SKÝRSLAN: Langþráður sigur Grindavíkur
Hvað réði úrslitum?
Grindavík var betri aðilinn á öllum sviðum leiksins í dag. Virkilega verðskuldaður sigur
Bestu leikmenn
1. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson
Sí ógnandi og flottur. Skoraði mark og djöflaðist allann leikinn
2. Einar Karl Ingvarsson
Geggjað aukaspyrnumark. Góður í dag.
Atvikið
Mark númer tvö. Aron Birkir virðist vera að grípa fyrirgjöf en missir síðan boltann klaufalega og Grindavík tvöfaldar forystuna. Efti það var aldrei spurning um úrslitin
Hvað þýða úrslitin?
Liðin hafa sætaskipti. Grindavík fær smá andrými í 8. sætinu en Þórsarar sitja eftir í níunda sæti.
Vondur dagur
Það eru tvö "take" möguleg hérna. Aron Birkir í marki Þórs missti boltann ansi klaufalega í marki tvö. Að sama skapi var sóknarlína Þórsarar alveg ákaflega bitlaus í kvöld. Alls ekki slakur leikur hjá Þór úti á velli en maður hafði á tilfinningunni að þeir hefðu getað spilað fram á sunnudag án þess að skora.
Dómarinn - 8
Mjög flottur leikur hjá honum



