Fotbolti.net
Besta deildin
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Besta-deild karla
Würth völlurinn
Sturlað gluggaveður!
Fylkir
Fylkir
3 - 4
KR
KR
0 - 123' Theodór Elmar BjarnasonBenedikt Daríus Garðarsson 43'1 - 11 - 271' Luke Morgan Conrad Rae1 - 373' Atli Sigurjónsson1 - 480' Atli SigurjónssonHalldór Jón Sigurður Þórðarson 81'2 - 4Þórður Gunnar Hafþórsson 92'3 - 4
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Ryderball í Árbænum

Hvað réði úrslitum?

Erfitt að segja nákvæmnlega en ætli það hafi ekki bara verið þessi 10 mínútna kafli þar sem KR-ingar komast í 4-1. Fylkismenn steinsofandi í þessum mörkum en ég tek ekkert af KR. Þetta var mjög skrýtinn fyrri hálfleikur. Ekkert mikið að frétta og KR dálítið brothættir varnarlega en í lok dags er KR bara með betra lið en Fylkir og áttu alltaf að vinna í dag miðað við hvernig hann þróaðist að mínu mati. Var þetta þessi frægi Ryder ball sem við munum sjá í sumar. Mörk og stemning.

Bestu leikmenn

1. Luke Rae (KR)

Mér fannst hann vera stórkostlegur í kvöld. Skorar þetta sturlaða mark sem er klárlega mark umferðarinnar. Skil ekki hvernig hann hefur fengið að spila svona lítið hjá KR. Gregg ætlar greinilega að nota hann mikið í sumar en hann hefur sýnt honum mjög mikið traust. Enda er þetta leikmaður með gífurlega mikinn hraða og skemmtilega takta sem við fengum svo sannarlega að sjá í dag.

2. Kristján Flóki Finnbogason (KR)

Var að ógna gríðarlega mikið með hraða sínum og krafti leggur upp tvö mörk í kvöld og á klárlega stoðsendingu sumarsins í markinu sem Luke Rae skorar. Magnaður í kvöld.

Atvikið

Klárlega markið hans Luke Rae. Innkast hjá Aroni, hælsending í loftinu hjá Kristjáni inn fyrir í gegn á Luke Rae sem tekur skotið í fyrsta í samskeytin. Sturlað mark sem verður klárlega contender í mark tímabilsins.

Hvað þýða úrslitin?

KR byrjar tímabilið á þremur stigum en Fylkismenn á tapi. Það er þó margt sem KR þarf að laga fyrir næsta leik sem er gegn Stjörnunni.

Vondur dagur

Verð því miður að setja þetta á Ómar Björn Stefánsson. Það var hann sem tapaði boltanum inni í hans eigin vítateig sýndist mér þegar KR tóku forystuna. Ég sá ekki beint hvað hann var að reyna að gera með boltann en hann var bara klaufi.

Dómarinn - 8

Mér fannst hann dæma þetta mjög vel. Nokkrar ákvarðanir sem mér fannst hann geta gert betur en bara fínasti leikur hjá teyminu. Fylkismenn eru væntanlega mjög ósammála mér.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.