Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Besta-deild karla
Samsungvöllurinn
Kalt og mikill blástur
Stjarnan
Stjarnan
2 - 1
ÍA
ÍA
Andri Rúnar Bjarnason 26'1 - 01 - 142' Steinar Þorsteinsson Guðmundur Baldvin Nökkvason 52'2 - 193' Haukur Andri Haraldsson
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Leik lokið!
Stjarnar landar stigunum þremur!
Jóhann Ingi flautar til leiksloka. Stjarnan náði að standa af sér pressu Skagamanna og hirða stigin þrjú. Viðtöl og skýrsla innan skams.
96. mín
VÁÁ ÞETTA VAR TÆPT!
Rúnar Már með skot úr teignum sem fer rétt yfir mark Stjörnunnar!
96. mín
Skagamenn fá hornspyrnu, síðasti séns! Stjarnan skallar frá.
Stjarnan
95. mín
InnJón Hrafn Barkarson
ÚtBenedikt V. Warén
ÍA
93. mín
Haukur Andri fær seinna gula!

Haukur Andri Haraldsson

Haukur fer of seint í Baldur Loga og fær sitt seinna gula spjald.
92. mín
Skagamenn fá aukaspyrnu tæpum 30 metrum frá marki. Svipað færi og sem Rúnar skoraði gegn Fram. Rúnar tekur spyrnuna í markmannshornið en Árni Snær ver.
Stjarnan
92. mín
Gult spjald

Sindri Þór Ingimarsson

Sindri brýtur á Gísla sem var við það að sleppa í gegn.
90. mín
Fimm mínútum bætt við
Fáum við dramatík?
Stjarnan
90. mín
Gult spjald

Örvar Logi Örvarsson

88. mín
Skagamenn fá horn en Árni Snær grípur spyrnuna.
87. mín
Johannes Vall með lúmskt skot sem Árni Snær ver vel.
87. mín
Skagamenn í leit að jöfnunarmarki.
ÍA
84. mín
InnBaldvin Þór Berndsen
ÚtHlynur Sævar Jónsson
ÍA
84. mín
InnÓmar Björn Stefánsson
ÚtViktor Jónsson
81. mín
Benedikt Warén fær stungusendingu í gegn, Árni Marinó er fljótur að kveikja og kemst fyrr í boltann.
Stjarnan
80. mín
InnAdolf Daði Birgisson
ÚtAndri Rúnar Bjarnason
Stjarnan
80. mín
InnBaldur Logi Guðlaugsson
ÚtKjartan Már Kjartansson
Stjarnan
80. mín
InnAlex Þór Hauksson
ÚtÖrvar Eggertsson
78. mín
Örvar Eggertsson liggur niðri og þarfnast aðhlynningar.
ÍA
77. mín
InnAlbert Hafsteinsson
ÚtSteinar Þorsteinsson
76. mín
Guðmundur Baldvin með skot beint á Árna Marinó eftir skyndisókn Stjörnumanna.
Stjarnan
71. mín
Gult spjald

Örvar Eggertsson

Örvar fær gult fyrir brot á Oliver Stefánssyni.
ÍA
67. mín
Gult spjald

Haukur Andri Haraldsson

Haukur fær spjald fyrir mótmæli.
65. mín
967 manns á vellinum!
ÍA
63. mín
InnGísli Laxdal Unnarsson
ÚtMarko Vardic
62. mín
Þarna verðuru að gera betur!
Jón Gísli Eyland með frábæran undirbúning, gefur út í teiginn. Þar er Viktor Jónsson sem setur boltann hátt yfir úr afbragðsstöðu. Illa farið með gott færi.
Stjarnan
57. mín
InnSigurður Gunnar Jónsson
ÚtGuðmundur Kristjánsson
56. mín
Steinar Þorsteinsson með skalla á markið sem Árni Snær ver örugglega í marki heimamanna.
53. mín
Emil Atlason nálægt því að bæta við
Emil með skalla rétt framhjá marki Skagamanna. Stjörnumenn eru í stuði þessa stundina!
Stjarnan
52. mín
Frábært mark!

Guðmundur Baldvin Nökkvason (stoðsending: Andri Rúnar Bjarnason)

Andri Rúnar lyftir boltanum snyrtilega yfir varnarlínu Skagamanna á Guðmund sem stýrir boltanum í netið viðstöðulaust!
50. mín
Stjarnan fær hornspyrnu en lítil hætta skapast.
48. mín
Haukur Andri keyrir upp völlinn, gefur út á Jón Gísla sem reynir utanfótar skot en boltinn í varnarmann og Skagamenn uppskera horn.
ÍA
46. mín
Gult spjald

Rúnar Már S Sigurjónsson

46. mín
Haukur Andri í góðu færi!
Boltinn dettur fyrir Hauk í teig Stjörnunnar sem lætur vaða en Árni Snær ver vel. Þessi seinni hálfleikur byrjar með látum.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Stjarnan byrjar með boltann.
45. mín
Liðin skilja jöfn að í hálfleik
Jóhann Ingi flautar til hálfleiks. Eftir tíðindalitlar upphafsmínútur vöknuðu liðin og úr varð fínasta skemmtun. Tökum 15 mínútna pásu!
44. mín
Árni Marinó klaufi
Árni Marinó gefur beint á Stjörnumann, boltinn berst á Andra Rúnar í teignum sem ætlar að lyfta boltanum yfir Árna en nær ekki að stýra boltanum á markið. Þarna munaði litlu.
ÍA
42. mín
Skagamenn jafna á besta tíma!

Steinar Þorsteinsson (stoðsending: Haukur Andri Haraldsson)

Haukur Andri á góða sendingu út í teiginn á Steinar sem tekur viðstöðulaust skot sem fer í stöngina og inn.
40. mín
Skagamenn fá hornspyrnu, Vall tekur en Stjörnumenn skalla frá.
37. mín
Kjartan Már með góða skottilraun sem fer rétt framhjá marki Skagamanna.
36. mín
Örvar Logi með skot fyrir utan teig sem fer framhjá marki gestanna.
28. mín
Gamla góða víkingaklappið
Silfurskeiðin rifja upp gamla takta og taka sívinsæla víkingaklappið við góðar undirtektir.
Stjarnan
26. mín
Andri Rúnar brýtur ísinn!

Andri Rúnar Bjarnason (stoðsending: Guðmundur Baldvin Nökkvason)

Benedikt Warén tekur hornspyrnu á nær, Guðmundur Baldvin flikkar boltanum lengra í teiginn. Þar rís Andri Rúnar manna hæst og stangar boltann í netið. Þessi leikur þurfti svo sannarlega á marki að halda!
25. mín
Heimamenn fá sína fyrstu hornspyrnu.
22. mín
Viktor Jónsson með skalla á markið sem Árni Snær grípur örugglega. Nú er eitthvað aðeins að lifna yfir þessum leik.
21. mín
Haukur Andri keyrir í átt að marki Stjörnunnar. Hann tekur skotið við vítateig sem fer í Sindra og þaðan aftur fyrir endalínu. ÍA fær horn.
20. mín
Nú eru tuttugu mínútur liðnar og nákvæmlega ekkert búið að gerast.
13. mín
Marko Vardic liggur niðri eftir samstuð við Kjartan Má. Marko harkar af sér og heldur svo leik áfram.
10. mín
Lítið að frétta á upphafsmínútunum hér á Samsungvellinum.
6. mín
Jón Gísli Eyland með ágætis fyrirgjöf sem Haukur Andri nær ekki til.
1. mín
Þetta er farið af stað!
Gestirnir byrja með boltann og leika gegn vindi í fyrri hálfleik.
Fyrir leik
Liðin ganga til vallar, nú styttist í að þessi spennandi viðureign hefjist.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Jökull Elísabetarson gerir eina breytingu á sínu liði frá sigrinum gegn FH. Alex Þór Hauksson víkur úr liðinu. Í hans stað kemur Emil Atlason. Emil missti af leiknum gegn FH þar sem hann var á fæðingardeildinni við það að verða faðir. ÍA vann 1-0 sigur gegn Frömurum í síðustu umferð. Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA heldur liði sínu óbreyttu frá þeim leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Jóhann Ingi á flautunni
Jóhann Ingi Jónsson er dómari leiksins. Honum til halds og trausts á sitthvorri línunni verða þeir Ragnar Þór Bender og Kristján Már Ólafs. Fjórði dómari leiksins er Viðar Helgason og eftirlitsmaður Gunnar Freyr Róbertsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Jón Þór mætir aftur í boðvanginn
Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, mætir aftur í boðvanginn eftir að hafa verið í leikbanni. Jón Þór fékk rautt spjald í látum eftir frægan leik ÍA gegn Víkingi í fyrra. Mikil læti urðu eftir leikinn en löglegt mark var tekið af ÍA á ögurstundu. Það var annað rauða spjald Jóns Þórs á tímabilinu og fékk hann því tveggja leikja bann. Hann var í banni gegn Val í lokaumferðinni. Seinni leikurinn færist milli tímabila og hann var því í banni í fyrstu umferð þegar ÍA mætti Fram.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Rúnar Már skoraði frábært mark úr aukaspyrnu gegn Fram
Fyrir leik
Stjarnan skoraði draugamark í sigri gegn FH
Fyrir leik
Samsung heilsar!
Heilir og sælir lesendur góðir, verið velkomin í beina textalýsingu frá Samsungvellinum þar sem Stjarnan tekur á móti ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.