Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta-deild karla
Hásteinsvöllur
Mikið rok hér í Eyjum
ÍBV
ÍBV
2 - 2
KR
KR
Alex Freyr Hilmarsson 45'1 - 01 - 161' Kennie Knak Chopart1 - 279' Benoný Breki AndréssonRichard King 93'2 - 2
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Leik lokið!
KR verður í efri hlutanum og ÍBV sendir Fram í fallsæti
ÍBV jafnar í lok leiks og gæti orðið gott stig fyrir þá
ÍBV
93. mín
ROSALEGT SKOT ÚR D-BOGANUM! ÞVÍLÍKT MARK!

Richard King

Klafs eftir innkast og Kóngurinn klárar vel!
88. mín
Kristinn Jóns með hörkuskot með hægri rétt inn í teig en Guy ver vel
86. mín
KR sækir vel með vind í bakið en fer oft úrskeiðis
KR
83. mín
InnLúkas Magni Magnason
ÚtFinnur Tómas Pálmason
KR
79. mín
MAAAARK!

Benoný Breki Andrésson (stoðsending: Sigurður Bjartur Hallsson)

Sláin inn, vel klárað!!
74. mín
Aron með skot af löngu færi með sterkann vind í bakið en yfir fór það
72. mín
Skítaveður með hviðum og regni. Hefur mikil áhrif á leikinn
69. mín
ÍBV nælir í hornspyrnu. KR kemur bolta frá.
KR
67. mín
Gult spjald

Finnur Tómas Pálmason

Ljúft brot á miðjum velli
KR
61. mín
MAAAARK!

Kennie Knak Chopart (stoðsending: Kristinn Jónsson )

Kenny leggur hann vel í markið frá markteig eftir góða syrpu Kidda Jóns upp vinstri kantinn. Vel gert hjá báðum!
ÍBV
59. mín
InnSverrir Páll Hjaltested
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
Fyrirliðinn fer meiddur af velli
58. mín
Gott skot hjá Atla en Guy ver vel
58. mín
KR er í efri hlutanum eins og staðan er núna!
Fylkir jafnaði gegn KA. Þetta hangir á bláþræði!
55. mín
KR með pressu á ÍBV en þeir standast
54. mín
KR fær horn eftir flotta syrpu Kristinns upp vinstri kanntinn
53. mín
Atli gerir sig líklegan með fínu skoti en framhjá marki ÍBV
50. mín
Jóhannes fær hörkufæri eftir hornið en Guy ver ver vel. Horn sem ekkert verður úr í kjölfarið
49. mín
Aron með hörkuskot og úr verður horn
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn og ÍBV gerir ntvær breytingar í hálfleik
ÍBV
46. mín
InnBreki Ómarsson
ÚtMichael Jordan Nkololo
ÍBV
46. mín
InnArnar Breki Gunnarsson
ÚtKevin Bru
45. mín
KR á leið í neðri hlutann eins og staðan er
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Eins og staðan er í hálfleik þá er KA uppi í efri hlutanum. Liðið er að vinna 1-0 gegn Fylki en KR að tapa gegn ÍBV. Vesturbæingar eru því á leið í neðri hlutann, sem yrði mikill skellur fyrir félagið.
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur á Eyju fögru
ÍBV
45. mín
MAAAARK!

Alex Freyr Hilmarsson (stoðsending: Halldór Jón Sigurður Þórðarson)

+3 Markspyrna frá Guy Smith og Halldór Jón skallar aftur fyrir sig og Alex kemst í gegn og klárar vel.
45. mín
KR fær horn en rann út í sandinn
45. mín
5 mínútum bætt við
44. mín
ÍBV reynir en gengur ekkert. KR heldur út gegn vindi sýnist manni
37. mín
Felix með hörkiskot en Simen ver vel í horn. Ekkert verður úr horninu.
35. mín
KR með óvænt skot sem átti væntanlega að vera fyrirgjöf í stöng. ÍBV heppnir. Hafa aldeilis ekki nýtt sér meðvindinn
30. mín
Jæja þá er komin rigning líka. ÚFF þetta er varla hægt og enginn fótbolti í gangi.
25. mín
Mikið rok og leiðindar fótboltaveður
23. mín
KR fær horn. ekkert verður úr
20. mín
Ægir Jarl liggur eftir að haafa fengið boltann í andlitið. Smá blóðnasir en klár aftur
12. mín
Vindurinn hefur mikil áhrif á leikinn. ÍBV er ekki að nýta sér meðvindinn eins og er
8. mín
KR meira að sækja
8. mín
ÍBV alls ekki að nýta sér meðvindinn
4. mín
Dauðafæri hjá KR þegar Jóhannes var mættur á fjær en rétt fram hjá
1. mín
Leikur hafinn
ÍBV byrjar með vindi
Fyrir leik
Spáir markalausu jafntefli
Arnar Daníel Aðalsteinsson, leikmaður Gróttu, spáir í leikina. Arnar var hluti af U19 landsliðshópnum sem lék á Evrópumótinu á Möltu í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

ÍBV 0 - 0 KR (14:00 í dag)
Bæði lið munu suffera í þessum leik.

Lestu spá Arnars fyrir umferðina í heild sinni
Fyrir leik
Fimm breytingar hjá KR
Það eru fimm breytingar á liði KR sem vann Fylki. Simen Kjellevold kemur í markið þar sem Aron Snær Friðriksson tekur út leikbann.

Lúkas Magni Magnason og Aron Þórður Albertsson setjast á bekkinn en Stefán Árni Geirsson og Kristján Flóki Finnbogason eru ekki með. Finnur Tómas Pálmason, Ægir Jarl, Jónasson Aron Kristófer Lárusson og Atli Sigurjónsson koma inn í liðið.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Fyrir leik
Óbreytt lið ÍBV
Byrjunarlið Eyjamanna er óbreytt frá 2-2 jafntefli gegn HK í síðustu umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Verður leikið?
Svarið er já, það er ekkert því til fyrirstöðu að leikurinn fari fram í Vestmannaeyjum því KR-ingar fóru af stað í gærmorgun með Herjólfi frá Þorlákshöfn og eru því löngu komnir á eyjuna þar sem þeir gistu í nótt. Lokaumferðin sem á að fara fram á sama tíma fer því pottþétt fram.
Fyrir leik
Í banni
Oliver Heiðarsson verður ekki með ÍBV í dag, vegna uppsafnaðra áminninga. Aron Snær Friðriksson verður ekki í marki KR en hann tekur út leikbann eftir að hafa fengið rautt spjald í sigrinum gegn Fylki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðstoðardómarar: Eysteinn Hrafnkelsson og Hreinn Magnússon.
Varadómari: Arnar Ingi Ingvarsson.

Eftirlitsmaður: Gylfi Þór Orrason.
Fyrir leik
Sjáðu það helsta úr fyrri viðureign liðanna
Fyrir leik
Fyrri leikurinn
Liðin mættust í 11. umferðinni á Meistaravöllum í vesturbænum 10. júní síðastliðinn.

Þá leik lauknum með 1-1 jafntefli. Sigurður Bjartur Hallsson skoraði fyrir KR þegar 20 mínútur voru eftir en Felix Örn Friðriksson jafnaði úr víti í uppbótartíma.

KR 1 - 1 ÍBV
0-0 Sverrir Páll Hjaltested ('60 , misnotað víti)
1-0 Sigurður Bjartur Hallsson ('69)
1-1 Felix Örn Friðriksson ('92 , víti)
Lestu um leikinn
Fyrir leik
Staðan
Þetta er síðasti leikurinn í 22 leikja móti, eftir daginn í dag mun mótið skiptast í efri og neðri hluta.

Þar sem stigin fylgja áfram er ljóst að mikið er undir hjá báðum liðum.

ÍBV er í fallsæti með 18 stig en sigur í dag gæti komið þeim uppúr því ef Fram eða Fylkir vinna ekki sinn leik.

KR er í harðri baráttu um að enda í efri hluta deildarinnar og verður að fá sigur eða jafntefli í dag til að tryggja sig í efri hlutann.

Staðan
1. Víkingur - 56 stig
2. Valur - 42
3. Breiðablik - 38
4. Stjarnan - 31
5. FH - 31
6. KR - 31
7. KA - 28
8. HK - 25
9. Fylkir - 20
10. Fram - 19
11. ÍBV - 18
12. Keflavík - 12
Fyrir leik
Leikdagur í eyjum
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu úr Vestmanneyjum.

Hér mætast ÍBV og KR í lokaumferð Bestu-deildar karla klukkan 14:00.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.