Leik lokið!
Öflugur sigur Fjölnismanna sem eru í góðum málum á toppi deildarinnar
93. mín
Klukkan tifar...
Fjölnismenn eru að styrkja stöðu sína á toppi deildarinnar.
91. mín
Höfum siglt inn í uppbótartíma
89. mín
InnÁrni Steinn Sigursteinsson
ÚtDagur Ingi Axelsson
89. mín
InnÓliver Dagur Thorlacius
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
88. mín
Stefan Bilic með skalla en dæmd aukaspyrna. Dagur Ingi Axelsson liggur á vellinum. Verður væntanlega þokkalegur uppbótartími.
87. mín
Fjölnismenn fara hrikalega illa með stórhættulega skyndisókn. Voru orðnir mjög fjölmennir frammi. Kristófer Dagur tekur stórundarlega ákvörðun og skýtur úr slæmri stöðu.
85. mín
Fjölnismenn að tefja
Halldór Snær Georgsson
84. mín
HALLDÓR SNÆR!
Markvörður Fjölnis með frábæra vörslu, fyrirgjöf og þrátt fyrir að vera lágvaxnasti maður vallarins nær Aron Einarsson góðum skalla en Halldór eins og köttur í markinu og ver vel.
82. mín
Hættuleg sókn hjá Leikni, boltinn af Gumma Kalla og afturfyrir. Heimamenn fá horn. Stefan Bilic í fínu færi eftir hornið en nær ekki að hitta boltann.
77. mín
InnSigurvin Reynisson
ÚtDaníel Ingvar Ingvarsson
76. mín
Bjarni Þór Hafstein með frábæra skottilraun! Rétt framhjá. Hefði verið draumamark.
75. mín
InnStefan Bilic
ÚtÞorsteinn Emil Jónsson
Leiknismenn gera breytingu sóknarlega og inn kemur Stefan Bilic, ungur og efnilegur sóknarmaður.
73. mín
FJÖLNIR SVOOOO NÁLÆGT!!!
Máni Austmann sólaði Andi Hoti snyrtilega og skaut svo naumlega framhjá.
71. mín
InnSigurður Gunnar Jónsson
ÚtMarko Zivkovic
71. mín
Gult spjald
Marko Zivkovic
Fór í glannalega tæklingu og lá eftir á grasinu. Erlendur dómari notaði hagnaðarregluna en hjálpaði Marko síðan á fætur og spjaldaði hann réttilega. Marko hefur lokið leik. Tankurinn tómur.70. mín
Guðmundur Karl með skot framhjá markinu.
69. mín
Dauðafæri!
Andi Hoti fær dauðafæri í teignum eftir hornspyrnu en nær ekki að stýra boltanum á markið. Þarna fékk Leiknir kjörið tækifæri til að jafna.
68. mín
Shkelzen með skot sem Baldvin Berndsen kemst fyrir, boltinn af höfði Baldvins og í hornspyrnu.
64. mín
Leikurinn stopp því Marko Zivkovic bakvörður Leiknis þarf aðhlynningu. Hlynur Helgi Arngrímsson sjúkraþjálfari skokkar hér inná með sinn glæsilega hlaupastíl.
59. mín
Leiknir ekki í fallsæti
Jöfnunarmark Keflavíkur gegn Gróttu gerir það að verkum að Leiknismenn eru komnir upp úr fallsæti.
58. mín
Baldvin Berndsen liggur í valnum eftir að Shkelzen tók þrumuskot sem fór í höfuð hans. Baldvin getur haldið leik áfram. Vont en það venst.
56. mín
MÁNI MEÐ SKOT RÉTT YFIR!
Mistök hjá Leiknismönnum sem tapa boltanum á hrikalegum stað. Boltinn fór af varnarmanni og yfir markið.
54. mín
Quental líflegur þessa stundina, reynir skot úr þröngu færi en Halldór Snær ver í hornspyrnu. Ekkert verður úr horninu.
52. mín
Máni Austmann kemst í gott skotfæri
En skotið ekki kröftugt og Viktor ekki í nokkrum vandræðum með að handsma boltann.
51. mín
Róbert Quental aðeins að leika listir sínar, tekur nokkur skæri og vinnur hornspyrnu sem Shkelzen tekur en heimamenn ná ekki að matreiða neitt úr henni.
49. mín
Leiknir er í fallsæti
Þar sem Grótta er yfir gegn Keflavík þá er Leiknir í fallsæti eins og staðan er nákvæmlega núna.
48. mín
Gult spjald
Hjalti Sigurðsson
Áminntur fyrir brot.47. mín
Kæruleysi í Leiknismönnum í byrjun seinni hálfleiks og gestirnir vinna hornspyrnu.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Það verður verk að vinna fyrir Leikni að brjóta öfluga vörn Fjölnismanna hér í kvöld, sérstaklega án Omar Sowe.
Hvernig er veðrið? Jú það er enn súld. Elskum súld.
46. mín
InnKristófer Dagur Arnarsson
ÚtAxel Freyr Harðarson
46. mín
InnBjarni Þór Hafstein
ÚtOrri Þórhallsson
45. mín
Fjölnir virðist ætla að gera skiptingar í hálfleik
Kristófer Dagur Arnarsson hefur æft af krafti í hálfleiknum og virðist tilbúinn að koma inná. Einnig Bjarni Þór Hafstein.
45. mín
Jafn og spennandi leikur
Komum aftur með seinni hálfleik eftir kaffibolla.
45. mín
Fjölnismaður féll niður í teignum rétt áður en Leiknir tók hornspyrnu. Sá ekkert hvað átti sér stað þarna. Erlendur heldur léttan fund með mönnum.
44. mín
FRÁBÆR VARSLA!
Shkelzen Veseli með flotta tilraun en Halldór Snær í marki Fölnis ver afskaplega vel út við stöngina.
42. mín
Gult spjald
Guðmundur Karl Guðmundsson
Sló boltann eftir að hafa farið niður í grasið.38. mín
Skemmtileg tilraun!
Hjalti Sigurðsson setur boltann naumlega framhjá fjærstönginni með hælspyrnu eftir sendingu frá Jóni Hrafni. Þarna hefði Leiknir getað jafnað.
34. mín
Orri Þórhallsson með skot sem Viktor í marki Leiknis á í vandræðum með en nær að verja, boltinn dettur á Daníel Ingvar sem á skot yfir markið.
30. mín
Andi Hoti kemur í veg fyrir mark
Máni Austmann sleppur í gegn en Andi hleypur hann uppi og nær að kasta sér fyrir skot hans.
24. mín
ÞÉTTINGSFAST SKOT!
Dagur Ingi Axelsson (stoðsending: Máni Austmann Hilmarsson)
Eftir innkast á Reynir Haraldsson fyrirgjöf sem Máni skallar á Dag Inga á fjærstönginni, hann nær virkilega góðu skoti úr frekar þröngri stöðu og boltinn syngur í netinu.22. mín
Hættuleg sókn heimamanna. Hjalti á skot en varnarmaður kemst fyrir.
18. mín
Fjölnir kemur boltanum í markið en réttilega dæmd aukaspyrna, brot í teignum. Hjalti keyrður niður.
15. mín
Hættuleg sókn Fjölnis
Dagur Ingi Axelsson kemur upp hægra megin og sendir fyrir, Máni Austmann í teignum og skýtur framhjá.
13. mín
Fyrsta tilraun Fjölnis
Gummi Kalli fyrirliði lætur vaða fyrir utan teig en framhjá fer boltinn.
10. mín
Róbert Quental með fyrstu marktilraun leiksins
Leiknir á fyrstu tilraun leiksins en skotið framhjá.
8. mín
Máni Austmann sparkaði Róbert Quental niður og fær létt tiltal frá Erlendi dómara.
4. mín
Þá er komið að Leiknismönnum að sækja. Þorsteinn Emil með sendingu í teignum sem Halldór Snær handsamar af miklu öryggi.
3. mín
Axel Freyr Fjölnismaður með fínan sprett og kemur sér inn í teiginn og sendir fyrir en Daði Bærings fyrirliði Breiðhyltinga hreinsar frá.
1. mín
Málarameistarinn hefur flautað til leiks
Leiknismenn hófu leikinn og sækja í átt að Breiðholtslaug í fyrri hálfleik.
0. mín
Liðin ganga út á völlinn
6. flokkur Leiknis labbar með liðunum út á völlinn en þessir efnilegu piltar eru með Heimaklettsbikarinn eftirsótta sem þeir unnu á Orkumótinu í Vestmannaeyjum á dögunum.
0. mín
Omar Sowe er ekki með Leikni í kvöld. Er að glíma við einhver meiðsli og því ekki leikfær. Högg fyrir Breiðholtsliðið. Þorsteinn Emil Jónsson kemur inn í hans stað.
Þá er bakvörðurinn Arnór Ingi Kristinsson í leikbanni eftir að hafa fengið rautt spjald í Vestmannaeyjum. Marko Zivkovic fær tækifærið í hans stað.
Omar Sowe ekki með Leikni

0. mín
Úlfur Arnar Jökulsson þjálfari Fjölnis er með óbreytt lið frá markalausa jafnteflinu gegn Keflavík í síðustu umferð. Það var ekki skemmtilegur leikur, vonandi verður skemmtanagildið mun hærra í kvöld.
Austmann tvíburarnir eru báðir á sínum stað en þeir eru fyrrum leikmenn Leiknis, mættir á sinn gamla heimavöll.
Úlfur breytir ekki jafnteflisliði

0. mín
Sumar og súld
Velkomin til leiks í Breiðholtinu. Fyrst ber að þakka Sölva Haraldssyni fyrir þræleðlilega upphitunarpunkta og skemmtiefni hér að neðan. Súldarsumarið mikla heldur áfram og það er ágætis gustur að auki hér á Domusnova-vellinum. En samkvæmt upplýsingum frá færustu veðurfræðingum landsins þá á að stytta upp rétt fyrir leik.
Það styttist í að byrjunarliðin verði opinberuð en það hvíslaði að mér lítill fugl að þar væri nú eitthvað áhugavert. Bíðið spennt!
0. mín
Leikurinn í beinni á Youtube
0. mín
Þriðja liðið
Það verður enginn annar en Erlendur Eiríksson sem mun dæma þennan leik í kvöld en honum til aðstoðar verða þeir Jovan Subic og Ronnarong Wongmahadthai. Eftirlitsmaður KSÍ er Hjalti Þór Halldórsson.

0. mín
Fyrri leikur liðanna
Liðin mættust fyrr á tímabilinu í afar bragðdaufum leik inni í Egilshöllinni. Þá unnu Fjölnismenn 1-0 sigur en mark Fjölnismanna skoraði Dagur Ingi Axelsson sem hefur byrjað tímabilið mjög vel fyrir Grafarvogsliðið.

0. mín
„Sérfræðingurinn“
Baldvin Már Borgarsson, sérfræðingur Fótbolta.net um Lengjudeildina, var ekki með neinn leik réttan þegar hann spáði í fyrstu umferðina.
Ég endurtek: sérfræðingur Fótbolta.net um Lengjudeildina var ekki með neinn leik réttan.
Með einhverjum ólíkindum fékk hann annað tækifæri og ég efast um að hann verði með einn réttan aftur en svona spáir hann leiknum í kvöld:
Leiknir 2 - 1 Fjölnir (í kvöld klukkan 19:15)
Deildin þéttist enn frekar með sigri Leiknis.
0. mín
Vonbrigða byrjun í efra Breiðholtinu
Miðað við væntingar fyrir tímabilið gátu Leiknismenn varla farið verr af stað. Vigfús Arnar fór eftir hræðilegt 5-0 tap í Keflavík en þá var liðið aðeins búið að vinna einn leik en tapa rest. Ólafur Hrannar hefur tekið við liðinu en það er allt annað að sjá Leiknisliðið í dag. Þeir byrjuðu að vinna þrjá leiki í röð eftir hans komu en núna seinast fóru þeir til Eyja og töpuðu 1-0 gegn ÍBV.

0. mín
Tróna einir á toppnum
Fjölnisliðið hefur byrjað leiktíðina gífurlega vel. Betur en öll hin lið deildarinnar en þeir eru á toppi deildarinnar með fjögurra marka forystu. Eini tapleikur Fjölnis í fyrri helming deildarinnar var gegn ÍR-ingum í Breiðholtinu en það er spurning hvort þeir munu vinna í Breiðholtinu í dag annað en þeir gerðu í Skógarselinu.
Fjórir Fjölnismenn í úrvalsliðinu
Máni Austmann er markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt Braga Karli, leikmanni ÍR, en Máni var valinn í úrvalslið fyrri umferðar deildarinnar, samt ekki Bragi. Það eru þrír aðrir Fjölnismenn í úrvalsliðinu.

0. mín
Lengjudeildarkvöld!
Veriði heil og sæl ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Leiknis og Fjölnis í Lengjudeildinni.






