SKÝRSLAN: Vítaklúður í Vestmannaeyjum
Hvað réði úrslitum?
Að ÍBV hafi farið inn í hálfleik 1-0 yfir og voru með vindinn í bakið í seinni. Selfoss fékk alveg sénsa til að jafna leikinn en þær hefðu helst þurft að skora í fyrri hálfleik.
Bestu leikmenn
1. Haley Marie Thomas
Fyrirliðinn steig varla feilspor í dag. Bjargaði ÍBV oft og var ekki langt frá því að pota inn einu marki.
2. Thelma Sól Óðinsdóttir
Vann nánast öll sín einvígi á miðjunni og gerði mjög vel með boltann. Fullkomnar aðstæður fyrir Thelmu að vera í stanslausri baráttu um boltann.
Atvikið
Vítaklúður Jimena Fuentes. Í fyrsta lagi bara lélegt víti en ef hún hefði skorað hefðum við fengið allt annan seinni hálfleik.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV trónir á toppi Bestu deildarinnar og Selfoss eru í fallsæti.
Vondur dagur
Jimena Fuentes klúðraði víti en fyrir utan það var hún mjög góð. Erfitt að taka leikmenn fyrir við þessar aðstæður.
Dómarinn - 8
Dómaratríóið stóð sig vel við erfiðar aðstæður. Ekki mikið að kvarta yfir.



