Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
Lengjudeild karla
Dalvík/Reynir
LL 3
1
ÍBV
2. deild karla
Selfoss
LL 1
0
Kormákur/Hvöt
Besta-deild karla
FH
LL 3
2
Vestri
Þróttur R.
1
2
Valur
0-1 Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir '9
Sierra Marie Lelii '16 1-1
1-2 Amanda Jacobsen Andradóttir '24
27.04.2024  -  14:00
AVIS völlurinn
Besta-deild kvenna
Aðstæður: Sú gula er í stuði!
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Maður leiksins: Amanda Andradóttir
Byrjunarlið:
1. Mollee Swift (m)
2. Sóley María Steinarsdóttir (f)
5. Jelena Tinna Kujundzic
10. Leah Maryann Pais ('70)
11. Lea Björt Kristjánsdóttir
12. Caroline Murray
14. Sierra Marie Lelii ('82)
16. María Eva Eyjólfsdóttir
18. Kristrún Rut Antonsdóttir
22. Sigríður Theód. Guðmundsdóttir ('63)
23. Sæunn Björnsdóttir

Varamenn:
20. Hafdís Hafsteinsdóttir (m)
4. Hildur Laila Hákonardóttir
7. Brynja Rán Knudsen ('82)
8. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir
9. Freyja Karín Þorvarðardóttir ('63)
15. Ísabella Anna Húbertsdóttir ('70)
29. Una Sóley Gísladóttir

Liðsstjórn:
Ólafur Helgi Kristjánsson (Þ)
Guðrún Þóra Elfar
Þórkatla María Halldórsdóttir
Angelos Barmpas
Ingunn Haraldsdóttir
Branislav Radakovic
Sara Ó. Þrúðmarsdóttir Finnsson
Árný Kjartansdóttir

Gul spjöld:
Leah Maryann Pais ('36)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Twana Khalid Ahmed flautar til leiksloka. Valsarar með sterkan sigur á Þrótturum. Fyrri hálfleikurinn mun skemmtilegri en sá síðari.
Viðtöl og skýrsla kemur innan skams.
90. mín
Þremur mínútum bætt við, nú þurfa Þróttarar að gefa í.
83. mín
Brynja Rán ógnar strax, lætur vaða en skot hennar fer framhjá.
83. mín
Inn:Nadía Atladóttir (Valur) Út:Amanda Jacobsen Andradóttir (Valur)
82. mín
Inn:Brynja Rán Knudsen (Þróttur R.) Út:Sierra Marie Lelii (Þróttur R.)
74. mín Gult spjald: Berglind Rós Ágústsdóttir (Valur)
72. mín
Fanndís Friðriks sleppur í gegn en er sýnist mér vel fyrir innan. Hún kemur sér í skotið sem Mollee ver vel í horn.
70. mín
Inn:Ísabella Anna Húbertsdóttir (Þróttur R.) Út:Leah Maryann Pais (Þróttur R.)
70. mín
Leikurinn er aðeins búinn að róast eftir fjöruga byrjun seinni hálfleiks.
63. mín
Inn:Freyja Karín Þorvarðardóttir (Þróttur R.) Út:Sigríður Theód. Guðmundsdóttir (Þróttur R.)
61. mín
Inn:Ísabella Sara Tryggvadóttir (Valur) Út:Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir (Valur)
61. mín
Inn:Fanndís Friðriksdóttir (Valur) Út:Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir (Valur)
59. mín
Valsarar fá horn, Amanda teiknar boltann á pönnuna á Berglindi með skallar boltann rétt framhjá.
53. mín
Aftur kemur Ragnheiður sér í færi nú tekur hún skotið utarlega í teignum en boltinn fer rétt framhjá marki Þróttara.
51. mín
Ragnheiður í færi en Mollee ver Ragnheiður fær boltann aftur en Mollee aftur ver Mollee!
48. mín
Þróttarar í dauðafæri! Murray á frábæran bolta á nærsvæðið þar sem Kristrún Rut er og setur boltann í hliðarnetið að utanverðu úr 5 metra færi.
Þarna á Kristrún að gera betur!
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
45. mín
Hálfleikur
Liðin ganga inn til búningsklefa.
Valsarar eiga auðvelt með að finna glufur í háu varnarlínu Þróttara og Valur leiðir sanngjarnt.
45. mín
Einni mínútu bætt við.
44. mín
Ragnheiður með skot úr ágætis færi en boltinn fer rétt framhjá.
37. mín
Þróttarar fá hornspyrnu, boltinn berst út á kant á Pais sem leikur skemmtilega á varnarmann og kemur boltanum fyrir en Valsarar hreinsa.
36. mín Gult spjald: Leah Maryann Pais (Þróttur R.)
33. mín
Hafliði er með myndavélina á lofti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

29. mín
Guðrún sleppur ein í gegn en er flögguð rangstæð réttilega.
24. mín MARK!
Amanda Jacobsen Andradóttir (Valur)
Stoðsending: Kate Cousins
Sjóðheit Amanda! Kate á góða sendingu í gegn á Amöndu sem er ein gegn markverði og klárar fagmannlega.
Valur að ná að tvisvar að sleppa í gegn auðveldlega og uppskeran er tvö mörk.
Þriðja mark Amöndu í þessum fyrstu tveimur leikjum!

23. mín
Guðrún að ógna en Sóley María með góða varnartilburði.
19. mín Gult spjald: Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir (Valur)
16. mín MARK!
Sierra Marie Lelii (Þróttur R.)
Ekki voru þær lengi að jafna metin! Ragnheiður með skelfilega sendingu til baka sem Sierra kemst í og er komin ein í gegn. Hún fer framhjá Fanney í marki Vals og kemur boltanum í netið.
Hún unga Ragnheiður gerði þetta afar auðvelt fyrir Sierru sem kláraði vel engu að síður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
9. mín MARK!
Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir (Valur)
Stoðsending: Jasmín Erla Ingadóttir
Guðrún brýtur ísinn! Jasmín á frábært hlaup og sleppur í gegn, komin ein á móti markmanni og rennir boltanum til hliðar á Guðrúnu sem setur boltann í autt markið.
Frábærlega gert!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

6. mín
Fyrrum Þróttarinn Kate Cousins tekur skot úr teignum sem fer af varnarmanni og Þróttarar koma boltanum frá.
Valur að byrja leikinn mun betur!
4. mín
Fyrsta færið! Mollee með sendingu beint á Valsara, Amanda fær boltann tekur skemmtilegan snúning og gefur á Guðrúnu sem tekur skotið úr teignum sem fer af varnarmanni og í horn.
2. mín
Valur fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu, gestirnir ógna en ná ekki að koma skoti að marki.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað! Þróttarar byrja með boltann.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn Þróttarar gerðu jafntefli við nýliða Fylkis í fyrstu umferð, Ólafur Kristjáns gerir eina breytingu á liði sínu frá þeim leik.
Lea Björt kemur í byrjunarliðið í stað Álfhildar Rósu fyrirliða sem þurfti að fara af velli gegn Fylki vegna meiðsla snemma leiks.

Valur vann sannfærandi sigur á Þór/KA í síðustu umferð, Pétur Pétursson gerir tvær breytingar frá þeim leik. Þær Ragnheiður Þórunn og Guðrún Elísabet koma inn í liðið á sitthvorn kantinn.
Fyrir leik
Fyrir leik
Landsliðskonan Diljá Ýr Zomers spáir í spilin Þróttur 0 - 2 Valur

,,Alltaf erfitt að mæta Þrótti á þeirra heimavelli. En Valur með alla þessa hrikalega góðu leikmenn mætir og tekur þrjú stig. Held og vona að við fáum að sjá rosaleg mörk frá Amöndu og Fanndísi!"

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Úr PSG í Val Berglind Björg Þorvaldsdóttir er gengin í raðir Vals frá franska stórliðinu PSG. Samningur hennar við PSG átti að renna út í sumar. Berglind er komin með leikheimild fyrir leikinn í dag. Hún lék síðast á Íslandi sumarið 2020 með Breiðabliki og skoraði þá tólf mörk í níu leikjum.

Mynd: Valur
Fyrir leik
Amanda Andradóttir skoraði tvö í öruggum sigri Vals Ríkjandi Íslandsmeistarar Vals byrja Íslandsmótið af krafti en liðið vann Þór/KA, 3-1, í opnunarleik Bestu deildarinnar. Amanda Andradóttir fór á kostum og skoraði tvö mörk í leiknum.

Lestu um leikinn


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þróttarar komu með eitt stig úr lautinni Í fyrstu umferð mætti Þróttur R. nýliðum Fylkis. Þróttarar stýrðu leiknum að mestu leiti og voru yfir meirihluta leiks. Fylkiskonur jöfnuðu þó undir lok leiks og skildu liðin jöfn að.

Lestu um leikinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Gleðilegan laugardag! Góðan og blessaðan daginn kæru lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Avis vellinum, þar sem Þróttur R. tekur á móti Val í 2. umferð Bestu-deild kvenna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Byrjunarlið:
1. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
2. Hailey Whitaker
8. Kate Cousins
9. Amanda Jacobsen Andradóttir ('83)
10. Berglind Rós Ágústsdóttir (f)
11. Anna Rakel Pétursdóttir
14. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir ('61)
19. Anna Björk Kristjánsdóttir
21. Lillý Rut Hlynsdóttir
22. Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir ('61)
29. Jasmín Erla Ingadóttir

Varamenn:
20. Íris Dögg Gunnarsdóttir (m)
3. Camryn Paige Hartman
13. Nadía Atladóttir ('83)
17. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
23. Fanndís Friðriksdóttir ('61)
24. Ísabella Sara Tryggvadóttir ('61)
40. Málfríður Erna Sigurðardóttir

Liðsstjórn:
Pétur Pétursson (Þ)
Jóhann Emil Elíasson
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir
María Hjaltalín
Aron Óskar Þorleifsson
Gísli Þór Einarsson
Hallgrímur Heimisson

Gul spjöld:
Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir ('19)
Berglind Rós Ágústsdóttir ('74)

Rauð spjöld: