SKÝRSLAN: Fyrsta stig Fylkis í 61 dag
Hvað réði úrslitum?
Bæði lið fengu sín færi en góð markvarsla og slök færanýting kom í veg fyrir mark í leiknum. Þó svo að leikurinn hafi endað með markalausu jafntefli þá var hann opinn á köflum en jafntefli heilt yfir sanngjörn niðurstaða að mínu mati.
Bestu leikmenn
1. Tinna Brá Magnúsdóttir
Tinna varði það sem hún átti að verja og gott betur en það, frábær í marki Fylkis.
2. Marija Radojicic
Marija kom inná þegar 30 mínútur voru eftir og fannst mér hún vera hættulegasti leikmaður vallarins. Átti skot í slá og skapaði mikinn usla.
Atvikið
Fylkir gerði tilkall til vítaspyrnu undir lok leiks sem mér fannst vera pjúra víti, Gunnar Magnús þjálfari Fylkis var nálægt atvikinu og fannst Diodati strauja Helgu niður, atvikið leit líka þannig út úr blaðamannastúkunni.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkir jafnar Keflavík á stigum og koma sér úr botnsætinu vegna markatölu.
Víkingar eru í 5. sæti deildarinnar með jafn mörg stig og FH í 4. sæti.
Vondur dagur
Framlínur beggja liða hefðu átt að nýta færin betur því það var nóg af þeim, en enn og aftur vil ég hrósa markvörðum beggja liða. Annars erfitt að benda á einhvern sérstakan leikmann.
Dómarinn - 3
Mér fannst Bríet gera stór mistök í að dæma ekki víti undir lok leiks, Bríet sagði að Diodati hafi farið í boltann en mér fannst greinilegt að hún hafi farið í manninn.




