Fotbolti.net
Eyþór Daði Kjartansson
Lengjudeild karla
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
1 - 0
Dalvík/Reynir
Dalvík/Reynir
Oliver Heiðarsson 11'1 - 0Hermann Þór Ragnarsson 42'90' Matheus Bissi Da Silva
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Leik lokið!
Fullt af spjöldum og ÍBV sáttir með 3. stig.
Dalvík/Reynir
90. mín
Gult spjald

Þröstur Mikael Jónasson

ÍBV
90. mín
InnBjarki Björn Gunnarsson
ÚtTómas Bent Magnússon
Dalvík/Reynir
90. mín
Rautt spjald

Matheus Bissi Da Silva

Slær Oliver og lætur síðan Þórð heyra það aðeins. Þetta var eins mikið gult spjald og það gerist. Hann er líklega pirraðari yfir fyrra gula spjaldinu.
Dalvík/Reynir
89. mín
InnViktor Daði Sævaldsson
ÚtRúnar Helgi Björnsson
Dalvík/Reynir
87. mín
Gult spjald

Matheus Bissi Da Silva

Oliver hleypur upp allan völlinn og Bissi endar á að brjóta á honum út í horni. Þeir ráða ekkert við hraðann í Oliver.
ÍBV
82. mín
InnSigurður Grétar Benónýsson
ÚtFelix Örn Friðriksson
ÍBV
82. mín
InnHenrik Máni B. Hilmarsson
ÚtSverrir Páll Hjaltested
Dalvík/Reynir
79. mín
InnDagbjartur Búi Davíðsson
ÚtFreyr Jónsson
72. mín
Dalvíkingar brjálaðir og vilja fá víti. Sigurður Arnar fer í boltann og tekur síðan Áka niður inn í teig. Þórður vel staðsettur og hristir hausinn.
69. mín
Inn
ÚtEyþór Orri Ómarsson
Fáum því miður ekki mark frá Eyþóri í dag. Nökkvi Már kemur inn í vinstri bakvörðinn og Felix fer út á kantinn.
63. mín
Dalvíkingar fá horn. Alejandro á skalla rétt framhjá.
61. mín
Áki á fína tilraun eftir góðan undirbúning frá Amin. Hjörvar blakar boltanum yfir og Dalvík fær horn. Ekkert kemur úr horninu.
50. mín
Eyjamenn verjast rosalega neðarlega. Oliver er orðinn fremsti maður og Sverrir og Eyþór eru á sitthvorum kantinum.
ÍBV
46. mín
InnSigurður Arnar Magnússon
ÚtGuðjón Ernir Hrafnkelsson
Guðjón búinn að vera að glíma við meiðsli. Sigurður kemur inn í hafsent og Eiður fer í hægri bakvörðinn.
46. mín
Leikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
ÍBV
45. mín
Gult spjald

Felix Örn Friðriksson

Þórður duglegur að spjalda í dag
45. mín
Hjörvar með rosalega vörslu, Áki gerir virkilega vel og á frábært skot í fjærhornið en Hjörvar nær að teigja sig vel í hornið og blaka honum út.
ÍBV
42. mín
Gult spjald

Hermann Hreiðarsson

Ekki alveg sáttur með þessa álvörðun
Dalvík/Reynir
42. mín
Gult spjald

Rúnar Helgi Björnsson

Tekur Hermann niður við hliðarlínu
ÍBV
42. mín
Rautt spjald

Hermann Þór Ragnarsson

Sparkar í Rúnar sem tók hann niður við hliðarlínuna. Sá þetta ekki vel en miðað við viðbrögð þá held ég að þetta hafi verið rétt.
Dalvík/Reynir
37. mín
Gult spjald

Hassan Jalloh

Alltof seinn og fer í Hjörvar sem liggur eftir
Dalvík/Reynir
35. mín
InnAlejandro Zambrano Martin
ÚtBjarmi Fannar Óskarsson
Taktísk skipting
ÍBV
27. mín
Gult spjald

Eyþór Orri Ómarsson

Sparkar boltanum í burtu eftir að Þórður flautar. Hann skilur ekkert í þessu.
Dalvík/Reynir
21. mín
Gult spjald

Nikola Kristinn Stojanovic

Tæklar Sverri alveg við hliðarlínu. Klárt gult.
ÍBV
11. mín
Eyjamenn ekki lengi að þessu!

Oliver Heiðarsson

Felix vinnur boltann hátt uppi á vellinum of keyrir inn á hægri fótinn. Hann á gott skot sem Franko ver út í teiginn þar sem Oliver er mættur og setur boltann upp í þaknetið.
9. mín
ÍBV fær horn en boltinn frá Jóni er of hár fyrir Tómas Bent sem var aleinn á fjærstönginni.
6. mín
ÍBV átti í miklum erfiðleikum að eiga við hraða sóknarlínu Dalvíkur í fyrri viðureign liðanna. Eyjamenn eru að spila með háa línu og mikið pláss til að sækja í fyrir gestina.
3. mín
ÍBV stillir upp í sitt klassíska 4-2-3-1 og Dalvík/Reynir eru í 5-4-1. Eyþór Orri er í tíunni hjá Eyjamönnum og ekki láta ykkur bregða ef hann skorar nokkur í dag.
1. mín
Það eru gestirnir sem byrja með boltann í blíðunni á Hásteinsvelli. Sækja í átt að Týsvelli.
Fyrir leik
ÍBV gerir 4 breytingar á sínu liði frá 2-1 tapi gegn Þrótti í síðustu umferð. Hjörvar Daði kemur inn í markið ásamt Eyþór Orra, Guðjón Erni og Sverri Pál. Þá fara Jón Kristinn, Sigurður Arnar og Nökkvi Már á bekkinn. Alex Freyr fyrirliði ÍBV er í leikbanni.

Hjörvar Daði er búinn að vera á varamannabekk ÍBV 6 leiki í röð en er núna kominn aftur í markið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dalvík/Reynir vann óvænt í fyrri leiknum
Liðin mættust í 1. umferðinni í byrjun maí en þá unnu heimamenn 3-1 sigur á Dalvík.

Dalvík/Reynir 3 - 1 ÍBV
1-0 Abdeen Temitope Abdul (4)
2-0 Abdeen Temitope Abdul ('15)
2-1 Sverrir Páll Hjaltested ('22 , víti)
3-1 Borja López ('70)
Fyrir leik
Dómarateymið
Skagamaðurinn Þórður Þorsteinn Þórðarson dæmir leikinn í dag en hann er með þá Antoníus Bjarka Halldórsson og Daníel Inga Þórisson sér til aðstoðar á línunum.

Þórður Ingi Guðjóhsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fyrir leik
Leikdagur í eyjum
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Hásteinsvelli í Vestmanneyjum.

Hér mætast ÍBV og Dalvík/Reynir í Lengjudeild karla. Leikurinn hefst klukkan 13:00.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.