Amalía Árnadóttir
Agnes Birta Stefánsdóttir
Keyrir aftan í Katrínu og hárrétt gult spjald hjá ÞÞÞ.Sandra María Jessen
Skrýtin vörn hjá Blikakonum. Boltinn dettur fyrir fætur Söndru Maríu sem gerir vel í að búa til færið, þrumar í hægra hornið uppi og skotið of fast fyrir Telmu, sem er þó í boltanum.Vigdís Lilja Kristjánsdóttir (stoðsending: Andrea Rut Bjarnadóttir)
Aldrei horft upp á annað eins á milli liða sem á ekki að vera meira á milli. Það er bara verið að spila á annað markið hérna.Klafs, meira klafs og Vigdís þrýstir boltanum yfir línuna. Þetta er magnað.
Kristín Dís Árnadóttir (stoðsending: Samantha Rose Smith)
Sam "Sammy" Smith keyrir upp hægri kantinn, er alls ekki the only one eins og segir í laginu, en nær samt þessari glæsilegu fyrirgjöf sem svífur alveg yfir á fjærstöngina þar sem Kristín stangar boltann í netið. 5-0 Breiðablik burst.Er Samantha “Sammy” Rose Smith besta signing í sumarglugganum í kvennabolta á Íslandi?
— Orri Rafn Sigurdarson (@OrriRafn) September 22, 2024
Hvernig F/H/L fékk hana bara í 1.deildina og Breiðablik fær hana svo lánaða og hún virðist ætla verða vendipunkturinn í íslandsmeistarabaráttunni.
Þvílíkur gæða leikmaður #fotboltinet pic.twitter.com/WecWw2cPTA
Andrea Rut Bjarnadóttir (stoðsending: Vigdís Lilja Kristjánsdóttir)
Andrea Rut fær boltann fyrir utan teig frá Vigdísi, tekur nokkur skref til vinstri við Huldu og setur boltann laust en hárnákvæmt framhjá Shelby og botinn lekur í hornið. Þetta stefnir í rúst.Samantha Rose Smith (stoðsending: Agla María Albertsdóttir )
Þessi kona er unplayable. Setjið boltann á hana og hún skorar. Glæsileg hornspyrna hinu megin frá, frá Öglu Maríu aftur, sem Sam stangar í netið eftir að hafa risið kvenna hæst í teignum.Samantha Rose Smith (stoðsending: Agla María Albertsdóttir )
Klessuhorn sem Sam keyrir aftur fyrir og sendingin úr horninu frá Öglu Maríu gjörsamlega upp á 10,5. Sam fær boltann á markteignum og setur hann auðveldlega í markið. 2-0 Breiðablik!Samantha Rose Smith (stoðsending: Andrea Rut Bjarnadóttir)
Agla María skýtur í stöngina og Andrea Rut nær frákastinu. Sendir á Sam sem skorar örugglega. 1-0 Breiðablik!

Hér í dag mætast Breiðablik og Þór/KA, en liðin eru, eins og gefur að skilja, bæði í efri hluta deildarinnar.
Byrjum að sjálfsögðu á að óska helming Þórs/KA til hamingju með bikarmeistaratitil karla sem KA vann á Laugardalsvelli í gær.





