Fotbolti.net
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Fjölnir
Fjölnir
Lengjudeildin - Umspil
Extra völlurinn
Sól og blíða
0 - 0
Afturelding
Afturelding
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Afturelding í úrslit eftir hundleiðinlegan leik

Hvað réði úrslitum?

Fjölnismenn voru mun meira með boltann en voru einstaklega bitlausir fram á við, hugmyndasnauðir og kraftlitlir. Leikurinn spilaðist eins og Afturelding vildi hafa hann og náðu þeir að svæfa leikinn. Frábærlega uppsettur leikur hjá þjálfurum Aftureldingar en útkoman einn af leiðinlegri leikjum sem ég hef horft á. Mosfellingum gætu þó ekki verið meira saman því þeir eru á leiðinni í úrslitaleik á Laugardalsvelli.

Bestu leikmenn

1. Jökull Andrésson

Jökull greip ótal fyrirgjafir og átti góða vörslu undir lok leiks.

2. Aron Elí Sævarsson

Fyrirliðinn flottur í dag, Afturelding vörðust vel og áttu Fjölnismenn mjög erfitt með að opna þá.

Atvikið

Líklegast lokaflaut leiksins og fögnuður stuðningsmanna, ekki mikið annað sem stóð upp úr í dag.

Hvað þýða úrslitin?

Afturelding leikur til úrslita um sæti í Bestu-deildinni á Laugardalsvelli gegn Keflavík næstkomandi laugardag.

Vondur dagur

Sóknarmenn Fjölnis ógnuðu lítið sem ekkert, náðu ekki að opna lágu vörn Aftureldingar. Bitlausir framherjar Fjölnis fá þessa nafnbót í dag.

Dómarinn - 8

Afturelding gerði tilkall til vítaspyrnu í seinni hálfleik en mér sýndist Vilhjálmur Alvar negla þá ákvörðun að sleppa vítinu. Flottur dagur hjá tríóinu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.