Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
   fös 27. mars 2026 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tilbúnir að hafna mettilboði frá Liverpool - Tonali efstur á lista
Powerade
Michael Olise er á óskalista Liverpool
Michael Olise er á óskalista Liverpool
Mynd: EPA
Tonali til Man Utd?
Tonali til Man Utd?
Mynd: EPA
Alvarez orðaður við Arsenal
Alvarez orðaður við Arsenal
Mynd: EPA
Michael Olise er orðaður við Liverpool og þeir Sandro Tonali og Myles Lewis-Skelly eru orðaðir við Man Utd. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins. Það er BBC sem tekur saman það helsta og samantektin er í boði Powerade.



Bayern Munchen hefur vísað frá þeirri pælingu að Michael Olise (24) gæti farið til Liverpool, jafnvel þó að metfé - yfir 170 milljóna tilboð - kæmi frá enska félaginu. (Talksport)

Man Utd mun formlega reyna við Sandro Tonali (25) miðjumann Newcastle í lok tímabils. Tonali er á undan Elliot Anderson og Adam Wharton á óskalistanum. Tonali má fara ef Newcastle nær ekki Evrópusæti. (Mail og The Shields Gazette)

Man Utd er einnig með Myles Lewis-Skelly (19) á óskalista sínum fyrir sumarið. (Express)

PSG og AC Milan fylgjast bæði með Marcus Rashford (28) og eru klár ef Barcelona getur ekki keypt hann af Man Utd í lok lánssamnings. (Caughtoffside)

Aston Villa mun líka reyna við Rashford ef Jadon Sancho (26) skrifar ekki undir en hann er á láni frá Man Utd og verður samningslaus í sumar. (SportsBoom)

Arsenal hefur áhuga á Julian Alvarez (26) sóknarmanni Atletico Madrid. (Football.london)

Liverpool horfir til Iliman Ndiaye (26) leikmanns grannanna í Everton. (Teamtalk)

Ndiaye og James Garner (25) eru skotmörk Man Utd og gætu komið saman á 100 milljónir punda. (Fichajes)

Newcastle horfir til Ben White (28) sem mögulegan arftaka fyrir Kieran Trippier (35). (SportsBoom)

PSG býst ekki við því að Arsenal reyni við Khvicha Kvaratskhelia (25) en Arsenal hefur einnig áhuga á Anthony Gordon (25) hjá Newcastle. (Sky Sports)

Atletico Madrid horfir til Ferran Torres (26) hjá Barcelona til að styrkja sóknarlínuna. (Fichajes)

Alejandro Balde (22) vinstri bakvörður Barcelona er á blaði hjá Man Utd, Man City og Aston Villa. (Mundo Deportivo)

Sunderland gæti fengið samkeppni frá öðrum félögum varðandi Lutsharel Geertruida (25) sem er á láni frá RB Leipzig. Liverpool, Aston Vlla, Everton, Tottenham og Crystal Palace hafa áhuga á hollenska landsliðsmanninum. (Teamtalk)
Slapp
Athugasemdir
banner