Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
Grótta
4
4
Víkingur R.
0-1 Linda Líf Boama '14
0-2 Bergdís Sveinsdóttir '42
Ariela Lewis '45 1-2
Pétur Rögnvaldsson '45
Tinna Jónsdóttir '45 2-2
Tinna Jónsdóttir '74 3-2
3-3 Sigdís Eva Bárðardóttir '81
Margrét Lea Gísladóttir '84 4-3
4-4 Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir '92
06.07.2023  -  19:15
Vivaldivöllurinn
Lengjudeild kvenna
Aðstæður: Sturlað veður, sól og 15 stiga hiti
Dómari: Abdelmajid Zaidy
Maður leiksins: Tinna Jónsdóttir
Byrjunarlið:
1. Cornelia Baldi Sundelius (m)
4. Hallgerður Kristjánsdóttir
5. Rakel Lóa Brynjarsdóttir
9. Tinna Jónsdóttir
10. Margrét Lea Gísladóttir ('85)
10. Lovísa Davíðsdóttir Scheving ('71)
14. Nína Kolbrún Gylfadóttir (f) ('85)
22. Hannah Abraham
23. Ariela Lewis ('78)
25. Lilja Lív Margrétardóttir
29. María Lovísa Jónasdóttir
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
2. Kolfinna Ólafsdóttir ('71)
3. Margrét Rán Rúnarsdóttir
6. Telma Sif Búadóttir ('85)
15. Mist Þormóðsdóttir Grönvold ('85)
16. Elín Helga Guðmundsdóttir
17. Patricia Dúa Thompson
39. Lilja Davíðsdóttir Scheving ('78)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Pétur Rögnvaldsson (Þ)
Gareth Thomas Owen
Gabríel Hrannar Eyjólfsson
Melkorka Katrín Fl Pétursdóttir
Erla Ásgeirsdóttir
Hildur Guðný Káradóttir

Gul spjöld:
Rakel Lóa Brynjarsdóttir ('65)
Nína Kolbrún Gylfadóttir ('67)

Rauð spjöld:
Pétur Rögnvaldsson ('45)
Leik lokið!
VÁ þetta er búið! Zaidy flautar af þennan svakalega leik. Maður er bara orðlaus, geðveikur leikur!

Skýrsla og viðtöl seinna í kvöld, TAKK FYRIR MIG
92. mín MARK!
Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir (Víkingur R.)
Stoðsending: Sigdís Eva Bárðardóttir
Þvílíkar loka mín 4-4!!! Sigdís tekur aukaspyrnu frá miðju og Grótta í brasi með að hreinsa og Kolbrún leggur hann framhjá Corneliu! Fáum við winner?
90. mín
5 mín bættar við!
88. mín
Alvöru síðustu mín Víkingar liggja á vörn Gróttu!
85. mín
Inn:Mist Þormóðsdóttir Grönvold (Grótta) Út:Nína Kolbrún Gylfadóttir (Grótta)
85. mín
Inn:Telma Sif Búadóttir (Grótta) Út:Margrét Lea Gísladóttir (Grótta)
84. mín Gult spjald: Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir (Víkingur R.)
84. mín MARK!
Margrét Lea Gísladóttir (Grótta)
Stoðsending: Hannah Abraham
Þær komast yfir í þessari markaveislu! Örugg á punktinum. Frábært víti í hægra hornið!
84. mín
Grótta fær víti!!!! HANNAH AÐ SLEPPA Í GEGN OG ER TEKINN NIÐUR!
81. mín MARK!
Sigdís Eva Bárðardóttir (Víkingur R.)
Stoðsending: Emma Steinsen Jónsdóttir
Þær jafna 3-3!! Emma tekur alvöru sprett með sturlaða fyrirgjöf sem fer í varnarmann Gróttu og til Sigdísar sem skorar!
78. mín
Inn:Lilja Davíðsdóttir Scheving (Grótta) Út:Ariela Lewis (Grótta)
77. mín
Inn:Ólöf Hildur Tómasdóttir (Víkingur R.) Út:Birta Birgisdóttir (Víkingur R.)
77. mín
Inn:Hulda Ösp Ágústsdóttir (Víkingur R.) Út:Bergdís Sveinsdóttir (Víkingur R.)
74. mín MARK!
Tinna Jónsdóttir (Grótta)
Stoðsending: Margrét Lea Gísladóttir
ÞVÍLÍK ENDURKOMA! 3-2 Boltinn hrekkur til Hönnuh sem leggur hann út á Tinnu sem setur annað markið sitt í kvöld!
71. mín
Inn:Kolfinna Ólafsdóttir (Grótta) Út:Lovísa Davíðsdóttir Scheving (Grótta)
70. mín
Víkingur fær horn. Sigdís og Bergdís standa báðar yfir boltanum.

Ariela tekur Kung fu spark og hreinsar.
67. mín Gult spjald: Nína Kolbrún Gylfadóttir (Grótta)
Allt í einu er Zaidy byrjaður að spjalda allt. Mjög soft gult spjald
65. mín Gult spjald: Rakel Lóa Brynjarsdóttir (Grótta)
Víkingar voru alveg að komast í svakalega hraðasókn en Rakel stoppar hana. Uppskerir gult spjald fyrir vikið
58. mín Gult spjald: Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir (Víkingur R.)
Hannah fer léttilega framhjá Svanhildi og brýtur klaufalega af sér.
57. mín
Inn:Dagný Rún Pétursdóttir (Víkingur R.) Út:Linda Líf Boama (Víkingur R.)
55. mín
Sigdís gerir þetta frábærlega cuttar inn og á geggjað skot sem Cornelia vel svakalega vel!
52. mín
Linda með geggjaða sendingu á Nadíu sem gerir vel að finna Lindu aftur sem er kominn í góða stöðu á teignum en fyrsta snertingin sveik hana.
47. mín
Hannah Abraham búinn að skipta um kant var á þeim vinstri núna á hægri. Hún var í smá brasi sóknarlega í þeim fyrri meðan við hvernig hún hefur verið á tímabilinu.
46. mín
Leikurinn að hefjast aftur Vonandi fáum við svipaða veislu eins og í þeim fyrri.
45. mín
Hálfleikur
Svakalegar síðustu 10.mín vá! Vonandi fáum við svipaðan seinni hálfleik.
45. mín MARK!
Tinna Jónsdóttir (Grótta)
Stoðsending: Margrét Lea Gísladóttir
JÁ TAKK! Skot af 30 metrunum í skeitina! Margrét lætur hann vera og Tinna með geggjaða fyrstu snertingu með tvær í sér og hendir sér bara í skot sem syngur í netinu! Þær jafna
45. mín Rautt spjald: Pétur Rögnvaldsson (Grótta)
Sé ekki á hvað hlýtur að vera einhver ummæli um dómarann.
45. mín MARK!
Ariela Lewis (Grótta)
Stoðsending: Tinna Jónsdóttir
Þær minnka muninn! Geggjuð fyrirgjöf sem hrekkur af Tinnu á Arielu sem klárar vel! þetta er orðið leikur!!!
42. mín MARK!
Bergdís Sveinsdóttir (Víkingur R.)
Sturluð aukaspyrna! Bergdís tekur hana bara sjálf og þvílík spyrna yfir vegginn Cornelia átti ekki séns!
41. mín
Vá Víkingar fá aukaspyrnu næstum bara á teigslínunni! Bergdís gerði þetta frábærlega og er tekinn niður
40. mín
Inn:Tara Jónsdóttir (Víkingur R.) Út:Selma Dögg Björgvinsdóttir (Víkingur R.)
Hljóta vera einhver meiðsli því hún hefur verið frábær hér í fyrri hálfleik.
38. mín
Hvernig skoraði Grótta ekki!!! Hannah fær hann í gegn og finnur Arielu á teignum sem situr hann aftur á Hönnuh sem nær ekki skoti beint fyrir framan markið og boltinn berst í hendur Kötlu! Skil ekki hvernig Hannah skoraði ekki!
30. mín
Lítið að gerast þessa stundina. Víkingar halda boltanum vel og reyna breaka á vörn Gróttu sem er þétt og erfitt að spila í gegnum.
23. mín
Sturlað veður hefur örugglega aldrei verið jafn lítill vindur á Nesinu. Geggjaðar fótboltaaðstæður
21. mín
Vá Grótta heppnar! Sigdís kemur með fyrirgjöf sem fer í Lovísu og Cornelia misreiknar boltan en heppin hann fer rétt útaf og Víkingar fá horn.
14. mín MARK!
Linda Líf Boama (Víkingur R.)
Stoðsending: Selma Dögg Björgvinsdóttir
1-0!!! Selma gerir þetta frábærlega finnur Lindu á milli hafsenta Gróttu sem keyrir í gegn og klárar í fjær framhjá Corneliu!
13. mín
Sigdís með hörku skot af 30 metrunum sem Cornelia ver!
11. mín
Aukaspyrnan tekinn kemur hár bolti á teiginn sem Katla handsamar vel.
10. mín
Hannah keyrir á vörn Víkinga og brotið af henni. Grótta fær hættulega aukaspyrnu!
5. mín
Linda gerir þetta frábærlega kemur með geggjaða sendingu á milli varnarmanna Gróttu í gegn á Nadíu sem situr hann í hliðarnetið!
4. mín
Víkingar vinna horn sem Nadía tekur!

Cornelia grípur hana auðveldlega.
2. mín
Víkingar byrja sækja svakalega! Nadía kemst framhjá Hallgerði og kemur með frábæra fyrirgjöf en vantar Víkinga í teyginn og Grótta hreinsar.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið í gang! Grótta byrjar þessa veislu.
Fyrir leik
Leikurinn að hefjast! Liðin ganga inná völlinn! Vonandi fáum við geggjaðan leik.
Fyrir leik
Byrjunarliðin Grótta gerir einungis eina breytingu frá sigrinum í Árbæ. Tinna Jónsdóttir kemur inn fyrir Arnfríði Auði Arnarsdóttir.

Víkingar gera hinsvegar tvær breytingar frá frábærum sigri sínum í undanúrslitum Mjólkurbikarsins gegn FH, þær Tara Jónsdóttir og Dagný Rún Pétursdóttir sitjast á bekkinn og inn fyrir þær koma Bergdís Sveinsdóttir og Linda Líf Boama.
Fyrir leik
Sigdís Eva Bárðardóttir Sigdís Eva Bárðardóttir (2006) - Leikmaður sem má fylgjast með.

Sigdís Eva hefur verið frábær hér í byrjun tímabils í bæði deild og bikar. Alvöru markarskorari og kæmi mér ekki á óvart að það sé kominn áhugi á henni erlendis.

Mörk í lengjudeildinni - 7 leikir 4 mörk
Mörk í Mjólkurbikarnum - 5 leikir 8 mörk

Fyrir leik
Víkingur Reykjavík Víkingur Reykjavík situr í 1.sæti Lengjudeildarinnar með 22 stig með 2 stiga forrustu á HK sem situr í 2.sæti en Víkingur eiga leik inni á þær og geta komist með 5 stiga forrustu með sigri í dag. Víkingar eru á alvöru gengi í deild og bikar þar sem á dögunum komust þær í úrslit Mjólkurbikarsins þar sem þær mæta Blikum 12.ágúst á Laugardalsvelli.

Víkingar tóku á móti HK í toppbaráttuslag að bestu gerð í síðustu umferð og unnu þar frábæran 3-1 sigur í Kórnum þar sem Bergdís Sveinsdóttir, Birta Birgisdóttir og Erna Guðrún Magnúsdóttir gerðu mörk Víkinga.
Fyrir leik
Grótta Grótta situr í 4.sæti í Lengjudeildinni með 16 stig sem er mjög góður árangur fyrir nýliðana einungis 4 stigum frá HK sem situr í 2.sæti. Grótta er með öflugt lið og þar fremst í flokki er Hannah Abraham sem er markahæst með 7 mörk á þessu tímabili í einungis 9 leikjum.

Grótta heimsótti Árbæjinn í síðustu umferð og fóru heim með öll 3 stigin í 2-1 sigri gegn Fylki þar sem Ariela Lewis og María Lovísa Jónasdóttir skoruðu mörkin og tryggðu Gróttu sigurinn.

Hér má sjá mynd af þeim Ariela Lewis og Hannah Abraham
Fyrir leik
Góðan daginn kæru lesendur! Verið velkominn í þessa beinu textalýsingu frá Vivaldivellinum þar sem fer fram viðreign Gróttu og Víkings í 10.umferð lengjudeildarinnar!
Byrjunarlið:
1. Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir (m)
Erna Guðrún Magnúsdóttir
Selma Dögg Björgvinsdóttir ('40)
5. Emma Steinsen Jónsdóttir
6. Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir
8. Birta Birgisdóttir ('77)
13. Linda Líf Boama ('57)
17. Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir
22. Nadía Atladóttir (f)
24. Sigdís Eva Bárðardóttir
26. Bergdís Sveinsdóttir ('77)
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Embla Dögg Aðalsteinsdóttir (m)
Elíza Gígja Ómarsdóttir
7. Dagný Rún Pétursdóttir ('57)
11. Hafdís Bára Höskuldsdóttir
16. Helga Rún Hermannsdóttir
19. Tara Jónsdóttir ('40)
23. Hulda Ösp Ágústsdóttir ('77)
25. Ólöf Hildur Tómasdóttir ('77)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
John Henry Andrews (Þ)
Dagmar Pálsdóttir
María Björg Marinósdóttir
Þorsteinn Magnússon
Lisbeth Borg
Guðni Snær Emilsson

Gul spjöld:
Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir ('58)
Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir ('84)

Rauð spjöld: