Leik lokið!
ÍR tryggur sér þrjú stig eftir afar dramatískan leik. Rautt snemma í leikinn og fjögur mörk, algjör spenna!
Viðtöl og skýrla koma inn seinna í dag, takk fyrir mig!
96. mín
GUÐJÓN TRYGGUR SIGURINN!
Guðjón Máni Magnússon
Fyrirgjöf kemur inn í teginn og Guðjón skýtur boltanum framhjá Rafal sem reynir að gera sig stóran.94. mín
Marteinn með fyrirgjöf inn í teiginn á Bergvin Fannar, en hann vippar boltanum yfir markið.
92. mín
Gult spjald
Grímur Ingi Jakobsson
91. mín
Það er mikill hiti í þessum leik frá báðum áttum. Náðir þjálfara brjálaðir út í dómara.
86. mín
Arnór Gauti með þrumu skot sem Rafal nær að verja.
85. mín
InnMarteinn Theodórsson
ÚtBragi Karl Bjarkason
84. mín
InnAlex Bergmann Arnarsson
ÚtPatrik Orri Pétursson
84. mín
InnHilmar Andrew McShane
ÚtTareq Shihab
84. mín
InnArnar Þór Helgason
ÚtKristófer Orri Pétursson
83. mín
Bragi Karl með hörku skot sem Rafal nær að koma snertingu í þannig að botainn fer yfir markið. ÍR á hornspyrnu.
80. mín
WOW!
Bragi Karl Bjarkason (stoðsending: Óliver Elís Hlynsson)
Þeir voru ekki lengi að skora annað mark! Aftur er það Óliver sem er með frábæra fyrirgjöf inn í teiginn sem nær á Braga sem á öflugt skot á mark sem Rafal nær ekki að verja.77. mín
ÍR AÐ JAFNA!
Bergvin Fannar Helgason (stoðsending: Óliver Elís Hlynsson)
Óliver Elís er með lága fyrirgjöf sem nær á Bergvin sem er ódekkaður inn í teig og nær að vippa boltanum yfir Rafal í markinu.75. mín
ÍR vinnur hornspyrnu. Þeir vinna aðra hornspyrnu.
ÍR með flotta sókn eftir seinna hornið, en það endar á skoti sem Rafal nær að verja.
74. mín
Grótta á hornspyrnu
73. mín
InnAron Bjarki Jósepsson
ÚtPétur Theódór Árnason
72. mín
Gult spjald
Óliver Elís Hlynsson
Brýtur á Axel71. mín
InnAron Daníel Arnalds
ÚtKristján Atli Marteinsson
64. mín
InnAxel Sigurðarson
ÚtTómas Orri Róbertsson
59. mín
InnRenato Punyed Dubon
ÚtSæþór Ívan Viðarsson
59. mín
InnEmil Nói Sigurhjartarson
ÚtAlexander Kostic
59. mín
InnBergvin Fannar Helgason
ÚtHrafn Hallgrímsson
57. mín
ÍR vinna sér inn hornspyrnu.
ÍR fékk aðra hornspyrnu, en Rafal grípur boltann í því seinna.
57. mín
Það mætti halda að Grótta væru að spila einum manni fleiri í þessum leik, þeir hafa verið miklu betri aðilinn í þessum leik.
48. mín
MARK EINUM FÆRRI!
Tómas Orri Róbertsson (stoðsending: Patrik Orri Pétursson)
Patrik með ótrúlega langt innkast sem Vilhelm teygir sér í en nær ekki að grípa. Boltinn lendir á fæturnar á Tómasi og hann skýtur boltanum í tómt net.46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Guðjón Máni sparkar seinni í gang.
45. mín
Það endar markalaust í fyrri hálfleik, en ÍR menn eru einum fleiri eftir að Arnar var sentur í sturtu á 16. mínútu leiksins.
42. mín
Þrátt fyrir að vera einum færri hefur Grótta verið sterkara liðið seinustu mínútur. Það er þó erfitt að segja hvaða lið mun brjóta ísinn, mjög jafnur leikur.
40. mín
Alexander fær hnefan hans Timan í punginn. Hann segir svo við Timan what the fuck is wrong with you og pirrar sig út í Gunnari dómara. Gunnar þurfti að róa Alexander niður.
Athyglisvert atvik þar sem að Alexander er á gulu spjaldi.
34. mín
Gult spjald
Alexander Kostic
Setur takkana í magan á Kristófer Melsted31. mín
Tómas Orri fellur inn í teig eftir frábæra sendingu frá Kristófer Orra, en Gunnar Oddur sér ekkert í þessu og leikur heldur áfram
24. mín
ÍR vinnur sér hornspyrnu.
Boltinn endar í hliðarnetið.
18. mín
Grótta höfðu átt betri leik áður en rauða spjaldið fór á loft. Það verður spennandi að sjá hvort ÍR nær að nýta sér þetta vel.
16. mín
RAUTT SNEMMA!
Arnar Daníel Aðalsteinsson
Arnar hengur í Guðjóni Mána sem var sloppinn einn í gegn. Dómararnir tóku sinn tíma að tala sín á milli og ákveða dóminn. Rautt er það og Arnar er sendur snemma í sturtu15. mín
Grótta hafa spilað vel með boltann seinustu mínúturnar. Flott sókn hjá þeim sem enda með skoti hjá Pétri sem endar framhjá.
6. mín
Pétur með flotta skalla á markið, en Vilhelm er vakandi og grípur boltann.
4. mín
Gult spjald
Bragi Karl Bjarkason
Brýtur á Kristófer1. mín
Tómas sparkar leiknum í gang!
Fyrir leik
Bein útsending gegnum YouTube!
Fyrir leik
Byrjunarlið leiksins!
Chris gerir þrjár breytingar í byrjunarliðið sitt eftir 2-3 tap gegn Njarðvík í seinustu umferð.
Kristófer Melsted, Grímur Ingi og Pétur Theódór koma allir inn fyrir Eirik Solheim, Axel Sigurðarsyni og Aron Bjarka.
Árni gerir tvær breytingar í byrjunarliðið eftir 3-1 sigur gegn Fjölnir í seinustu umferð.
Hrafn Hallgríms og Alexander Kostic koma inn fyrir
Marc McAusland og Hákon Degi.
Fyrir leik
Seinustu viðureignir
Grótta og ÍR hafa ekki verið í sömu deild síðan árið 2017. Á þeim árum lenti Grótta í neðsta sæti Inkasso deildarinnar og ÍR í 10. sæti.
Spilað var á Vivaldivellinum þann 8. júní og tapaði Grótta gegn ÍR 1-2. Mark Grótta skoraði Alexander Kostic og Már Viðarson skoraði tvennu fyrir ÍR.
Gaman að segja frá því að Kostic spilar núna fyrir ÍR og mun leiða liðið sem fyrirliði í fjarveru McAusland í leiknum í dag.
Seinni viðureignin fór fram á Hertz vellinum þann 17. ágúst og vann ÍR þægilegan 3-1 sigur. Jón Gísli Ström skoraði tvö og Sergine Fall var með eitt. Ásgrímur Gunnarsson skoraði fyrir Gróttu.



Fyrir leik
Aðaldómari leiksins er Gunnar Oddur Hafliðason. Með honum til aðstoðar eru Bergur Daði Ágústsson og Ragnar Arelíus Sveinsson. Eftirlitsmaður leiksins frá KSÍ er Þorsteinn Ólafs. 

Fyrir leik
Staðan í töflunni
1. Njarðvík 19 stig
2. Fjölnir 17 stig
3. ÍBV 13 stig
4. Afturelding 11 stig
5. Keflavík 10 stig
6. Grindavík 10 stig
7. Grótta 10 stig
8. ÍR 9 stig
9. Dalvík/Reynir 7 stig
10. Þróttur R. 6 stig
11. Þór 6 stig
12. Leiknir R. 6 stig
Fyrir leik
Lengjudeildin > EM 2024
Gott kvöld og verið velkomin á beina textalýsingu á leik milli Grótta og ÍR sem fer fram á Vivaldivellinum. Þrátt fyrir spennandi viðureignir í EM í kvöld þá er Lengjudeildin alltaf margfallt skemmtilegari.
Leikurinn hefst á slaginu 19:15





