Fotbolti.net
@YearmanEagleÁrmann Örn Guðbjörnsson
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
2. deild karla
Ólafsvíkurvöllur
Smávægilegur norðaustan gustur og sól
3 - 1
Kormákur/Hvöt
Kormákur/​Hvöt
Luke Williams 3'1 - 0Luis Alberto Diez Ocerin 14'2 - 02 - 152' Ingvi Rafn IngvarssonGary John Martin (víti) 61'3 - 1
Dómari: Jovan Subic
Myndir: Tómas Freyr Kristjánsson

SKÝRSLAN: Grátlegur endir á tímabili Víkings Ó

Hvað réði úrslitum?

Betra liðið vann, svo einfalt er það. Víkingar skoruðu tvö stórglæsileg mörk í fyrri hálfleik og sigldu þessu svo bara heim, eitt mark frá gestunum kom ekki að sök áður en Gary Martin kvaddi af vítapunktinum

Bestu leikmenn

1. Asmer Begic

Heimastrákurinn, kantmaður með gæði og fleira.

2. Gary John Martin/Luke Williams

Gary fyrir markið og sína endalausu barátttugleði. Luke fyrir að vera besti leikmaður vallarins en hann lék bara fyrri hálfleikinn þannig Englendingarnir deila þessu.

Atvikið

Þegar Gary skoraði af punktinum og þegar Brynjar skipti honum af velli, Takk Gary.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur endar tímabilið í 4. sæti deildarinnar, stigi frá 2. sætinu og Lengjudeildinni. Gríðarlega svekkjandi endir á tímabili Víkinga, tala nú ekki um þar sem þeir töpuðu tveimur stigum á útivelli gegn Ægi í næstsíðustu umferð, með sigri þar væri Víkingur að fara leika í Lengjudeildinni en allt kom fyrir ekki.

Vondur dagur

Skrítið að segja það en í rauninni enginn sem átti eitthvað slæman dag. Mögulega hægt að setja þetta á miðju Kormáks/Hvatar en í ljósi úrslita ætla ég að setja þetta á útivallargengi Víkings Ólafsvíkur í sumar.

Dómarinn - 10

Negldi allt sem negla þurfti í þessum leik, stjórnaði leiknum vel og allt eftir bókinni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.