Fotbolti.net
@fotboltinetLogi Freyr Gissurarson
Selfoss
Selfoss
2. deild karla
JÁVERK-völlurinn
Sól, heitt og pínu gola. Fullkomnar aðstæður til að skella sér á völlinn
3 - 4
Völsungur
Völsungur
Gonzalo Zamorano Leon 6'1 - 01 - 150' Jakob Gunnar Sigurðsson1 - 254' Dagur Jósefsson (sjm)Reynir Freyr Sveinsson 73'2 - 2Arnar Pálmi Kristjánsson (sjm) 79'3 - 23 - 392' Jakob Gunnar Sigurðsson3 - 493' Óskar Ásgeirsson
Dómari: Reynir Ingi Finnsson

SKÝRSLAN: Sjö marka veisla, rautt og tvö mörk í uppbótartíma á Selfossi

Hvað réði úrslitum?

Leikur sem var fram og til baka allan tímann þar sem bæði lið fóru úr sínu upphaflega skipulagi á skrítnum tímapunktum og eftir svakalegar loka mínútur náðu Völsungur að skora 2 mörk á 2 mínútum í uppbótartíma

Bestu leikmenn

1. Jakob Gunnar Sigurðsson (Völsungur)

Skoraði tvö góð og mikilvæg mörk og var stórhættulegur alltaf þegar boltinn kom inní teig Selfoss

2. Reynir Freyr Sveinsson (Selfoss)

Skoraði fallegt mark og náði að setja mikla pressu á Arnar sem neyddist til að stýra boltanum í eigið net

Atvikið

Fjórða mark Völsungs á þriðju mínútu uppbótartíma sem kom aðeins 50 sekúndum eftir að þeir náðu að jafna leikinn

Hvað þýða úrslitin?

Selfoss enn á toppi deildarinnar en ná ekki að koma sér í betri stöðu eftir að KFA tapaði gegn Víking Ó fyrri í dag en Völsungur lyftir sér í 4. sæti fjórum stigum á eftir Víking Ó sem er í öðru sæti

Vondur dagur

Vondur dagur hjá Selfyssingum sem komast yfir einum færri en fá svo tvö mörk á sig í uppbótartíma og missa dýrmæt þrjú stig frá sér

Dómarinn - 9/10

Mikið að gera í leiknum og náði að höndla allt mjög vel og allar stóru ákvarðanir sem hann tók voru réttar og hélt sinni línu allan leikinn
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.