SKÝRSLAN: Breiðablik með sterkan sigur á Val
Hvað réði úrslitum?
Gríðarlega mikið stopp í þessum leik sem drap niður tempóið og kannski gæðin sem leikurinn hefði getað sýnt okkur. Ekki mikið um opin færi en það sem skildi á milli var að Breiðablik nýtti sitt færi í leiknum.
Bestu leikmenn
1. Andri Rafn Yeoman
Var virkilega öflugur í dag. Veit ekki til þess að Andri Rafn Yeoman hafi nokkurtíman átt slakan leik á ferlinum en hann átti ekki í miklu brasi í dag og leysti öll sín verkefni mjög vel.
2. Stefán Ingi Sigurðarson
Skoraði markið sem skildi á milli. Var að koma sér í færi líka en vantaði kannski aðeins uppá snertingar og síðustu sendinguna til að gera meira í þessum leik en var þó að koma sér í færin. Væri líka hægt að nefna varnarlínu Breiðabliks sem skellti bara í lás.
Atvikið
Damir var ekki langt frá því að skora sjálfsmark. Fór um nokkra í stúkunni en sultu slakur Damir kom boltanum svo bara frá þegar hann og Anton Ari voru í einhverju samskiptaleysi í uppbótartímanum.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik stökkva yfir Valsmenn í 2.sætið með 21 stig og elta topplið Víkings sem leiðir deildinna með fullt hús eða 27 stig eftir 9 leiki.
Vondur dagur
Sóknarleikur Vals sem hefur farið með himinskautum í upphafi móts mætti bara ekki til leiks í dag. Hvað veldur er erfitt að segja en Valur hefur núna ekki skorað í tveim leikjum í röð.
Dómarinn - 4
Jóhann Ingi og hans teymi voru að stöðva leikinn alltof oft. Samræmið var lítið og línan sem dreginn var fyrir hvenær átti að spjalda og ekki var furðuleg líka. Jóhann Ingi og hans teymi eru hörku dómarar en þau hittu bara ekki á daginn sinn.




