Fotbolti.net
Besta deildin
Matthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Besta-deild karla
ELKEM völlurinn
Hæglyndisveður, 14 gráður og léttskýjað
ÍA
ÍA
1 - 0
Fram
Fram
Viktor Jónsson 46'1 - 0
Dómari: Pétur Guðmundsson
Leik lokið!
Sigur ÍA staðreynd og sá fyrsti í síðustu fjórum leikjum. Gríðarmikilvægur sigur í baráttunni um efri helminginn og Evrópu. Viðtöl og umfjöllun koma innan skamms á síðuna.
Fram
99. mín
Gult spjald

Þorri Stefán Þorbjörnsson

98. mín
Þetta er að renna út
Skagamenn eru að tryggja sér langþráðan sigur....
Fram
94. mín
Gult spjald

Magnús Þórðarson

ÍA
91. mín
Gult spjald

Hilmar Elís Hilmarsson

90. mín
ÁTTA MÍNÚTUM BÆTT VIÐ!
Það er nóg eftir!
88. mín
Áiiiiii
Ingi Þór liggur eftir, eftir samstuð við Harald Einar og fékk högg á miðsvæðið. Var sjáanlega gríðarlega sárt.
87. mín
Frábær markvarsla
Þorri með skot að marki eftir hornspyrnu og klafs í teig ÍA en Árni Marínó varði gríðarvel.
86. mín
Liðin eru að gírast upp
Það er hraði og harka og ákefð í leiknum eins og stendur. Fram ætlar að jafna leikinn og ÍA vill bæta við.
ÍA
84. mín
InnGuðfinnur Þór Leósson
ÚtHaukur Andri Haraldsson
Fram
84. mín
InnMarkús Páll Ellertsson
ÚtDjenairo Daniels
Fram
84. mín
InnAdam Örn Arnarson
ÚtAlex Freyr Elísson
ÍA
82. mín
InnRúnar Már S Sigurjónsson
ÚtSteinar Þorsteinsson
81. mín
RMSS að gera sig kláran
Rúnar Már S. Sigurjónsson að gera sig kláran í að koma inn á í sínum fyrsta leik síðan 25. mai síðastliðinn
79. mín
Dauðafæri!
Jón Gísli með frábæra fyrirgjöf hátt inn í teiginn en Hauki Andra vantaði nokkra sentimetra upp á að hitta hann beint fyrir framan markið.
ÍA
78. mín
Gult spjald

Steinar Þorsteinsson

77. mín
Skot í stöng
Aukaspyrnan frá Haraldi sleikti utanverða stöngina.
75. mín
Fram fær aukaspyrnu við D bogann eftir skot frá Haraldi sem fór í hönd varnarmann ÍA.
Fram
73. mín
InnMagnús Þórðarson
ÚtFreyr Sigurðsson
ÍA
70. mín
Fyrir mótmæli

Jón Þór Hauksson

Fram
70. mín
Gult spjald

Sigfús Árni Guðmundsson

69. mín
Bjargað á línu!
Kennie bjargaði á línu! Jón Gisli sendir boltann fyrir markið, Hinrik nær skottilraun og af varnarmanni sem varð til þess að Kennie þurfti að bjarga á línu.
67. mín
Númerin alveg eins
Treyjunúmerin hjá Hinrik, Inga Þór og Hauki Andra líta ansi svipuð út héðan úr blaðamannastúkunni. 11, 17 og 77.
ÍA
66. mín
InnHinrik Harðarson
ÚtMarko Vardic
HH að gera sig kláran í að koma inn á
Það er komið að skiptingu. Hinrik Harðarson að koma inn á fyrir Marko, sóknarsinnuð skipting.
Fram
61. mín
InnSigfús Árni Guðmundsson
ÚtOrri Sigurjónsson
57. mín
Jón Þór ekki sáttur við sína menn
Þótt Skagamenn séu yfir að þá eru Frammarar með völdin á vellinum og hafa verið það síðustu mínutur og eru að þrýsta Skagamönnum vel aftur. Jón Þór öskar reglulega á sína menn og jafnvel á stundum hoppar í boðvanginum af pirringi yfir spilamennskunni.
53. mín
Rétt framhjá!
Fred með skemmtilega stungusendingu inn fyrir vörn ÍA, Haraldur Einar kemst upp að endalínu og nær skoti en boltinn siglir framhjá marki Skagamanna.
51. mín
Þetta var það sem leikurinn þurfti
Ég er hræddur um að hefði ekki komið mark snemma i seinni hálfleik hefði hann orðið jafn leiðinlegur og sá fyrri en nú þurfa Frammarar að opna sig og við það gæti leikurinn opnast enn meira.
ÍA
46. mín
MAAAARRRKKKKK

Viktor Jónsson (stoðsending: Ingi Þór Sigurðsson)

Það er reikistefna á því hvort að Viktor hafi skorað eða Kennie sett hann í eigið net. Ég ætla að halda mig við að Viktor hafi skorað.

Viktor fékk sendingu inn í teig, algjörlega opinn fyrir framan Óla í markinu og þar vill enginn varnamaður eða markmaður hafa Viktor. Hann leggur hann snyrtilega fyrir sig og nær skoti, Óli ver en Viktor nær öðru skoti og boltinn er á leið í markið en Kennie virtist ýta við honum inn. En eins og ég segi. Skráum þetta á Viktor
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Heimamenn byrja með boltann! Vonandi fáum við meiri hressleika í seinni hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Kaffi og með´ðí
Það var einni mín bætt við en likt og hinar 45 gerðist ekkert. Kominn hálfleikur og ég ætla að fá mér börger. Sjáumst að vörmu
42. mín
Skot nr 2 að marki Fram
Jón Gísli með þrumuskot upp úr þurru langt utan af velli, beint á mark Fram en Ólafur Íshólm þurfti að hafa sig allan við að verja.
36. mín
Fyrsta alvöru færi Fram
En samt ekki....

Djenairo fær sendingu inn í teig ÍA og nær að leggja boltann fyrir framan sig en Erik Sandberg rennir sér í boltann og út af.
33. mín
Afsakið fátíðar færslur
Þetta er svo hægt og leiðinlegt. Liðin eru enn í sama fasa, spila stutt á milli sín, þétt varnarlega og manni finnst á stundum eins og það sé verið að bíða eftir að leiknum sé lokið og þeir geti farið í sturtu.
25. mín
Jón Þór sendir varamennina í að hita upp
Ég er að reyna að finna einhverja punkta til að skrifa um en það er fátt.
20. mín
Virða stigið
Það er augljóst að þessi leikur skiptir bæði lið miklu máli í baráttunni um efri hlutann á deildinni og í kjölfarið á því, mögulegu Evrópusæti að ári. Þau eru afskaplega varfærin og ekki að taka neina sénsa. En fyrir áhorfendur mega þeir alveg fara að gera það. Annars skipti ég yfir á bold and the beautiful.
18. mín
Þetta hefur verið sárt
Haukur Andri hljóp á Kennie og lenti með andlitið á olnboganum, alls ekki viljaverk hjá Kennie en brot dæmt.
11. mín
Málning að þorna
Voðalega lítið að gerast í þessum leik. Liðin eru að spila stutt manna á milli en ekkert að gerast sóknarlega. Þetta er bara leiðinlegt.
6. mín
Fyrsta skot að marki
Búið að vera rólegt en Skagamenn komust í sókn. Johannes Vall með fyrirgjöf, boltinn lenti fyrir fæturnar á Steinari sem náði skoti að marki en af varnarmanni og útaf.
1. mín
Leikur hafinn
Let´s go!
Gestirnir byrja með boltann og spila í átt að Akraneshöllinni.
Fyrir leik
Beðist velvirðingar!
Ég talaði um Norðurálsvöllinn hér fyrr í textalýsingunni en að sjálfsögðu heitir völlurinn í dag ELKEM-völlurinn.
Fyrir leik
Skotið á Stjörnuna
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin í hús
Skagamenn gera fjórar breytingar á liði sínu eftir jafnteflið gegn Vestra. Johannes Val, Ingi Þór Sigurðsson, Hilmar Elís Hilmarsson og Jón Gísli Eyland koma inn í byrjunarliðið á meðan Hlynur Sævar Jónsson, Hinrik Harðarson, Árni Salvar Heimisson og Arnleifur Hjörleifsson setjast á bekkinn

Fram gerir þrjár breytingar eftir sigurinn á Stjörnunni í síðustu umferð. Orri Sigurjónsson, Freyr Sigurðsson og Alex Freyr Elísson koma inn í stað Tryggva Snæ Geirsson, Má Ægisson og Tiago en enginn þeirra er í hóp þeirra í dag. Már Ægis er farinn út í skóla en hinir tveir hljóta að vera að glíma við meiðsli.
Fyrir leik
Dómararnir
Pétur Guðmundsson heldur um flautuna í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bryngeir Valdimarsson er AD1
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður Arnar Árnason er AD2 (lengst til vinstri á þessari mynd)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Félagskiptagluggin pt.2
ÍA tilkynnti í lok júlí að Haukur Andri Haraldsson væri genginn til liðs við ÍA á láni þangað til í Júní á næsta ári frá franska liðinu Lille þar sem hann hefur verið frá því í fyrra er ÍA seldi hann þangað. Þar spilaði Haukur Andri með unglingaliði Lille.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Félagaskiptaglugginn
Fram fékk inn Hollenskan sóknarmann í glugganum, hann Djenairo Daniels og spilaði hann sinn fyrsta leik fyrir Fram í leiknum á móti Stjörnunni og skoraði mark í sínum fyrsta leik fyrir félagið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Svo kynnti Fram í gær að Breki Baldursson hefði verið seldur til Esbjerg
Mynd: Esbjerg

Fyrir leik
Staðan
Fyrir leikinn í kvöld sitja gestirnir í Fram í 5. sæti deildarinnar með 26. stig. Þeir unnu góðan sigur á Stjörnunni í síðustu umferð með marki á lokasekúndum leiksins 2 - 1.

Skagamenn sitja í 6. sæti deildarinnar með 25. stig. Gengi þeirra í sumar hefur verið nokkuð gott líkt og tölur bera með sér en síðustu leikir hafa ekki gengið vel. Eftir stórgóðan 8 - 0 sigur á HK í byrjun júli hafa þeir spilað 4 leiki og tapað tveimur þeirra og gert tvö jafntefli.
Fyrir leik
Arnór Smára í áhugaverðu viðtali
Sæbjörn Þór Steinke fréttamaður á Fótbolti.net ræddi við fyrirliða ÍA, Arnór Smárson í síðustu viku og úr varð áhugavert viðtal. Arnór hefur verið að glíma við kviðslitsmeiðsli gríðarlega lengi og þurfti að fara í aðgerð núna loksins og verður því frá keppni í einhverjar vikur.

Fyrir leik
ÍA heldur í hefðir sumarsins
Þeir bjóða upp á Fan-Zone líkt og þeir hafa gert í allt sumar.
Fyrir leik
FlórídaSkaginn heilsar
Hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá leik á Norðurálsvellinum á Akranesi í 18. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Heimamenn fá þá gestina úr Úlfársárdal í Fram í heimsókn. Sannkallaður stórveldaslagur áttunnar í gangi í kvöld. Leikurinn hefst kl. 18:15 og ætla ég að fylgja ykkur í gegnum alla gleðina.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.