Leik lokið!
Breiðablik hirða 3 mikilvæg stig og eru komnar langleiðina með að tryggja sér í Evrópu!
94. mín
Agla með skot úr aukaspyrnu langt fyrir utan teig, boltinn fer rétt yfir mark gestanna.
91. mín
Thelma Karen með flotta takta og kemur sér í skotið sem er ekki nægilega gott og fer boltinn framhjá.
90. mín
5 mínútum bætt við
87. mín
Andrea Rut með hörkuskot í teig FH en Aldís ver frábærlega í marki gestanna.
86. mín
Ekkert sem bendir til að FH sé að koma til baka.
86. mín
InnLinli Tu
ÚtBirta Georgsdóttir
83. mín
InnThelma Karen Pálmadóttir
ÚtAlma Mathiesen
83. mín
InnEsther Rós Arnarsdóttir
ÚtElísa Lana Sigurjónsdóttir
81. mín
Gult spjald
Lillý Rut Hlynsdóttir
Lillý fer bara í Birtu og fær réttilega gult spjald að launum.80. mín
InnSara Svanhildur Jóhannsdóttir
ÚtKatrín Ásbjörnsdóttir
Fyrsti leikur Söru fyrir Breiðablik.
79. mín
Leikurinn heldur áfram á meðan Blikar undirbúa skiptingu fyrir Katrínu.
78. mín
Katrín Ásbjörns liggur niðri vegna meiðsla.
72. mín
Frábær útfærsla og Clara svellköld í afgreiðslunni!
Kalt er það Clara!
Clara Sigurðardóttir
Agla tekur hornspyrnu með jörðinni beint á Clöru sem chippar boltanum beint í fjærhornið.Frábær útfærsla og Clara svellköld í afgreiðslunni!
71. mín
Agla María á eitraða fyrirgjöf sem enginn Bliki kemst í og Lillý Rut kemur boltanum frá.
67. mín
InnAndrea Marý Sigurjónsdóttir
ÚtColleen Kennedy
66. mín
Captain fantastic!
Agla María Albertsdóttir (stoðsending: Andrea Rut Bjarnadóttir)
Andrea Rut á frábæra fyrirgjöf í teiginn og þar mætir Agla sem stangar boltann inn, geggjað mark!64. mín
Eftir frábært samspil Hafrúnar og Andreu berst boltinn á Katrínu sem tekur skotið í teig FH en Aldís ver vel.
61. mín
Gestirnir fá horn, Sunneva á góða hornspyrnu en Telma gerir vel og nær að blaka boltanum burt.
60. mín
Mackenzie með marktilraun fyrir utan teig en Telma Ívars grípur boltann auðveldlega.
55. mín
Lítið um að vera hér í byrjun síðari hálfleiks.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Blikar byrja með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Allt í járnum þegar liðin ganga til búningsklefa. Leikurinn heilt yfir frekar lokaður. Tökum 15.
45. mín
Fjórum mínútum bætt við.
45. mín
Rachel Avant lætur vaða fyrir utan teig eftir að Guðni Eiríks öskraði ,,shoot" frá bekknum. Boltinn fór rétt yfir mark Blika.
43. mín
Snædís jafnar á markamínútunni!
Snædís María Jörundsdóttir
Eftir hornspyrnu FH dettur boltinn dauður í teignum og Snædís eins og sannur hrægammur nær að pota boltanum í netið.41. mín
Mackenzie með lúmska tilraun, chippar boltanum á fjærstöng en Telma nær að handsama boltann. Veit ekki hvort þetta átti að vera sending eða skot.
38. mín
InnRachel Avant
ÚtShaina Faiena Ashouri
38. mín
Shaina borin af velli á börum, óskum henni skjóts bata.
36. mín
Shaina Ashouri FH liggur niðri vegna meiðsla. Leikurinn búinn að vera stopp í um 3 mínútur.
31. mín
Telma Ívars liggur niðri og þarfnast aðhlynningar.
Telma getur haldið leik áfram.
Telma getur haldið leik áfram.
30. mín
Hafrún Rakel með skot í teignum, en skotið fer beint á Aldísi markverði FH.
28. mín
Birta brýtur ísinn!
Birta Georgsdóttir (stoðsending: Clara Sigurðardóttir)
Birta fær boltann fyrir utan teig og lætur vaða. Hnitmiðað skot alveg út við fjærstöng, frábært mark!27. mín
Andrea Rut á skot við vítateig FH en enn og aftur ver Aldís.
26. mín
Birta Georgs að sleppa í gegn en tekur þunga snertingu og Aldís kemst á undan í boltann.
24. mín
Aldís í stuði!
Agla María vinnur boltann hátt uppi á vellinum og sleppur í gegn, Agla tekur skotið en Aldís í marki FH ver frábærlega. Boltinn berst út á Andreu Rut sem skýtur en aftur ver Aldís!
21. mín
Arna Eiríks með lúmskt skot að marki Blika en boltinn fer framhjá.
17. mín
Gult spjald
Shaina Faiena Ashouri
Réttilega gult fyrir brot á Clöru.13. mín
Breiðablik fær hornspyrnu, Agla tekur spyrnuna boltinn skoppar á milli manna og endar hjá Birtu Georgs sem lætur vaða en Aldís ver vel í marki gestanna.
13. mín
Ekki mikið að frétta eftir færi FH á fyrstu mínútu leiks.
1. mín
FH strax í færi
FH fær fyrstu hornspyrnu leiksins, darraðadans í teignum. FH kemur skoti á markið en Telma Ívars ver vel.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Gestirnir byrja með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn og Bestu-deildar stefið í botni, nú styttist í þetta!
Fyrir leik
Blikar í Evrópubaráttu
Hart er barist um 2. sæti deildarinnar sem gefur Evrópusæti. Breiðablik er með tveggja stiga forystu á Stjörnuna og myndi sigur í dag fara langt með að tryggja Breiðablik annað sætið og þar af leiðandi í Evrópu.
Staðan í deildinni:
1. Valur - 48 stig
2. Breiðablik - 37 stig
3. Stjarnan - 35 stig
4. Þróttur R. - 34 stig
5. Þór/KA - 29 stig
6. FH - 28 stig
Staðan í deildinni:
1. Valur - 48 stig
2. Breiðablik - 37 stig
3. Stjarnan - 35 stig
4. Þróttur R. - 34 stig
5. Þór/KA - 29 stig
6. FH - 28 stig
Fyrir leik
FH ekki búið að vinna leik í efri hluta
Gengi FH sömuleiðis er ekki búið að vera upp á marga fiska og á liðið enn eftir að ná í sinn fyrsta sigur eftir tvískiptingu deildarinnar. FH er í sjötta og neðsta sæti efri hluta deildarinnar og hafa lítið til að keppa upp á.
Þrátt fyrir það hefur FH átt mjög gott tímabil en liðinu var fyrir tímabilið spáð neðsta sæti.

Þrátt fyrir það hefur FH átt mjög gott tímabil en liðinu var fyrir tímabilið spáð neðsta sæti.

Fyrir leik
Breiðablik að vakna til lífsins?
Eftir að Breiðablik tapaði gegn Víkingi R. hefur liðið nánast brotnað. Liðið fékk aðeins 1 stig úr 5 leikjum. Þjálfaraskipti urðu á liðinu er Ásmundur Arnarsson lét af störfum. En Kjartan Stefánsson og Gunnleifur Gunnleifsson stýra núna liðinu ásamt Ólafi Péturssyni og Önu Cate.
Í síðustu umferð vann liðið þó gegn Stjörnunni en var það fyrsti sigur liðsins síðan 7. ágúst. Spennandi verður að sjá hvort að liðið nái að tengja saman 2 sigra í dag.

Í síðustu umferð vann liðið þó gegn Stjörnunni en var það fyrsti sigur liðsins síðan 7. ágúst. Spennandi verður að sjá hvort að liðið nái að tengja saman 2 sigra í dag.

Fyrir leik
Kópavogsvöllur heilsar!
Góðan og blessaðan daginn lesendur góðir og veriði velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Kópavogsvelli. Besta-deild kvenna heldur áfram að rúlla eftir landsleikjahlé. Í dag mun Breiðablik taka á móti FH í 22. og jafnframt næst síðustu umferð Bestu deildar kvenna.






