Fotbolti.net
Besta deildin
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Valur
Valur
Besta-deild karla - Efri hluti
N1-völlurinn Hlíðarenda
Mjög hvasst frekar kalt
6 - 1
ÍA
ÍA
Sigurður Egill Lárusson 5'1 - 0Patrick Pedersen 12'2 - 02 - 131' Steinar Þorsteinsson Tryggvi Hrafn Haraldsson 39'3 - 1Albin Skoglund 43'4 - 1Gylfi Þór Sigurðsson 78'5 - 1Lúkas Logi Heimisson 79'6 - 1
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Markasýning í lokaleiknum

Hvað réði úrslitum?

Valsmenn mætu til leiks en það gerðu Skagamenn ekki. Maður hafði örlitla von fyrir hönd Skagamanna að þeir myndu ná að koma til baka eftir að Steinar Þorsteinsson minnkaði muninn í 2-1 en þegar 3-1 markið kom vissi maður alveg hvernig þetta væri að fara.

Bestu leikmenn

1. Jónatan Ingi Jónsson

Leggur upp þrjú mörk og var mjög góður fram á við. Gífurlega gott tímabil hjá honum persónulega og með betri mönnum tímabilsins klárlega hjá Val.

2. Gylfi Þór Sigurðsson

Gylfi var gífurlega góður í dag enda besti leikmaður deildarinnar. Það var ótrúlegt markið hans sem gulltrygði þetta nánast.

Atvikið

Birkir Már Sævarsson fékk heiðurskiptingu undir lok leiks þar sem allir leikmenn Vals sprettu í átt að honum og föðmuðu hann. Þvílíkur ferill. Þvílíkur leikmaður. Svo má markið hans Gylfa líka fá shout. Maður sá bara strax í hvað stefndi þegar hann lét vaða.

Hvað þýða úrslitin?

Valsmenn klára tímabilið í 3. sæti og ná því Evrópusætinu sem þeir voru að sækjast eftir í þessum lokaleik. Skagamenn geta verið ánægðir sem nýlliðar að klára tímabilið í 5. sæti en þeir voru ekki langt frá því að ná Evrópu.

Vondur dagur

Skagaliðið allt. Alls ekki góðir í dag og virkuðu ekki samstilltir og það var eitthvað að. Kannski sátu vonbrigðin úr Víkingsleiknum ennþá í þeim.

Dómarinn - 10

Teymið mjög flott í dag og ég sé ekki hvað ég ætti draga þá niður fyrir. Virkilega góður dagur og ekkert hægt að setja út á þá í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.