SKÝRSLAN: Markaflóðgáttir opnast
Hvað réði úrslitum?
Ég veit eiginlega ekki hvað hægt er að segja að hafi ráðið úrslitum í þessum leik. Gæði Ísak Andra? Mörk Guðmundar Baldvins? Ákefð Stjörnunnar? Liðsheildin eins og Ágúst Gylfa vildi meina. Ætli að það sé ekki samspil allra þessa þátta.
Tek þó ekkert af HK, þeir skemmtu áhorfendum gríðarlega vel einnig og þessi leikur var hrein unun að horfa á.
Tek þó ekkert af HK, þeir skemmtu áhorfendum gríðarlega vel einnig og þessi leikur var hrein unun að horfa á.
Bestu leikmenn
1. Ísak Andri Sigurgeirsson
Þrjár stoðsendingar og eitt mark. Ef það verðskuldar ekki mann leiksins að þá er ekkert sem gerir það. Gæðin sem þessi drengur sýndi í kvöld voru svakaleg.
2. Guðmundur Baldvin Nökkvason
Skoraði tvö mörk og hefði geta sett það þriðja ef hann hefði skorað úr vítaspyrnunni.
Atvikið
Ætla að setja þriðja mark Stjörnunnar sem atvik leiksins. Með því jöfnuðu þeir leikinn og náðu yfirhöndinni í leiknum og virtust slá HK svoldið út af laginu.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan lyftir sér upp úr fallsætinu og skorar mörk, eitthvað sem hafði vantað í sumar. Eru komnir í 9. sæti deildarinnar.
HK sitja í fjórða sætinu og þurfa að byggja á þessari sóknarframmistöðu en bæta varnarleikinn.
HK sitja í fjórða sætinu og þurfa að byggja á þessari sóknarframmistöðu en bæta varnarleikinn.
Vondur dagur
Varnarleikur HK var sérstaklega í seinni hálfleik mjög slakur og því fær öll vörnin þetta á sig.
Dómarinn - 8,5
Sigurður Hjörtur dæmdi þennan leik vel. Lét boltann fljóta og var ekki að dæma að óþörfu.




