SKÝRSLAN: HK fara svekktir heim frá Akureyri
Hvað réði úrslitum?
KA spilaði virkilega vel manni færri og var fyrri til að skora. Leikmenn HK geta verið svekktir með frammistöðuna.
Bestu leikmenn
1. Ahmad Faqa
Var eins og klettur í vörninni og fullkomnaði leik sinn með marki.
2. Jóan Símun Edmundsson
Verð að velja Jóan hér. Rosaleg gæði í þessum leikmanni og mun klárlega styrkja KA liðið. Átti stóran þátt í glæislegu marki KA manna í dag.
Atvikið
Rauða spjaldið á Dusan er augljóst val hér. KA spilaði nokkuð vel manni færri og að sama skapi geta HK verið svekktir að nýta ekki liðsmuninn betur.
Hvað þýða úrslitin?
Eitt stig á hvort lið. Bæði lið áfram í neðri hlutanum. Sigur í dag hefði þýtt sæti í efri hlutanum.
Vondur dagur
HK átti rosalega erfitt með að brjóta varnarmúr KA. Jalloh virtist vera eini með lífsmarki þarna. Menn eins og Örvar Eggertsson alveg týndir.
Dómarinn - 8
Flottur í dag. Rauða spjaldið hárréttur dómur.



