Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta-deild kvenna
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
3 - 0
Keflavík
Keflavík
Anna María Baldursdóttir 5'1 - 0Jasmín Erla Ingadóttir 24'2 - 0Aníta Ýr Þorvaldsdóttir 62'3 - 0
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Myndir: Hrefna Morthens

SKÝRSLAN: Öruggt hjá Stjörnunni

Hvað réði úrslitum?

Úrslitin voru aldrei í neinni hættu. Stjarnan leiddi þennan leik alveg frá byrjun og unnu mjög svo sanngjarnt hér í kvöld. Keflavík voru varla með í fyrri hálfleik en voru þó ögn frískari í þeim síðari en það dugði bara ekki til.

Bestu leikmenn

1. Sædís Rún Heiðarsdóttir

lagði upp 2 mörk - Var alltaf hætta þegar hún tók aukaspyrnur eða hornspyrnur.

2. Aníta Ýr Þorvaldsdóttir

Kláraði leikinn fyrir Stjörnuna. Var töluvert að ógna sérstaklega í síðari hálfleik og skoraði svo frábært mark sem var verðskuldað.

Atvikið

Annað mark Stjörnunnar. Sædís tekur aukaspyrnu sem allir gera ráð fyrir að einhver sé að fara ráðast á en endar svo á að allir missa af boltanum og þar á meðal Vera í marki Keflavíkur og Stjarnan náði tveggja marka forystu.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan fer í 10 stig og heldur pressu á toppliðum deildarinnar. Keflavík eru áfram með 7 stig um miðja deild.

Vondur dagur

Erfitt að taka einhverja út fyrir sviga en aftasta lína Keflavíkur kom oft ansi illa undan sóknarlotum Stjörnunnar og eiga Veru Varis mikið að þakka að ekki fór verr. Linli Tu átti heldur ekkert spes leik frammi hjá Keflavík en fékk vissulega litla hjálp.

Dómarinn - 9

Flottur leikur hjá teyminu í dag. Eflaust hægt að setja út á eitthvað en heilt yfir var þetta mjög vel dæmdur leikur og fékk að fljóta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.