbogason
51. mín
KR hafði byrjað fyrri hálfleikinn mun betur en fá svo þetta mark í andlitið. Hvernig svara þeir? Atli Sigurjóns átti rétt í þessu fínt skot sem fer af varnarmanni og rétt yfir. KR fær hornspyrnu.
50. mín
Eggert Aron Guðmundsson.
Stjarnan
50. mín
MAAAARK!

Eggert Aron Guðmundsson (stoðsending: Ísak Andri Sigurgeirsson)

MARK!!!!!!! Frábær skyndisókn hjá Stjörnunni!! Ísak Andri dregur boltann út í teiginn og finnur Eggert Aron sem er mjög yfirvegaður og setur boltann í stöngina og inn. Glæsileg samvinna hjá þessum tveimur gríðarlega efnilegu leikmönnum!
49. mín
KR að byrja seinni hálfleikinn vel, betur en Stjarnan.
49. mín
Atli Sigurjóns kemur sér í skotfæri og á gott skot sem Haraldur gerir vel í að verja!!
46. mín
FÆRI!!! Besta fær leiksins komið eftir um 30 sekúndur í seinni hálfleiknum. Kiddi Jóns með sendingu fyrir, Stefán Árni framlengir boltanum og Sigurður Bjartur er með opið markið fyrir framan sig en setur boltann fram hjá. Ekki alveg verið dagurinn fyrir Sigurð Bjart sem fór illa með gott færi í fyrri hálfleiknum...
46. mín
LEIKURINN ER HAFINN AFTUR!
45. mín
Enginn uppbótartími, sem betur fer. Leiðinlegur hálfleikur að baki og staðan enn markalaus. Ekki mikil gæði og spurning hvort menn séu bara komnir til Tenerife í huganum.
43. mín
ÍA er komið yfir í Kaplakrika. Þurfa bara níu mörk í viðbót!
43. mín
Eggert Aron í hættulegri stöðu en Grétar Snær bjargar aftur vel.
42. mín
Finnur Tómas með sendingu yfir á Grétar sem fer beint út af og í innkast.
38. mín
Það er ekki mikið hægt að skrifa um þennan fyrri hálfleik. Einn leiðinlegasti hálfleikur sem ég hef séð í Bestu deildinni á þessari leiktíð.
38. mín
Lýsandi fyrir þennan leik: Stjarnan í ágætri sókn sem endar með því að Jóhann Árni á slakt skot sem fer beint í fyrsta varnarmann.
32. mín
KA er komið yfir gegn Val á Akureyri og Lasse Petry er búinn að fá rautt spjald. Það eru því ansi miklar líkur á því að KR nái að landa fjórða sætinu. Lasse Petry.
30. mín
Það er ekki mikið að frétta í þessum leik.
27. mín
Geggjaðar veitingar hjá KR-ingum. Það var pizza að detta í hús.
24. mín
Jóhann Árni með skot rétt fyrir utan teig sem Beitir fer aftur fyrir endamörk. Þessi leikur er aðeins að opnast!
23. mín
Eftir hornspyrnu Stjörnunnar fer KR upp í skyndisókn. Kiddi Jóns með boltann á hægri fætinum og finnur Aron Þórð í teignum, en hann er ekki í miklu jafnvægi og setur boltann langt fram hjá markinu úr fínni stöðu.
22. mín
Akkúrat þegar ég skrifa það þá kemst Stjarnan í fína stöðu. Ísak Andri með stórhættulega fyrirgjöf en Grétar Snær á svo frábæra tæklingu og bjargar!
22. mín
Búið að vera afskaplega bragðdaufur leikur til þessa. KR fengið besta færi leiksins til þessa.
17. mín
Ísak Andri ósáttur við það að fá ekki sendinguna frá Einari Karli í gegn. Var að bjóða upp á gott hlaup.
16. mín
FÆRI! Jæja, loksins gerist eitthvað. Þorsteinn Már með flottan sprett og finnur Sigurð Bjart í teignum. Hann er í mjög fínu færi, en skot hans er frekar slakt og Haraldur ver þetta frekar þægilega.
13. mín
Róbert Frosti, sem er sonur fjölmiðlamannsins Mána Péturs, er að leika í fremstu víglínu hjá Stjörnunni. Hann er með alvöru töffaraklippingu - Sturla Atlas klippingu - hér í dag.
10. mín
Stjarnan er í hættulegri skyndisókn en Eggert Aron er og lengi að athafna sig og missir boltann. Stjarnan fær svo innkast og í kjölfarið á því hornspyrnu.
8. mín
Einar Karl með huggulegan bolta fyrir og Óskar Örn stingur sér fram fyrir en er dæmdur rangstæður. Náði hvort sem er ekki nægilega vel til boltans.
6. mín
Ægir Jarl fær boltann á teignum og nær að snúa, en skot hans fer beint á Harald í markinu.
4. mín
Stjarnan er líka að stilla upp í 4-2-3-1: Haraldur Elís Rafn - Henrik - Sindri Þór - Þórarinn Ingi Jóhann Árni - Einar Karl Óskar - Eggert Aron - Ísak Andri Róbert Frosti
4. mín
Atli reynir fyrirgjöf frá hægri sem fer bara upp í röð Z.
3. mín
KR er að stilla upp í 4-2-3-1: Beitir Þorsteinn Már - Finnur Tómas - Grétar Snær - Kristinn Aron Þórður - Ægir Jarl Atli - Sigurður Bjartur - Stefán Árni Kristján Flóki.
1. mín
Það heyrist að Þorsteinn Már Ragnarsson sé í dag að spila sinn síðasta leik á ferlinum.
1. mín
Þá er leikurinn loksins farinn af stað!
Fyrir leik
Ísak Andri Sigurgeirsson fær verðlaun fyrir leik fyrir að vera efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar. Það voru leikmenn deildarinnar sem kusu um það. Pétur Guðmundsson fær þá verðlaun fyrir að vera besti dómarinn. Ísak Andri Sigurgeirsson.
Fyrir leik
Pálmi gekk út á völl með KR-liðinu. Hann fær blómvönd og málverk. Það er staðið upp í stúkunni. Óskar Örn Hauksson, fyrrum leikmaður KR, gaf Pálma blómvönd fyrir hönd Stjörnunnar.
Fyrir leik
Pálmi heiðraður Pálmi Rafn Pálmason verður heiðraður fyrir leik. Pálmi lék sinn síðasta leik á ferlinum á mánudag í jafntefli KR gegn Víkingi. Fyrirliðinn fékk að líta gula spjaldið og tekur út bann í lokaumferðinni. Í viðtali við Fótbolta.net eftir leik tilkynnti hann að hann hefði verið að spila sinn síðasta leik á ferlinum. Pálmi kom í KR frá Lilleström í Noregi fyrir tímabilið 2015 og hefur verið stórkostlegur fyrir félagið. Pálmi mun áfram starfa fyrir KR en hann er núna orðinn íþróttastjóri félagsins. Til hamingju með frábæran feril!
Fyrir leik
Ég held að það sé frítt á völlinn hér í dag en stúkan er langt frá því að vera þéttsetin. Enn tíu mínútur í leik.
Fyrir leik
Vil minna á það að allir leikir dagsins eru í beinni textalýsingu hjá okkur, en allir leikirnir í lokaumferðinni hefjast á sama tíma - klukkan 13:00.
Fyrir leik
Í liði KR er Þorsteinn Már Ragnarsson að mæta sínum gömlu félögum í Stjörnunni og í liði Stjörnunnar er Óskar Örn Hauksson að mæta sínum gömlu félögum. Óskar er einhver mesta goðsögn í sögu KR en hann gekk í raðir Stjörnunnar fyrir tímabil.
Fyrir leik
BYRJUNARLIÐIN Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, gerir fjórar breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Víkingi. Pálmi Rafn Pálmason og Theodór Elmar Bjarnason taka út leikbann og Aron Þórður Albertsson og Sigurður Bjartur Hallsson taka þeirra sæti í liðinu. Beitir Ólafsson kemur þá í markið og Þorsteinn Már Ragnarsson tekur stöðu Kennie Chopart. Magnús Valur Valþórsson sem fæddur er árið 2007 er á bekknum og Kristján Flóki Finnbogason er með fyrirliðabandið. Ágúst Gylfason, þjálfari Stjörnunnar, gerir fjórar breytingar frá tapinu gegn KA. Daníel Laxdal tekur út leikbann og Daníel Finns Matthíasson tekur sér sæti á bekknum. Þeir Björn Berg Bryde og Guðmundur Baldvin Nökkvason eru ekki í hóp. Inn í liðið koma þeir Henrik Máni B. Hilmarsson, Óskar Örn Hauksson, Eggert Aron Guðmundsson og Einar Karl Ingvarsson.
Fyrir leik
Daníel Laxdal er í leikbanni hjá Stjörnunni í dag, en hjá KR eru Pálmi Rafn Pálmason og Theodór Elmar Bjarnason í banni.
Fyrir leik
Fyrri leikir þessara liða í sumar Þessi tvö lið hafa mæst tvisvar á tímabilinu. Stjarnan 1 - 1 KR (20. júní) KR 3 - 1 Stjarnan (11. september)
Fyrir leik
Stóra Kjartan Henry málið Það hefur litað síðustu vikur hjá KR-ingum. KR ákvað að nýta sér ákvæði í samningi Kjartans á dögunum og má gera ráð fyrir því að hann hafi leikið sinn síðasta leik fyrir félagið. Með því að smella hérna er hægt að horfa á ítarlegt viðtal við Rúnar, þjálfara KR, þar sem hann ræðir um Kjartan Henry. Kjartan Henry Finnbogason.
Fyrir leik
Lokaumferðin fer fram í heild sinni í dag. laugardagur 29. október Besta-deild karla - Efri hluti 13:00 KA-Valur 13:00 Breiðablik-Víkingur 13:00 KR-Stjarnan Besta-deild karla - Neðri hluti 13:00 FH-ÍA 13:00 Keflavík-Fram 13:00 ÍBV-Leiknir
Fyrir leik
Það er þannig séð ekkert undir í þessum leik. KR er í fjórða sæti og Stjarnan er í sjötta sæti. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, getur kannski mótíverað sína menn þannig að KR tryggir sér fjórða sætið með stigi. Stjarnan getur hæst endað í fimmta sæti. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR.
Fyrir leik
Góðan daginn kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik KR og Stjörnunnar í lokaumferð Bestu deildar karla. Endilega fylgist með!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.