Fotbolti.net
Besta deildin
@utanvallarSævar Þór Sveinsson
Sævar Þór Sveinsson
Besta-deild kvenna
AVIS völlurinn
10°c og logn
Þróttur R.
Þróttur R.
1 - 2
Valur
Valur
0 - 14' Bryndís Arna Níelsdóttir0 - 212' Bryndís Arna NíelsdóttirTanya Laryssa Boychuk 51'1 - 2
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Valur í efsta sæti eftir toppslaginn

Hvað réði úrslitum?

Valskonur mættu tilbúnar í leikinn og voru komnar í 2-0 forystu eftir stundarfjórðung. Eftir það var á brattann að sækja fyrir Þrótt sem kom sér þó inn í leikinn eftir því sem leið á hann.

Bestu leikmenn

1. Bryndís Arna Níelsdóttir

Var öflug í dag og skorar auðvitað tvö mörk sem er ávallt gott fyrir framherja og fer eflaust sátt á koddann.

2. Elísa Viðarsdóttir

Elísa var öflug í kvöld sem er nú ekkert nýmæli. Stoðsending hennar í seinna marki Bryndísar var úr efstu hillu og því kemst hún á listann. Nokkrar aðrar góðar líka í kvöld.

Atvikið

Markvarsla Fanneyjar á 35. mínútu leiksins var stórkostleg. Alvöru sjónvarpsvarsla eins og sérfræðingarnir kalla þetta. Pétur talaði um í viðtali eftir leikinn að kvennaboltinn væri m.a. lítið auglýstur. Þeir sem standa að baki deildarinnar geta sleppt því að borga fúlgur fjár til einhverjar auglýsingastofu, notið þessa vörslu í auglýsingar fyrir deildina. Getið þakkað mér síðar.

Hvað þýða úrslitin?

Valur situr á toppi deildarinnar eftir kvöldið með 13 stig. Þróttur dettur hins vegar niður í fjórða sæti eftir leikinn. Það er stutt á milli í þessu.

Vondur dagur

Lið Þróttar sem spilaði fyrsta korterið fær þennan stimpil á sig í dag. Þetta var ekki liðið sem maður hefur séð undanfarnar vikur. Þær komu inn í leikinn hálfsofandi og uppskáru eftir því. Þær rönkuðu þó við sér eftir að hafa fengið tvö mörk á sig og lifnuðu aðeins við. Þetta lið er miklu betra en það sem maður sá í upphafi leiks.

Dómarinn - 7

Fínasti leikur hjá Þórði. Mér fannst hann þó dæma vitlaust í seinni hálfleik þegar hann dæmdi brot á Ásdísi sem var að sleppa í gegn eftir baráttu við Ingunni sem féll í jörðina. Það var nú einn ungur Þróttari sem öskraði einu sinni „Dómarinn á Ölver“, ég verð nú að vera ósammála þeim unga herramanni. Hann hefur verið eitthvað blóðheitur drengurinn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.