97. mín
Rautt spjald
Leik lokið!
Aðalbjörn flautar til leiksloka, 5-1 lokatölur.
Viðtöl og skýrsla innan skams.
Viðtöl og skýrsla innan skams.
93. mín
Þeir gefa ekkert eftir!
Axel Freyr Harðarson (stoðsending: Reynir Haraldsson)
Axel Freyr fer í skotið fyrir utan teig, boltinn fer aðeins í varnarmann áður en hann syngur í netinu.90. mín
ÞRENNA!
Máni Austmann Hilmarsson
Sigurvin þræðir boltann á fjærsvæðið þar sem Máni Austmann kemur og setur boltann í netið!88. mín
Fjölnir að sigla þessu heim, lítið að gerast þessa stundina.
84. mín
InnMarinó Axel Helgason
ÚtIon Perelló Machi
84. mín
InnDagur Ingi Hammer Gunnarsson
ÚtAdam Árni Róbertsson
84. mín
InnSímon Logi Thasaphong
ÚtKwame Quee
84. mín
InnSigurvin Reynisson
ÚtDagur Ingi Axelsson
84. mín
InnJónatan Guðni Arnarsson
ÚtDaníel Ingvar Ingvarsson
78. mín
Sé ekki endurkomu í kortunum.
Máni að gera út um leikinn!
Máni Austmann Hilmarsson (stoðsending: Guðmundur Karl Guðmundsson )
Frábært spil milli Gumma Kalla og Mána í teig gestanna endar með skot-tæklingu Mána sem hafnar í netinu!Sé ekki endurkomu í kortunum.
77. mín
Dagur Ingi með sturlaða fyrirgjöf á Mána sem nær ekki til knattarins.
75. mín
Axel Freyr gerir vel og kemur með góða sendingu á Mána sem er í einn gegn markverði en Aron Dagur lokar vel á hann og ver skotið vel.
72. mín
InnAxel Freyr Harðarson
ÚtBjarni Þór Hafstein
67. mín
Gult spjald
Júlíus Mar Júlíusson
62. mín
InnKristófer Dagur Arnarsson
ÚtOrri Þórhallsson
61. mín
InnSölvi Snær Ásgeirsson
ÚtKristófer Konráðsson
60. mín
Öruggur!
Máni Austmann Hilmarsson
Máni sendir Aron Dag í rangt horn.57. mín
Streymið á leiknum frýs einmitt þegar atvikið á sér stað og enginn í blaðamannastúkunni sá atvikið en Grindvíkingar eru verulega ósáttir.
VÍTI OG RAUTT!!
Dennis Nieblas Moreno
Ég veit ekkert hvað gerðist þarna en Fjölnir fær vítaspyrnu!!!Streymið á leiknum frýs einmitt þegar atvikið á sér stað og enginn í blaðamannastúkunni sá atvikið en Grindvíkingar eru verulega ósáttir.
57. mín
Máni Austmann liggur niðri í teig Grindvíkinga, sá ekkert hvað gerðist.
50. mín
Adam Árni með marktilraun af stuttu færi sem Halldór Snær ver vel.
47. mín
Gott færi Fjölnis
Bjarni Þór Hafstein með góða takta og kemur með sendingu út í teiginn frá endalínu á Orra sem skýtur beint í varnarmann.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Heimamenn byrja með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Aðalbjörn flautar strax til hálfleiks eftir markið. Skemmtilegur fyrri hálfleikur þar sem bæði lið fengu færi en skilja jöfn að.
45. mín
Sterkt fyrir gestina að jafna rétt fyrir hálfleik.
Jafna á besta tíma!
Josip Krznaric
Josip Krznaric með hnitmiðað skot úr vítateignum sem endar í bláhorninu!Sterkt fyrir gestina að jafna rétt fyrir hálfleik.
45. mín
Gult spjald
Bjarni Þór Hafstein
Sparkar boltanum burt eftir brot.41. mín
Það rignir sóðalega mikið hér á Extra vellinum.
40. mín
Baldvin Berndsen í góðu færi í teignum en Aron Dagur ver vel í marki Grindvíkinga.
36. mín
Ein lélegasta dýfa sem ég hef séð
Adam Árni Róbertsson
Fer í harkalega tæklingu og fær gult. Svo tekur Adam skrautleg þegar hann hendir sér niður upp úr þurru og biður um spjald á Baldvin sem snerti hann ekki.29. mín
Bjarni Þór sker inn á völlinn frá vinstri og lætur vaða en skot hans fer framhjá marki gestanna.
25. mín
Grindvíkingar ógna
Adam Árni fær bolta í gegn og fer framhjá Halldóri Snæ markverði Fjölnis en er þá kominn í þrönga stöðu en tekur skotið sem fer rétt framhjá marki heimamanna.
Þarna munaði litlu.
Þarna munaði litlu.
21. mín
Fjölnir fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu.
15. mín
Júlíus Mar missir boltann á hættulegum stað sem aftasti maður, Kwame Quee vinnur boltann en fer beint í skotið af löngu færi sem fer langt framhjá.
11. mín
Bjarni brýtur ísinn!
Bjarni Þór Hafstein (stoðsending: Dagur Ingi Axelsson)
Dagur Ingi fær boltann í gegn, keyrir að marki og rennir boltanum svo til hliðar á Bjarna sem klárar vel einn gegn markverði.5. mín
Hættulegt færi
Darraðadans í teig Grindavíkur eftir hornspyrnu, boltinn dettur fyrir Orra Þórhalls sem á fast skot að marki sem fer í varnarmann.
4. mín
Máni Austmann með þrumuskot fyrir utan teig sem Aron Dagur ver vel.
3. mín
Ion Perelló dansar með boltann og tekur skot af löngu færi sem Halldór ver örugglega í marki Fjölnismanna.
1. mín
Kwame Quee fellur við í teig Fjölnismanna en ekkert dæmt, rétt að mínu mati.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Gestirnir byrja með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga til vallar
Nú styttist í að þetta hefjist.
Fyrir leik
LEIKDAGUR!!! ????
— Fjölnir FC (@Fjolnir_FC) July 18, 2024
?? Fjölnir - Grindavík
? Fimmtudaginn 18. júlí kl. 18:00
???? Extra völlurinn
???? Sjoppan verður á sínum stað! Pizzur, borgarar og kaldar veigar í boði ????
???? https://t.co/HjFse49dO5
Hlökkum til að sjá ykkur! Áfram Fjölnir!!#FélagiðOkkar ???????? pic.twitter.com/l7j1eAWx4Q
Fyrir leik
Keli spáir í spilin
Hrafnkell Freyr Ágústsson, fótboltasérfræðingur, málari og lífskúnstner spáir Fjölni sigri í kvöld.
Fjölnir 3 - 1 Grindavík
,,Þó minn maður Halli Hróðmars hafi byrjað vel þá hefur komið smá dýfa í þetta. Ég held að Fjölnismenn séu einfaldlega of sterkir fyrir Grindvíkinga á þessum tímapunkti. Júlíus Mar er að fara að setja hann með skalla í þessum leik, það er bara svoleiðis."

Fjölnir 3 - 1 Grindavík
,,Þó minn maður Halli Hróðmars hafi byrjað vel þá hefur komið smá dýfa í þetta. Ég held að Fjölnismenn séu einfaldlega of sterkir fyrir Grindvíkinga á þessum tímapunkti. Júlíus Mar er að fara að setja hann með skalla í þessum leik, það er bara svoleiðis."

Fyrir leik
Staðan
Fjölnir eru á toppi deildarinnar með 26 stig og eru með sex stiga forskot á Njarðvík sem eru í 2. sæti deildarinnar.
Grindvíkingar töpuðu illa 3-0 gegn ÍR í síðasta leik en Haraldur Hróðmarsson þjálfari Grindavíkur talaði um þreytu í liðinu eftir leik. Grindvíkingar eru í 6. sæti deildarinnar en gengi liðsins hefur batnað til muna eftir að Haraldur tók við liðinu.

Grindvíkingar töpuðu illa 3-0 gegn ÍR í síðasta leik en Haraldur Hróðmarsson þjálfari Grindavíkur talaði um þreytu í liðinu eftir leik. Grindvíkingar eru í 6. sæti deildarinnar en gengi liðsins hefur batnað til muna eftir að Haraldur tók við liðinu.

Fyrir leik
Extra völlurinn heilsar!
Heilir og sælir lesendur góðir og veriði velkomin í beina textalýsingu beint frá Extra vellinum þar sem Fjölnir tekur á móti Grindavík í 13. umferð Lengjudeildarinnar.






Marinó Axel Helgason
Marinó með almenn leiðindi og fær að líta rauða spjaldið eftir leik.